AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Blaðsíða 59
H jördís
Sigurgísladótfir.
Sigríður
Ólafsdóttir.
Erla Sólveig
Óskarsdóttir.
Védís Jónsdóttir.
%
Manfreð
Vilhjálmsson.
Gunnar
Magnússson.
Guðjón Bjarnason.
Valgerður
Guðlaugsdóttir.
Anna María
Sveinbjörnsdóltir.
Unnur
Halldórsdóttir.
snagaformiö“,og meö þessu á ég viö aö einhver ann-
ar hlutur, sem ekki er snagi, er notaöur sem snagi,
vegna samlíkingar við snagaformið. Myndhverf-
ingarnar sem menn kjósa sér má ennfremur skipta
niður í tvær kategóríur. Annars vegar þeir sem velja
sér náttúruform og hins vegar þeir sem notfæra sér
aðra manngerða hluti.
Snagaformið, eins og við ímyndum okkur það, nokk-
urs konar krókur sem vísar upp á við, býður upp á
samlíkingu við króklega hluti í náttúrunni. Nokkrir nota
horn sem mótív í sína snaga, eins og Sigþrúður Páls-
dóttir sem notar hrútshorn. „Starkaður" Tinnu Gunn-
arsdóttur er járnafsteypa af hvaltönn, en nafnið er
dulin tilvísun í hinn nafntogaóa hönnuð Phillip Stark.
Snagi Þorsteins Geirharðssonar, „5“, er gerður úr
fimm krókum sem rennt er inn í sívalning úr ryðfríu
stáli og verður eins og krumla sem býður fram þjón-
ustu sína. Þeir Guðjón Bjarnason og Ástþór Ragnars-
son gæla við hugmyndina um typpi sem snaga, og
Stefán G. Karlsson hefur útbúið „snaga fyrir munn“,
sem er eins og brjóst með geirvörtu.
Allmargar hugmyndir ganga út á það að gefa kunn-
uglegum hlutum nýtt hlutverk, þ.e.snagalegt hlutverk.
Þessi leið gefur færi á óvæntum og skemmtilegum
útúrsnúningum. Manfreð Vilhjálmsson útbýr herðatré
á smekklegan hátt sem snaga; á öðrum stað skeytir
hann saman klósettstatívi og tennisbolta. Músagildra
Unnar Halldórsdóttur er ekki árennileg en gegnir
áreiðanlega sínu hlutverki ef maður gætir að puttun-
um. Dagur Hilmarsson skiptir út snaga fyrir stólbak.