Skessuhorn - 16.11.2022, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2022 31
Álftanes og ÍA mættust í 1. deild
karla í körfuknattleik á mánudags-
kvöldið og var viðureignin í For-
setahöllinni á Álftanesi. Í fyrsta
leikhluta var nánast jafnt á öllum
tölum og munurinn aldrei meiri en
fjögur stig á milli liðanna. Dúi Þór
Jónsson hitti úr tveimur vítum fyrir
heimamenn undir lokin og sá til
þess að staðan var 21:17 Álftanesi
í vil. Um miðjan annan leikhluta
minnkaði Jalen Dupree forskotið
í aðeins tvö stig með þriggja stiga
stökkskoti fyrir ÍA og staðan 28:26
Álftanesi í vil. Þegar tæpar þrjár
mínútur voru í hálfleik var staðan
jöfn 36:36 en þá settu heimamenn
þrjá þrista niður í röð á skömmum
tíma og staðan í hálfleik 47:41
Álftanesi í hag.
Í byrjun þriðja leikhluta voru
Álftnesingar ávallt skrefinu á undan
en Skagamenn neituðu að gef-
ast upp og þegar tæpar þrjár mín-
útur lifðu af leikhlutanum var
munurinn aðeins fjögur stig, 57:53.
Álftanes átti síðasta orðið og síð-
ustu fjögur stigin á meðan Skaga-
menn hittu alls ekki neitt, staðan
61:53 fyrir fjórða og síðasta leik-
hluta. Skagamenn hristu það af sér
í fjórða leikhluta og voru fljótlega
komnir yfir í leiknum, 66:68. Þegar
rúmar tvær mínútur voru eftir var
staðan 76:73 fyrir Álftanesi og allt
á suðupunkti. Skagamenn náðu
síðan að minnka muninn í tvö stig
þegar rúm hálf mínúta var eftir af
leiknum en Cedrick Bowen hitti
úr þriggja stiga skoti undir lokin
og tryggði sigurinn. Naumur sigur
heimamanna og þeirra áttundi í röð
bláköld staðreynd, lokatölur 82:77
fyrir Álftanesi.
Stigahæstur hjá ÍA var Jalen
Dupree með 23 stig og 19 fráköst,
Gabriel Adersteg var með 19 stig
og Lucien Christofis með 14 stig.
Hjá Álftanesi var Dúi Þór Jónsson
með 18 stig og 11 stoðsendingar,
Dino Stipcic með 15 stig og
Eysteinn Bjarni Ævarsson með 11
stig og 12 fráköst.
Næsti leikur Skagamanna er
næsta föstudag á móti Skallagrími
í íþróttahúsinu við Vesturgötu á
Akranesi og hefst Vesturlands-
slagurinn klukkan 19.15.
vaks
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hefur endurnýjað samstarfssamn-
inga fyrir þetta tímabil við fyrir-
tæki sem hafa verið bakhjarlar
deildarinnar til margra ára. Undir-
skriftir fóru fram í hálfleik á leik
Skallagríms og Selfoss í fyrstu
deildinni á fimmtudagskvöldið
og mættu fulltrúar fyrirtækjanna
þriggja með pennana á lofti. Það
voru þau Birgir Andrésson fyrir
hönd Steypustöðvarinnar, Helga
Margrét Friðriksdóttir fyrir hönd
Landnámsseturs Íslands og Andri
Daði Aðalsteinsson fyrir hönd
Límtrés Vírnets.
Í tilkynningu á FB síðu
Skallagríms segir: „Það er ákaf-
lega ánægjulegt og dýrmætt að eiga
samstarf við þessi frábæru fyrirtæki
í heimabyggð og ljóst að það léttir
verulega róðurinn fyrir deildina.
Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir
komuna!“ vaks
Skallagrímur tók á móti liði Selfoss
í 1. deild karla í körfuknattleik sl.
fimmtudag og fór leikurinn fram í
Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var nán-
ast á öllum tölum í fyrsta leikhluta
og munurinn aldrei meiri en fjögur
stig milli liðanna, staðan 31:32
gestunum í vil. Selfoss hóf leik af
miklum krafti í öðrum leikhluta
og skoraði ellefu stig gegn aðeins
einu stigi heimamanna, staðan
32:43 eftir aðeins þriggja mínútna
leik. Skallagrímur náði síðan að
minnka muninn í fimm stig þegar
tvær mínútur voru í hálfleik en Sel-
foss setti niður síðustu sex stigin og
staðan í hálfleikshléinu góð fyrir
gestina, 45:56.
Í þriðja leikhluta voru heima-
menn staðráðnir í því að koma sér
inn í leikinn á ný og smám saman
minnkuðu þeir forskot gestanna
með miklum baráttuvilja og ákefð.
Keith Jordan Jr. hjá Skallagrími átti
síðasta skotið í leikhlutanum þegar
hann setti niður þrist og munur-
inn á milli liðanna aðeins þrjú stig,
66:69 Selfossi í hag. Eftir rúmar
fjórar mínútur í fjórða leikhluta var
staðan 75:78 fyrir Selfyssingum og
spenna komin í leikinn en næstu
mínútur voru leikmenn liðanna
ekki á sínum besta degi og hittu ekki
neitt. Almar Örn Björnsson minnk-
aði muninn í aðeins eitt stig fyrir
Skallagrím á síðustu mínútu leiks-
ins og í kjölfarið fór af stað mik-
ill atgangur þar sem Skallagríms-
menn gerðu hvað sem þeir gátu til
að ná sigri. Þriggja stiga skot Keith
Jordan Jr fór af hringnum undir
blálokin þegar hann hefði getað
jafnað leikinn og gestirnir luku leik
á vítalínunni þar sem lokastigin tvö
komu. Þeir fögnuðu sætum fimm
stiga sigri, lokatölur 82:87 Selfossi
í vil.
Keith Jordan Jr. var stigahæstur
hjá Skallagrími með 27 stig, Björg-
vin Hafþór Ríkharðsson var með
16 stig og 11 fráköst og bróðir hans
Bergþór Ægir Ríkharðsson með 11
stig. Hjá Selfossi var Srdan Stoja-
novic með 24 stig, Gerald Robin-
son var með 14 stig og 11 fráköst
og Kennedy Aigbogun einnig með
14 stig.
Skallagrímur er í 7. til 8. sæti
deildarinnar ásamt ÍA með sex stig
eftir átta leiki en neðst eru Fjölnir
með tvö stig og Þór Akureyri án
stiga. Næsti leikur Skallagríms er
næsta föstudag á móti ÍA í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi
og hefst á slaginu klukkan 19.15.
vaks
KR og Snæfell áttust við í 1. deild
kvenna í körfuknattleik síðasta
miðvikudagskvöld og fór leikurinn
fram á Meistaravöllum í Vestur-
bænum. Fyrir leik voru liðin jöfn
með tólf stig í deildinni ásamt Þór
Akureyri í 2. til 4. sæti og því um
toppslag að ræða. Það skildi lítið á
milli liðanna í fyrsta leikhluta, eftir
sex mínútna leik var staðan jöfn
13:13 og Snæfell fór með eins stigs
forskot inn í annan leikhluta, staðan
23:24. Það var lítið skorað fyrstu
mínúturnar í honum og allt í jafn-
vægi á milli liðanna. En þá hrökk
varnarleikur Snæfells í gang á sama
tíma og Cheah Rael Whitsitt í liði
Snæfells tók sig til og skoraði tíu
stig gegn engu stigi KR seinni hluta
leikhlutans, staðan í hálfleik 29:40
Snæfelli í vil.
Staðan breyttist lítið fram í
miðjan þriðja leikhluta en í stöð-
unni 39:50 tóku heimakonur góðan
sprett og náðu að minnka muninn
í þrjú stig, 51:54, og allt útlit fyrir
spennandi lokaleikhluta. Gestirnir
komu sér aftur í þægilega stöðu
með því að skora fyrstu átta stigin
og voru komnar með 14 stiga for-
ystu eftir þrjár mínútur í fjórða
leikhluta, 53:67. KR konur hittu
síðan þrjár þriggja stiga körfur í
röð og hleyptu smá spennu í leik-
inn en Snæfell átti síðasta orðið þar
sem fyrrnefnd Cheah Rael Whitsitt
var í aðalhlutverki, lokatölur 70:77
fyrir Snæfelli.
Cheah var atkvæðamest hjá
Snæfelli með 36 stig og 19 frá-
köst, Preslava Koleva var með 16
stig og Ylenia Maria Bonett með
8 stig. Hjá KR var Violet Morrow
með 38 stig, Anna Margrét Her-
mannsdóttir var með 10 stig og Lea
Gunnarsdóttir með 8 stig.
Stjarnan er efst í deildinni með
fullt hús stiga eftir átta leiki, Snæ-
fell er í öðru sæti með 14 stig og
Þór Akureyri og KR í því fjórða
með tólf stig. Neðst eru lið Tinda-
stóls með tvö stig og Breiðablik b er
enn án stiga. Snæfellskonur hafa nú
unnið sjö sigra í röð í deildinni og
ættu að hafa bætt þeim áttunda við
í gærkvöldi þegar þær mættu botn-
liði Breiðabliks b í Stykkishólmi.
vaks
Skallagrímur með þriðja tapið í röð
Bergþór Ægir skoraði ellefu stig á móti Selfossi. Ljósm. glh
Skagamenn stóðu í Álftnesingum
Jalen Dupree var með 23 stig og 19 fráköst á móti Álftanesi. Hér í leik fyrr í vetur á
móti Hamri. Ljósm. vaks
Skallagrímur gerir nýja samninga
við þrjú fyrirtæki í heimabyggð
Andri Daði Aðalsteinsson, Sigríður Bjarnadóttir formaður körfuknattleiksdeildar-
innar, Birgir Andrésson og Helga Margrét Friðriksdóttir eftir undirskriftina.
Ljósm. glh
Snæfell vann sinn
sjöunda sigur í röð
Snæfell er á ansi góðu skriði þessa dagana í körfunni. Ljósm. sá