Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.03.2023, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 29.03.2023, Qupperneq 56
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 bakþankar | Vatnagörðum 14 104 Reykjavík litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is UMHVERFISVÆN PRENTUN Láru G. Sigurðardóttur „Sko, ef þú ætlar að búa til barn með mér þá ert þú ekkert að fara að sulla í víni eða reykja,“ sagði vinkona mín við nýbakaðan eiginmann sinn um árið þegar þau voru í barn- eignahugleiðingum. Tilvonandi mæður eru hvattar til að haga sér á vissan hátt, hyggist þær fjölga mannkyninu. Passa upp á að taka vítamín með fólínsýru. Hvorki neyta nikótíns né drekka áfengi. Gæta að lyfjum sem þær innbyrða. Á sama tíma er karlpen- ingurinn gjarnan undanskilinn. Stikkfrír. Engu er líkara en það skipti engu máli þótt hann stundi villt líferni á sama tíma og hann er á fullu að framleiða sáðfrumur sem senn gætu orðið að manneskju. Til að nýtt líf kvikni í móður- kviði þarf tvo til – líkt og kunnugt er. Móðir leggur til eggfrumu sem myndaðist þegar hún sjálf var ein- ungis níu vikna fóstur í móðurkviði – líferni ömmu kemur því einnig við sögu. Við getnað er eggfruma því oft áratuga gömul. Aðra sögu er að segja með sáðfrumur sem eru í stöðugri endurnýjun og þurfa á þriðja mánuð til að ná þeim þroska að geta frjóvgað eggfrumu. Við vitum að ýmislegt í líferni og umhverfi hefur áhrif á erfðaefni, þá sérstaklega hjá frumum sem endurnýja sig hratt. Þar á meðal eru sáðfrumur. Vissulega er fleira sem spilar inn í þegar nýr einstaklingur verður til, en ég held að vinkona mín hafi haft eitthvað til síns máls. Karlmenn eru ekki stikkfríir frekar en við kvenmennirnir. Áhugi vísindamanna á sáðfrumum hefur kannski verið takmarkaður en við vitum t.d. að nikótín fækkar þeim. Og væri ég ekki hissa ef líferni feðra hefði meiri áhrif en látið er með. Allavega munu mínir synir fá þessa óþægilegu ræðu frá mömmu sinni þegar þar að kemur. n Sáðfrumur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.