Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2023, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 29.03.2023, Qupperneq 19
Undanfarinn áratug hefur hugbúnaðarfyrirtækið Klappir grænar lausnir hf. þróað lausnir sem styðja sjálfbærnivegferð fyrirtækja og samfélagsins í heild. Margt hefur breyst frá stofnun félagsins hvað varðar sjálf bærni, aukin áhersla er lögð á sjálf bærni í rekstri fyrirtækja og lagaum- hverfið er í stöðugu þroskaferli í átt að ítarlegri og samræmdari upplýsingagjöf fyrirtækja um umhverfismál og aðra ófjárhags- lega þætti. Á þessum árum hafa Klappir unnið markvisst að því að byggja upp öfluga innviði til þess að styðja stafrænt samfélag við- skiptavina sem styrkja hver annan með frjálsu f læði sjálf- bærnigagna sem eru undirstaða upplýsingagjafar um sjálf bærni- mál í nútíð og framtíð. Félagið hefur starfað frá upphafi á Íslandi en hefur undanfarið fært út kvíarnar. Klappir grænar lausnir hf. stofnuðu fyrir ári síðan dóttur- félagið Nordic ApS í Danmörku og opnuðu skrifstofu við Íslands- bryggju í Kaupmannahöfn. Áframhaldandi vöxtur Hugbúnaðurinn hefur verið í stöðugri þróun síðastliðin ár og gerir fyrirtækjum og stofnunum mögulegt að deila sjálf bærnigögn- um sín á milli með sjálfvirkum gagnatengingum og veitir þeim nákvæma yfirsýn yfir alla lykilþætti starfsem- innar, svo sem útblástur gróðurhúsalofttegunda, vatns- og orkunotkun og sorplosun. Notendur hugbúnaðarins geta átt í samskiptum við önnur fyrirtæki í sínum virðis- keðjum og sent þeim spurninga- lista og gagnabeiðnir til þess að fá nákvæma yfirsýn yfir sjálf bærni- frammistöðu allra hagaðila. „Við sjáum um að öll gögn sem á þarf að halda séu aðgengileg á einum stað. Sjálf bærnistjórar og aðrir sem vinna með gögnin þurfa ekki lengur að vinna í excelskjöl- um, safna gögnum handvirkt og kortleggja sjálfir notkun á t.d. raf- magni, vatni, hita og eldsneyti,“ segir Anton Birkir Sigfússon, framkvæmda- stjóri vaxtar og sjálf bærni hjá Klöppum. Með auknum fjölda notenda að hugbúnaðinum hefur stafrænt samfélag Klappa vaxið töluvert og telur nú yfir 1.500 lögaðila í 41 landi. Vaxtartækifæri erlendis Fyrirtækið hefur nú komið sér vel fyrir í Danmörku með sjálf bærni- lausn sína. Klappir aðstoða dönsk fyrirtæki og stofnanir að ná utan um sjálf bærnigögnin sín og veita ráðgjöf og stuðning við gerð sjálf- bærniuppgjöra. „Við erum að ná góðri fótfestu í Danmörku, nálgunin okkar á samvinnu fyrirtækja í sjálf bærni- málum með stafrænni lausn Klappa fellur vel að þörfum fyrir- tækja þar í landi og meðbyrinn er mikill,“ segir Anton Birkir Sigfússon. Ný tilskipun ESB markar tímamót hjá Klöppum Evrópusambandið ætlar sér forystuhlutverk í baráttu heims- byggðarinnar við loftslagsvána en álfan hefur sett sér markmið um kolefnishlutleysi árið 2050. Ný tilskipun ESB um sjálfbærniupp- lýsingagjöf fyrirtækja (e. Corpo- rate Sustainability Reporting Directive, CSRD) og staðlar um form og efni sjálfbærniskýrslna (European Sustainability Report- ing Standard, ESRS) festir í sessi lagalega umgjörð fyrir upplýsinga- gjöf fyrirtækja um sjálfbærni í víðum skilningi. CSRD-tilskipunin er mikilvægur hluti af Græna samfélagssáttmála ESB (EU Green Deal). Markmiðið er að stuðla að auknu flæði fjármagns til sjálf- bærra atvinnugreina og verkefna á kostnað ósjálfbærra, en grund- völlurinn fyrir slíkri þróun er góð upplýsingagjöf. Ljóst er að evrópsk þjóðríki og fyrirtæki þurfa að taka höndum saman til þess að metn- aðarfull markmið álfunnar í lofts- lags- og sjálfbærnimálum verði að veruleika. CSRD er Evróputilskip- un sem aðildarríkjum ESB og EES, m.a. Íslandi, er skylt að innleiða í eigin landsrétt. Á næstu árum kemur tilskipunin til með að ná til um 50.000 fyrir- tækja innan ESB og EES, þar af hundruð fyrirtækja á Íslandi. Gert er ráð fyrir að stór fyrirtæki sem skráð eru á markað hefji þessa vegferð strax á næsta ári, 2024. Hvað sem innleiðingu til- skipunarinnar í íslenskan rétt líður er ljóst að virðiskeðjunálg- unin sem tilskipunin og staðlarnir byggja á, mun knýja öll evrópsk fyrirtæki, óháð stærð, til þátttöku í sjálfbærnivegferðinni. Klappir vinna nú hörðum höndum að því að aðlaga eigin tækni og aðferða- fræði að þessum nýja evrópska veruleika. „Við ætlum okkur að styðja vel við okkar viðskiptavini og munum bjóða upp á fræðsluefni, fundi og vefkynningar um tilskipunina. Við erum nú þegar byrjuð að taka samtalið með okkar stærstu við- skiptavinum og viljum eiga í nánu samstarfi til þess að ná sem best utan um það hvernig við getum aðstoðað fyrirtæki á þessari veg- ferð. Þetta er verðug áskorun en ef vel gengur verður ávinningur samfélagsins ómetanlegur,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa. n Klappir drífa samfélagið í átt að sjálfbærni Anton Birkir Sigfússon, framkvæmda- stjóri vaxtar og sjálfbærni hjá Klöppum. MYNDIR / AÐSENDAR Tækifæri Klappa til að vaxa erlendis eru mikil þar sem hugbúnaðurinn og að- ferðafræðin er gerð fyrir alþjóðlegan markað. Jón Ágúst Þor- steinsson, forstjóri Klappa, segir að miklar breytingar séu fyrirhug- aðar varðandi upplýs- ingagjöf fyrirtækja. kynningarblað 5MIÐVIKUDAGUR 29. mars 2023 Sjálfbærni í reKStri

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.