Fréttablaðið - 29.03.2023, Side 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
Frítt
2 0 2 3
K Y N N I NG A R B L A ÐALLT
MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2023
Æfði fimleika í fjósinu og á
túnunum í sveitinni heima
Guðmundur Kári Þorgrímsson ólst upp í sveit rétt hjá Búðardal þar sem ekki var mikið
úrval af íþróttum til að æfa. Hann komst samt í landsliðið í fimleikum og á verðlaunapall á
EM. Nú er hann fluttur aftur í sveitina, starfar við kennslu og þjálfar börn í fimleikum. 2
Guðmundur Kári Þorgrímsson hefur í nógu að snúast. Hann passar að skipuleggja sig vel til að komast yfir verkefni dagsins og gefur sér alltaf tíma fyrir æfingar.
MYNDIR/AÐSEN
DAR
Of mikil saltneysla er ekki góð fyrir
heilsuna. FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
gummih@frettabladid.is
Íslendingar neyta meira salts en
mælt er með, en margir vita ekki
af því. Mest af saltinu er dulið í
tilbúnum matvörum. Það er mikill
ávinningur heilsufarslega af að
minnka saltneyslu því þannig má
draga úr hækkun blóðþrýstings en
háþrýstingur er einn af áhættu-
þáttum hjarta- og æðasjúkdóma.
Áhrif þess að draga úr salt-
neyslu eru mest hjá þeim sem eru
með ofan háan blóðþrýsting og
hjá þeim sem eru yfir kjörþyngd
en einnig má vinna gegn þeirri
blóðþrýstingshækkun sem yfirleitt
fylgir hækkandi aldri.
Skoða saltið í matvörum
Samkvæmt ráðleggingum um
mataræði er mælt með að full-
orðnir neyti ekki meira en sem
nemur sex grömmum af salti á dag
og fyrir börn 2–9 ára ætti salt-
neysla að vera takmörkuð við 3–4
grömm á dag. Stærstur hluti salts
í fæðu, eða um þrír fjórðu, kemur
úr tilbúnum matvælum, svo sem
unnum kjötvörum, brauði, ostum,
pakkasúpum, sósum, tilbúnum
réttum og skyndibitum.
Ráðlagt er að lesa utan á
umbúðir matvæla og velja sem
oftast saltminni kostinn. Embætti
landlæknis hvetur neytendur til að
skoða saltið í matvörum og finna
leiðir til að minnka saltneysluna.
Framleiðendur eru einnig hvattir
til að minnka smátt og smátt salt-
innihald í matvörum sínum. n
Drögum úr
saltneyslunni
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
K Y N N I NG A R B L A Ð
MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2023
Sjálfbærni í rekstri
Guðlaugur Þór segir að mikilvægt sé að hafa í huga að þær aðgerðir og umbreytingar sem nauðsynlegar eru til ð sporna við loftslagsbreytingum muni hafa áhrif á samfélagið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Stöðug vegferð í átt að sjálfbærari rekstri
Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála, segir að nauðsynlegt sé fyrir þjóðina að
breyta hegðun og neyslumynstri með hugmyndafræði hringrásarhagkerfis að leiðarljósi. Þar hafa framleiðendur
jafnframt mjög mikilvægu hlutverki að gegna. 2
HALLDÓR | | 10 PONDUS | | 14
Kvíðir moskítóflugunum
við Noregsstrendur
6 2 . t ö L U b L A ð | 2 3 . á R g A N g U R |
líFið | | 22
Fréttir | | 4
Barnshafandi óttast
lokaða vegi eystra
M I ð V I K U D A g U R 2 9 . M A R S|
menning | | 15
líFið | | 20
Hryllingurinn
kraumaði í Arró
Svikull silfurljómi
í Súðavík
Skemmtiferðaskipið Ambience lagðist í gær að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík. Er það fyrsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Íslands á þessu ári. Alls er
búist við 269 skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur á árinu. Ambience er 245 metrar á lengd og er frá Bretlandi. Það lætur aftur úr höfn í dag. FréttABlAðið/ernir
Númer eitt
í röðinni
Jóhannes Þór Skúlason,
framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, segir
að útlendingar muni sinna
þriðja hverju starfi í grein-
inni í sumar. Hann bendir
á að sumir Íslendingar viti
ekki meira um staðhætti en
útlendingar.
bth@frettabladid.is
f e R ðA þj Ó N U S tA „Við höf u m
undan farið séð töluvert af Íslend-
ingum hverfa frá okkur yfir til hins
opinbera,“ segir Jóhannes Þór Skúla-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar.
Jóhannes reiknar með að einn
af hverjum þremur starfsmönnum
ferðaþjónustunnar á komandi
sumri verði af erlendu bergi brot-
inn. Í sumum landshlutum verði
hlutfallið allt að 80 prósent. Hluti
þessara útlendinga búi hér allt árið.
Stór hluti sé farandverkamenn á
sumarvertíðinni.
Heildarf jöldi starfa í ferða-
þjónustunni í sumar er áætl-
aður 23 til 25 þúsund. „Fyrirtækin
ráða í færri stöður í sumar vegna
rekstrarvandkvæða sem þau eru
að vinna sig út úr,“ segir Jóhannes.
Að sögn Jóhannesar hefur margt
erlent starfsfólk hér menntun í
ferðamálafræði. „Ef við horfum á
starfsfólk í lobbíum verðum við
líka að muna að það finnast dæmi
um að Íslendingar viti ekkert meira
um staðhætti en útlendingar.“
Fréttablaðið hringdi í nokkur
hótel. Mjög er upp og ofan hvort
starfsmaður talar íslensku ef bóka
á herbergi. sjá síðu 4
Erlendir skipa þriðjung
starfa í ferðaþjónustunni
Jóhannes
Þór Skúlason,
framkvæmda-
stjóri SAF
bANDARíKIN Sár af völdum skot-
vopna eru orðin algengasta dán-
arorsök bandarískra barna. Þau
látast fremur af skotsárum en úr
sjúkdómum eða slysum.
„Eins og margt er gott í Banda-
ríkjunum er þetta eitt af því sem
er illskiljanlegt, því miður,“ segir
Guðmundur Árni Stefánsson, sem
var sendiherra þar vestra. sjá síðu 6
Bandarísk börn
deyja aðallega
í skotárásum
Guðmundur
Árni Stefáns-
son, fyrrver-
andi sendi-
herra Íslands í
Bandaríkjunum