Skessuhorn - 16.11.2022, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 202230
Spurning
vikunnar
Hvaða þætti
ertu að horfa á?
Spurt í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
í Grundarfirði
Jóhanna María Ægisdóttir
„Ég er nýbúin að klára Young
Royals. Það eru sænskir
Netflixþættir“
María Kúld
„Ég var að klára Fleebag og
Candy“
Oddfreyr Ágúst Atlason
„Var að klára Witcher og er
núna að horfa á Merlin.“
Agnar Guðmundsson
„Ég horfði nýlega á þættina
The Watcher á Netflix. Ég
mæli ekki með þeim. Algjör
tímasóun.“
Guðrún Jóna Jósepsdóttir
(Rúna)
„Ég mæli með Unorthodox,
þeir eru geggjaðir. En annars
er ég nýbúin að hámhorfa á
Nashville.“
Í þessum lið leggjum við fyrir
tíu spurningar til íþróttamanna
úr alls konar íþróttum á öllum
aldri á Vesturlandi. Íþrótta-
maður vikunnar að þessu sinni er
körfuknattleikskonan Dagný Inga
frá Stykkishólmi.
Nafn: Dagný Inga Magnúsdóttir
Fjölskylduhagir? Bý heima í
Stykkishólmi með foreldrum
mínum og systkinum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Körfubolti og að verja tíma með
fjölskyldu og vinum.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Vakna
yfirleitt eldhress á morgnana og
skelli mér í skólann. Eftir skóla fer
ég heim, slaka á og græja mig fyrir
æfingu. Eftir æfingu fer ég heim,
fæ mér kvöldmat og svo enda ég
flesta daga með því að horfa á einn
góðan þátt með mömmu.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Ég myndi segja að ég
væri mjög skipulögð og samvisku-
söm. Minn helsti galli er trúlega
að mig vantar nokkra sentimetra.
Það má svo sem deila um það
hvort það sé galli eða ekki.
Hversu oft æfir þú í viku? Fimm
til sex sinnum í viku.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Þegar ég var yngri
horfði ég mikið upp til systur
minnar. Í dag lít ég upp til fullt af
íþróttafólki en ég hef enga eina
sérstaka fyrirmynd.
Af hverju valdir þú körfu
bolta? Ég valdi körfubolta af því
systir mín var að æfa og flestir
í kringum mig. Svo hefur líka
bara alltaf verið mikil körfubolta-
stemning í Stykkishólmi.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Finnst ég sjálf vand-
ræðilega fyndin, annars er erfitt að
toppa vinkonu mína Thelmu Lind.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Það er skemmtilegast að vinna og
þegar það gengur vel og leiðinleg-
ast þegar það gengur illa.
Vakna eldhress á morgnana
Íþróttamaður vikunnar
Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr
Borgarnesi og Guðmundur Ágúst
Kristjánsson, sem báðir spila
með GKG hófu á föstudaginn
leik á lokaúrtökumótinu fyrir DP
Evrópumótaröðina, sem er sterkasta
atvinnumannamótaröðin í Evrópu.
Þeir Bjarki og Guðmundur Ágúst
voru báðir sáttir með frammistöð-
una á 2. stigi úrtökumótanna fyrir
DP Evrópumótaröðina. „Sláttur-
inn var mjög stöðugur og góður
og vinnan sem við Arnar Már erum
búnir að leggja inn þar er að skila
sér. Ég hinsvegar púttaði ekki vel
(á 2. stiginu). Það verður mikilvægt
að vera heitur á pútternum í loka-
mótinu,“ sagði Bjarki í stuttu spjalli
við kylfing.is eftir keppnina helgina
áður á 2. stiginu.
Tuttugu efstu af 153 keppendum
fá þátttökurétt á DP sem er fremsta
mótaröðin í Evrópu. Um helmingur
af þeim spilurum kemst á lokastigið
í gegnum 2. stigið. Það gerðu þeir
Bjarki og Guðmundur og voru að
keppa annað sinn á þriðja stigi.
Hinn helmingurinn eru kylfingar
sem náðu ekki að halda keppnisrétti
sínum á mótaröðinni 2022. Leikið
var í sex daga á Infinitum golfsvæð-
inu sem er skammt frá Tarragonga
á Spáni. Eftir fjóra hringi var svo
niðurskurður. Skemmst er frá því
að segja að Bjarki lék á 4 yfir pari í
dag og endaði á +21 og náði sér því
aldrei á strik á lokaúrtökumótinu.
Guðmundur Ágúst komst áfram í
gegnum niðurskurðinn og spilaði á
13 undir pari.
Aðeins fimm íslenskir kylfingar
hafa áður náð inn á loka úrtökumót
Evrópumótaraðarinnar. Birgir
Leifur Hafþórsson lék 13 sinnum á
lokaúrtökumótinu og er eini íslenski
karlkylfingurinn sem hefur tryggt
sér keppnisrétt á Evrópumótaröð-
inni en það gerði hann árið 2007.
Björgvin Sigurbergsson lék á loka-
úrtökumótinu árið 2001 og árið
2019 var Andri Þór Björnsson á
lokaúrtökumótinu líkt og Bjarki og
Guðmundur Ágúst nú.
mm
Bjarki á lokaúrtökumóti
DP Evrópumótaraðarinnar
Bjarki og Guðmundur Ágúst. Ljósm. kylfingur.is
Árgangamót ÍA í knattspyrnu fór
fram í Akraneshöllinni á laugar-
daginn eftir þriggja ára hlé en
mótið hafði ekki verið haldið síðan
2019 vegna faraldursins. Fjögur
kvennalið tóku þátt, árgangar
1993-96, 1987-89, 1984-86 og 40+
og þar voru sigurvegarar árgangur
1993-96.
Karlamegin voru tvær deildir;
Ungliðadeild og Lávarðadeild.
Í Ungliðadeildinni kepptu sex
árgangar, 1985, 1986, 1987, 1990,
1991 og 1992 og þar var árgangur
1991 hlutskarpastur. Í Lávarða-
deildinni voru fjögur lið skráð til
leiks en það voru árgangar 1977-
78, 1979, 1981 og 1983/1984 og
gullið þar hreppti 1979 árgangur-
inn.
Nýjung að þessu sinni á mótinu
var vítaspyrnukeppni og var öllum
velkomið að taka spyrnu fyrir litlar
2500 krónur á vítabanann Dino
Hodzic úr Kára. Sigurvegari í
keppninni var hinn tólf ára Örlygur
Hrafn Stefánsson sem sýndi mikið
öryggi á vítapunktinum og stóð
verðskuldað uppi sem sigurvegari.
vaks/ Ljósm. Gísli J. Guðmundsson
Árgangamót ÍA í Akraneshöllinni
Árgangur 1991 vann ungliðadeildina. Unglömbin í 1993-96 fögnuðu sigri í kvennadeildinni.
Árgangur 1979 fékk gullið í Lávarðadeildinni.