Fréttablaðið - 29.03.2023, Side 9
Íslenskir sauðfjárbændur
segjast ekki mótfallnir sam
keppni sem væri á sam
bærilegum forsendum, en
segjast sjálfir glíma við miklar
verðhækkanir. Formaður
Neytendasamtakanna segir
sameiginlegt markmið að
framleiða og neyta matar.
helgisteinar@frettabladid.is
Gunnar Þórarinsson, sauðfjárbóndi
á Þóroddsstöðum í Hrútafirði, telur
að samvinna meðal sláturhúsa á
Íslandi myndi hafa jákvæð áhrif
fyrir sauðfjárbændur landinu. Hann
segir bændur ekki mótfallna alþjóð
legri samkeppni svo lengi sem sú
samkeppni sé á sambærilegum for
sendum.
Greint var frá því í síðustu viku
að verð á lambakjöti hefði hækkað
um 20 prósent á einu ári, eða tvöfalt
meira en nemur verðbólgu. For
maður Neytendasamtakanna sagði
að það væri engin tilviljun að í þeim
geirum þar sem samkeppni væri
engin ríkti minni fyrirstaða gegn
því að ýta hækkunum út í verðlagið.
„Þessi hækkun sem kom núna
seinast var út af hækkun á afurða
verði sem bændur fengu í haust.
Hins vegar ef þú ferð aðeins aftur
í tímann þá er lambakjöt búið að
hækka miklu minna heldur en
flestar aðrar vörur. Vísitala lamba
kjöts er mun lægri heldur en vísitala
neysluverðs,“ segir Gunnar.
Hann vísar til hærri framleiðslu
kostnaðar og hærri launa á Íslandi
en segir jafnframt að huga þurfi
að þeim hækkunum sem bændur
glíma við. „Það hefur allt hækkað
hjá bændum, bæði fóðrið, rúllu
plastið og að sjálfsögðu olían. Svo
tvöfaldaðist náttúrulega verðið á
áburði í fyrra.“
Gunnar segir bændur ekki mót
fallna samkeppni en bætir við að
íslenskir matvælaframleiðendur
búi við mun strangari kröfur þegar
kemur að dýravelferð og hormóna
notkun en annars staðar í heim
inum. Ætti innflutt kjöt að standast
sömu skilyrði og íslenskt kjöt hefðu
bændur enga ástæðu til að vera ugg
andi yfir samkeppni.
„Þar væru líka til staðar heilmiklir
hagræðingarmöguleikar fyrir sauð
fjárbændur ef sláturhúsin fengju að
vinna meira saman. Samkeppnis
eftirlitið hefur hins vegar verið á
móti því og telur að það myndi bara
leiða til verðhækkana.“
Breki Karlsson, formaður Neyt
endasamtakanna, er sammála því
að bændur ríði ekki feitum hesti
frá núverandi fyrirkomulagi. Hann
segist skilja það að lambakjöt sé dýr
vara en á sama tíma þurfi verðið að
vera gegnsætt.
„Neytendur vilja fá val um vörur
sínar og þar sem við vitum að
íslenskt lambakjöt er fyrsta flokks
vara þá þurfa bændur ekki að óttast
samkeppni. En þeir sem ekki hafa
efni á því að kaupa sér dýrar kjöt
vörur í hverri viku verða líka að fá
tækifæri til að kaupa sér eitthvað
annað sem er ódýrara,“ segir Breki.
Hann segir að það ríki ákveðinn
misskilningur þegar kemur að land
búnaðarvernd á Íslandi og telur að
alþjóðleg samkeppni sé íslenskum
bændum til bóta. Einhæfni dregur
úr hvata til nýsköpunar og bitnar
það bæði á bændum og neytendum.
„Þegar ég var lítill þá var bara ein
tegund af tómötum en eftir að tolla
múrarnir voru felldir hafa tómata
bændur orðið blómlegustu bændur
á Íslandi. Þeir notast líka við inn
f lutt fræ og innf luttar býf lugur
og vinna á fullu í ræktun og ferða
mennsku.“
Breki segir að það sé eins og ein
hver hafi hag af því að stilla neyt
endum og bændum hverjum upp á
móti öðrum og segist hann neita að
taka þátt í því. „Það er sameiginlegt
markmið að búa til mat og neyta
matar en neytendur eiga að hafa rétt
á að velja og til þess þurfa þeir að fá
allar upplýsingar.“ n
helgisteinar@frettabladid.is
Flugfélagið British Airways neyðist
til að aflýsa minnst 32 flugferðum á
dag til og frá Heathrowflugvelli yfir
páskana í ljósi fyrirhugaðs verkfalls
öryggisstarfsmanna flugvallarins.
Rúmlega 1.400 f lugvallarstarfs
menn munu leggja niður störf í tíu
daga frá 31. mars til 9. apríl.
Viðræður fóru fram í síðustu viku
í von um að leysa launadeiluna en
ekki tókst að afstýra verkfallinu.
Heathrow hefur nú sagt British
Airways að stöðva alla sölu nýrra
flugmiða og að skera niður áætlaða
þjónustu sína um fimm prósent.
Flugvöllurinn hefur brugðist við
með því að senda rúmlega þúsund
aukastarfsmenn til vinnu yfir hátíð
ina til að aðstoða farþega á leið í frí.
Í tilkynningu frá Heathrow segir að
öryggisleitin gæti tekið lengri tíma
en vanalega.
„Við munum ekki leyfa þessu
ónauðsynlega verkfalli að hafa
áhrif á langþráð frí ferðalanga,“
segir talsmaður Heathrowf lug
vallar. n
Það er sameiginlegt
markmið að búa til
mat og neyta matar.
Breki Karlsson,
formaður Neyt-
endsamtaka
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja.
• Verðmat
• Ráðgjöf og undirbúningur
fyrir sölumeðferðir
• Milliganga um
fjármögnun
• Samningagerð
kontakt@kontakt.is | 414 1200 |Ránargata 18, 101 Reykjavík
www.kontakt.is
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja
Reykjanes við Ísafjarðardjúp
Einstakt tækifæri í ferðaþjónustu. Á staðnum er rekið
hótel í gömlu skólahúsi með 30 tveggja manna herbergi,
7 íbúðir og tjaldstæði með góðri aðstöðu. Á staðnum er
sundlaug, heitir og kaldir pottar og gufuböð.
Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Bergþórsdóttir
brynhildur@kontakt.is
British Airways hefur stöðvað sölu á flugmiðum. f réttablaðið/getty
British Airways aflýsir hundruðum ferða yfir páskana
helgisteinar@frettabladid.is
Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bón
uss, greinir frá því að Bónusgrísinn
frægi muni nú bregða sér í nýtt hlut
verk sem safngripur á páskaeggjum
verslunarinnar. Hann segir að hægt
verði að safna mismunandi grísum
ár eftir ár líkt og gert var með
strumpafígúrurnar fyrir nokkrum
árum.
„Grísinn verður í mismunandi
útgáfum hvert ár og kemur hver grís
í takmörkuðu upplagi. Við vissum
fyrst ekki hversu vinsælt þetta yrði
en nú kemur í ljós að þetta er sölu
hæsta páskaeggið í Bónus.“
Baldur segir að verðlag gæti vissu
lega spilað inn í söluna en stærsta
Bónuseggið er rúmlega helmingi
ódýrara en egg í svipaðri stærð frá
samkeppnisaðilum. Hann telur
samt sem áður marga laðast að
grísnum sjálfum og vilja hann jafn
vel enn frekar en súkkulaðið.
„Hann er náttúrulega skemmti
legur og líka ágætlega veglegur. Það
er alveg óhætt að leika sér með hann
án þess að hann skemmist. Grísinn
er unninn úr plasti en hann er líka
þungur og stendur á svona stalli sem
fólk sér þegar búið er að taka súkku
laðið frá,“ segir Baldur.
Það ríkti þjóðarsorg þegar gamli
Bónusgrísinn kvaddi Íslendinga en
Baldur segir kostinn við nýja grísinn
vera þann að auðveldara sé að leika
sér með svipbrigði hans.
„Bónusgrísinn er í hjörtum
Íslendinga og þó svo að okkur þyki
rosalega vænt um þann gamla þá
var hann pínu úr sér genginn greyið.
Nýi grísinn hentar betur í svona
verkefni að því leytinu til að það
er hægt að glæða hann miklu meira
lífi sem gerir hann jafnvel að enn
skemmtilegri persónu og verður
hann einstakari fyrir vikið.“ n
Bónusgrísinn bregður
sér í hlutverk safngrips
Baldur segir Bónuseggið vera það
söluhæsta í ár. Fréttablaðið/erNir
Fákeppni bitnar bæði á
bændum og neytendum
Bændur segja að íslensk lambakjötsframleiðsla þurfi að standast mjög háar kröfur. Fréttablaðið/SteFÁN
Fréttablaðið mArkAðurinn 929. mars 2023
miðVikuDAGur