AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Side 16

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Side 16
Langidalur, Þórsmörk. meginreglum sjálfbærrar þróunnar, sem skjalfestar voru meö Ríó-yfirlýsingunni árið 1992, er svonefnd nytjagreiðsluregla, sem kveður á um það að þeir sem nýta náttúrlegar auðlindir skuli greiða þann kostnað sem til fellur við að vernda og viðhalda þessum nátt- úruauðlindum. Þetta á við um öræfi og náttúruperlur íslands, ekkert síður en t.d. um olíulindir eða jarð- hita. í þessu sambandi má nefna að nýlega sam- þykkti Alþingi ný lög um náttúruvernd þar sem m.a. er að finna heimild til gjaldtöku fyrir aðgang að náttúruverndarsvæðum og skal tekjunum varið til eftirlits, lagfæringar eða uppbyggingar á sama stað og þeirra var aflað. En það eru fleiri þættir í umhverfisvernd okkar en náttúruvernd, óbyggð víðerni og sérstæð náttúrufyrir- bæri, sem skipta máli fyrir ferðaþjónustuna. Ástand umhverfismála í byggðum landsins hefur hér mikla þýðingu. Förgun sorps og ástand skolpmála í þétt- A Hólsfjöllum. býli, svo ekki sé talað um sorpförgun og ruslahauga inn til sveita, eru þættir sem skipta ímynd ferðaþjón- ustunnar miklu máli þó staða þessara mála sé á eng- an hátt á hennar valdi. Á undanförnum árum hefur umhverfisráðuneytið í samvinnu við viðkomandi aðila beitt sér fyrir margs -g; konar átaksverkefnum í þessum málaflokkum. Þannig - hafa í samvinnu ráðuneytisins og Sambands íslensk- ra sveitarfélagaveriðgerðaráætlanirumsamræmda g sorphirðu í öllum landshlutum utan höfuðborgar- | svæðisins og eru þær ýmist komnar eða u.þ.b. að ° koma til framkvæmda. Þá sér ráðuneytið um að úthluta stuðningi ríkisinstil þeirra sveitarfélaga sem fara út í fullnægjandi aðgerðir í fráveitumálum fyrir árið 2005 sem nemur allt að 20% af kostnaði þeirra framkvæmda. Einnig eru í farvatninu sértækar að- gerðir eins og förgun spilliefna, endurvinnsla land- búnaðarplasts og söfnun brotamálma. Af verkefnum sem eiga beinlínis að styrkja ferða- þjónustuna má nefna stofnun þjóðgarðs á utanverðu Snæfellsnesi, sem nú er unnið að, og lög um vernd Breiðafjarðar, sem samþykkt voru á sl. ári. Breiða- fjörðurinn er fyrsta sjávarsvæðið hér á landi sem fær einhverja vernd og hefur það þegar vakið nokkra athygli erlendis. Þessi svæði munu í framtíðinni geta létt nokkuð af þeim vaxandi þrýstingi sem er á aðra vinsæla ferðamannastaði og liggja jafnvel undir skemmdum vegna óhóflegs álags. Meðal annarra verkefna ráðuneytisins sem eiga að geta styrkt vistvænar rætur ferðaþjónustunnar er veruleg uppbygging Náttúrufræðistofnunar íslands við að skrá náttúru landsins og stofnun náttúrustofa í öllum landshlutum.en þegar hefur verið ákveðið að stofna náttúrustofur með ríkisaðild í Neskaupstað, í Vestmannaeyjum, á Bolungarvík og í Stykkishólmi. Náttúrustofur í landshlutunum gætu að mínum dómi reynst ákjósanlegur bakhjarl ferðaþjónustunnar við þróun nýrra ferðamannastaða svo og við gerð fræðsluefnis um einstaka staði fyrir ferðamenn. 1 Að síðustu vil ég nefna í þessu sambandi vinnu sem 2 nú er í gangi við tillögugerð að skipulagi miðhálend- isins. Vernd og nýting miðhálendisins hefur fram til cq' I* þessa verið án heildaryfirsýnar, sem e.t.v. skipti minna § máli meðan svæðið var lítið sem ekkert nýtt nema til beitar. Með vaxandi áhuga á nýtingu svæðisins á 14

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.