Fréttablaðið - 29.03.2023, Blaðsíða 28
Vonandi
taka fyrir-
tæki í
íslenskum
sjávarút-
vegi vel í að
byrja að
innleiða
lífdísil-
blandað
eldsneyti á
skip sín.
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
fer fyrir nýju sviði sjálfbærni
og stafrænnar þróunar hjá
Skeljungi. Hún segir verk-
efnin stór, spennandi og ögr-
andi en að félagið sé þegar
byrjað að gera sig gildandi í
sjálfbærum rekstri.
„Okkur hefur fundist vanta í
umræðuna um orkuskiptin á
Íslandi að milliskrefið í átt að
orkuskiptum verði blanda af mis-
munandi orkugjöfum. Í umræð-
unni er rafmagn jafnan í brenni-
depli, en á þessari vegferð koma
fleiri grænir orkugjafar við sögu,
svo sem rafeldsneyti, vetni, amm-
óníak, metanól eða metan, sem
allt eru umhverfisvænni valkostir
og munu draga úr þeirri losun sem
jarðefnaeldsneyti veldur óneitan-
lega í dag.“
Þetta segir Jóhanna Helga
Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri
sjálfbærni og stafrænnar þróunar
hjá nýja Skeljungi.
Nýi Skeljungur er ekki sá sami
og gamli Skeljungur var í áranna
rás. Í kjölfar uppskiptingar Skelj-
ungs hf. þann 1. desember 2021 var
Skeljungur ehf. stofnað og er nú
gamli Skeljungur orðin Skel fjár-
festingarfélag. Forstjóri Skeljungs
ehf. er Þórður Guðjónsson.
„Skeljungur hefur gengið í
gegnum miklar umbreytingar
í kjölfar uppskiptingarinnar á
gamla Skeljungi og þar af leiðandi
hafa fyrirtæki og almenningur
kannski ekki uppgötvað fyrir
hvað nýi Skeljungur stendur í dag.
Okkur er stundum enn ruglað
saman við bensínstöðvarekstur,
eins og var aðalsmerki Skeljungs
hér áður fyrr, og það ruglar fólk
eðlilega í ríminu. Nú er búið að
skipta gamla Skeljungi í þrjú
félög: Gallon sem rekur tanka og
aðra innviði, Orkuna sem rekur
eldsneytisstöðvar, fjölda smávöru-
verslana og fleira, og svo Skeljung
sem starfar fyrst og fremst á
fyrirtækjamarkaði og er með sitt
eigið dreifikerfi fyrir eldsneyti. Við
mætum því á olíubílnum beint til
verktaka um gjörvallt landið, ef
svo ber undir, og erum að auki með
bátadælur víðs vegar um landið,“
útskýrir Jóhanna.
Í kjölfar stofnunar nýja félagsins
var unnið að endurmörkun fyrir
nýja Skeljung.
„Stefna okkar hjá Skeljungi
er að þjóna orkuþörf fyrirtækja
til framtíðar á hagkvæman og
öruggan hátt, og í sátt við samfélag
og umhverfi. Frá fyrsta degi stefnu-
mótunar var ákveðið að sjálfbærni
skyldi vera ein af meginstoðunum
í stefnu félagsins og því var stofnað
sérstakt svið tileinkað sjálfbærni
og stafrænni þróun á liðnu ári,“
greinir Jóhanna frá.
Fremst í grænum orkugjöfum
Undir lok síðasta árs samþykkti
stjórn Skeljungs nýja sjálfbærni-
stefnu sem endurspeglar vilja
félagsins til að hafa jákvæð áhrif
á þróun samfélagsins og þess
umhverfis sem félagið starfar í,
ásamt því að draga úr neikvæðum
áhrifum þess.
„Við vitum að grænir orkugjafar
munu verða í aðalhlutverki í orku-
skiptum heimsins,“ segir Jóhanna.
„Við tökum þeirri áskorun og
stefnum að því að vera fremst í
sölu og dreifingu á orkutengdum
þjónustuþáttum til atvinnulífs-
ins. Félagið vill vera drifkraftur í
orkuskiptum með öflugri sölu- og
viðskiptaþróun, framúrskarandi
stafrænni tækni og vel samþættu
þjónustuframboði.“
Jóhanna segir olíuiðnaðinn
standa frammi fyrir miklum
áskorunum þegar kemur að því að
draga úr mengun, en mestu máli
skipti hvernig tækniþróun verði á
næstu árum.
„Skeljungur er á fyrirtækja-
markaði og þjónar stórum
atvinnugreinum, svo sem flug-
iðnaði, sjávarútvegi og landbúnaði.
Það á eftir að koma í ljós hvaða
græna eldsneyti verður ofan á.
Að öllum líkindum verður það
blanda af mörgum mismunandi
lausnum, allt eftir því hvernig
tækninni fleygir fram. Okkar
áskorun er að þróa vöruframboð
í takti við þá þróun sem mun eiga
sér stað á næstu árum. Þar mun
ólíklega verða til töfralausn sem
kemur á orkuskiptum í íslenska
atvinnugeiranum, heldur blanda
af ýmsum orkugjöfum sem verða í
senn grænni og umhverfisvænni.
Allt tvinnast það inn í sjálfbærni-
stefnuna okkar um að þróa vöru-
framboð í átt að samdrætti í losun
hjá viðskiptavinum félagsins og
hjálpa þeim að innleiða nýja orku-
gjafa hjá sér.“
Rafeldsneyti til Íslands
Á sjálfbærnivegferð Skeljungs er
lögð áhersla á markvissa þróun
vöruframboðs með áherslu á
gæði, umhverfisvænni valkosti,
persónulega þjónustu, hraða og
áreiðanleika.
„Vöruframboð er einn lykilinn í
að aðstoða viðskiptavini okkar við
að draga úr sinni losun. Við höfum
unnið markvisst að því að auka
vægi orkugjafa, sem og annarra
vara í vöruframboði Skeljungs,
sem valda minni losun og við
ætlum að halda áfram að þróa
vöruframboð okkar í átt að sam-
drætti í losun hjá viðskiptavinum
félagsins,“ segir Jóhanna.
Sem dæmi um slíkt verkefni má
nefna viljayfirlýsingu við danska
sjóðinn CI Energy Transition Fund
I um að skoða möguleikann á að
kaupa rafeldsneyti af sjóðnum og
dreifa því og selja, meðal annars til
íslenskra notenda.
„Þetta eru fyrstu viljayfirlýsing-
ar sinnar tegundar sem gerðar eru
á Íslandi,“ segir Jóhanna.
Skeljungur áætlar einnig að hefja
sölu á E10 eldsneyti til heildsölu-
viðskiptavina á fyrri hluta þessa
árs.
„Það er eldsneyti sem inniheldur
10 prósenta blöndu af etanóli á
móti 90 prósenta hlutfalli jarð-
efnaeldsneytis, eða svokallað E10
eldsneyti. Til samanburðar inni-
heldur bensín sem selt er á bensín-
stöðvum í dag 5 prósenta blöndu af
etanóli á móti 95 prósenta hlutfalli
af jarðefnaeldsneyti,“ upplýsir
Jóhanna.
„Etanól er framleitt úr korni og
öðrum lífrænum úrgangi, en með
því að blanda því saman við jarð-
efnaeldsneyti má draga úr áhrifum
útblásturs við brennslu eldsneytis-
ins og draga þannig úr kolefnis-
fótspori farartækja og vinnuvéla
sem það nota. E10 mengar þar
af leiðandi minna en E5 og flest
ökutæki og vélar geta brennt E10
eldsneyti,“ útskýrir Jóhanna.
Einnig er vert að geta þess að á
næstu misserum verður Skeljungur
fyrstur til að hefja innflutning á
lífdísilblandaðri skipadísilolíu.
„Allt eru þetta stór skref og það
mun taka tímann sinn að koma
Metnaðarfull,
jákvæð og tilbúin
í breytingarnar
slíkum verkefnum á koppinn en
vonandi taka fyrirtæki í íslenskum
sjávarútvegi vel í að byrja að inn-
leiða lífdísilblandað eldsneyti á
skip sín,“ segir Jóhanna.
Kolefnisspor óbeinnar losunar
Fyrsta sjálfbærniskýrsla Skeljungs
ehf. hefur nú litið dagsins ljós
og er aðgengileg á vef félagsins,
skeljungur.is/sjalfbaerni. Hún er
metin út frá allri starfsemi félags-
ins, umhverfisþáttum, félagslegum
þáttum og stjórnarháttum.
„Með því að birta sjálfbærni-
skýrsluna samkvæmt GRI-staðl-
inum og UFS-viðmiðum Nasdaq
gefur Skeljungur hagsmunaaðilum
skýrari mynd af starfsemi sinni og
áhrifum félagsins á samfélagið,“
segir Jóhanna.
Í ár steig Skeljungur það skref að
birta kolefnisfótspor seldra vara í
kolefnisbókhaldi sínu fyrst félaga á
olíumarkaði.
„Það er áskorun fyrir okkur að
kortleggja kolefnisspor óbeinnar
losunar í umfangi 3, en jafnframt
nauðsynlegt skref á þeirri vegferð
sem við erum á,“ segir Jóhanna.
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir er
framkvæmda-
stjóri sjálfbærni
og stafrænnar
þróunar hjá
Skeljungi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Skeljungur
þjónustar nú
mestmegnis
fyrirtæki og er
með sitt eigið
dreifikerfi sem
flytur eldsneyti
um land allt.
MYND/AÐSEND
14 kynningarblað 29. mars 2023 MIÐVIKUDAGURSjálfbærni í rekStri