AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Blaðsíða 68
o
c
z
z
>
71
o
c
z
z
>
71
in
SKJOLVEGGIR KER OG GARÐHUSGOGN
iíililiils
Hiiiiiiii iiiiiiiiÉ! il!
fiaciliiEC iiiiiaMfiti j'
Skjólgirðingar, klifurgrindur, garðhúsgögn ofl
Rósabogar notaðir til brúargerðar í garðinum
ú fer sól að hækka á lofti um leið og
athafnaþörf fólks eykst. Margir hafa ef-
laust hugsað sér að færa sitthvað til
betri vegar í garðinum hjá sér í sumar.
Stöðugt algengara er að fólk noti skjólveggi í garða til að
mynda skjól og byrgjainnsýn. Effólknotarhugmyndaflugið
geta trévirki í görðum orðið að hinu mesta augnayndi. Best
er ef heildarsvipur staðarins er látinn ráða efnisvali og
endanlegri útfærslu. Timbur í görðum hefur einkum verið
notað í gerð skjólveggja/girðinga, palla og stoðveggja
ýmisskonar.
Flestar verslanir selja timbur í lausu en færri selja tilbúnar
garðeiningar, þ.m.t. tilbúnaskjólveggi og rósaboga. Slíkar
tilbúnar einingar eru nokkuð algengar i sérhæfðum
garðyrkjuverslunum.
SKJÓLGIRÐINGAR
Við val á skjólgirðingu eru það ákveðin atriði sem menn
verða að hafa í huga áður en ákvörðun er tekin. Þar ber
helst að nefna: hlutverk, staðsetningu, efnisval, hæð, útlit
og val á undirstöðu. Mikilvægt er að menn setji skjólveggi
þar sem þeir þjóna best sínu hlutverki. Endanleg útfærsla
og árangur ræðst oft af efnisvali og samsetningu þeirra
þátta sem skapa heildarmyndina. Skjólgirðingar hér á landi
gegna veigamiklu hlutverki við skjólmyndun auk þess að
vera öryggisþáttur þar sem börn eru að leik. Oft eru
skjólgirðingar afmarkandi eða rýmismyndandi þáttur í
görðum. Einnig eru skjólgirðingar stundum notaðar til að
tákna lóðarmörk og byrgja innsýn frá vegfarendum og
nágrönnum. Mikilvægt er að vanda mjög allan frágang því
öll smáatriði skipta máli þegar að lokafrágangi kemur.
í upphafi verður fólk að gera sér grein fyrir hver tilgangurinn
er með girðingunni. Ef ætlunin er að skýla gróðri fyrstu
árin er 40-75 sm há girðing oftast nægjanleg. Girðing sem
hindra skal gangandi umferð þarf að vera a.m.k. 75 -130
sm há. Ef hindra skal innsýn en halda eftir möguleika á
útsýni frá gluggum er hæfileg hæð 130 -150 sm. Ef byrgja
skal innsýn inn i garðinn þarf skjólveggur að veraa.m.k.180
- 200 sm hár. Sækja þarf um leyfi til bygginganefnda ef
girðing er höfð hærri en 100 sm. Einnig þarf að kanna
hvort ákvæði séu i deiliskipulagi um girðingar.
Staðsetning girðingar er veigamesti þátturinn sem snertir
hlutverk, skjólmyndun, heildarsvip lóðar og rýmismyndun.
Möguleikar geta verið óteljandi á mismunandi útfærslum
sem ásamt staðsetningu skipta miklu máli hvernig til tekst
að skapa góðan íverustað fyrir fólk og gróður. Færst hefur
í vöxt að fólk leiti til fagfólks, s.s. landslagsarkitekta,
varðandi hönnun og staðsetningu skjólveggja. Ef
skjólveggur á að vera góður loftbrjótur má hann ekki vera
alveg heill því þá getur myndast tómarúm af lofti fyrir innan
vegginn sem veldur oft hvirfilvindi. Elæfileg opnun á klæðn-
ingu er talin vera 20-25% af heildarfletinum.
Varðandi útlit skjólgirðinga geta litaval og ýmis smáatriði
haft mikið að segja. Æskilegt er að litur skjólgirðingar
stjórnist af heildarsvip garðsins og samrýmist litavali
hússins. Útlit skjólgirðingar stjórnast einnig af frágangi efri
brúnar girðingar. Toppskraut girðingarinnar getur t.d. verið
þverbönd sem gefa girðingunni oft austrænan blæ. Oft er
settur svokallaður hattur ofan á girðingarstaura til að verja
endana og gefa girðingunni skemmtilegri svip. „Það skal
vanda sem lengi á að standa,,, segir máltækið. Til þess
að skjólveggur standist vel ágang sviptivinda er mikilvægt
að undirstaðan sé góð. Yfirleitt þarf að grafa fyrir stólpum
og steypa þá niður og fer dýptin á holunni eftir jarðveginum
á hverjum stað. Oft er reglan sú að helmingur hæðar skjól-
veggjarstólpans yfir jarðvegi þarf að grafast niður i jarð-
veg. Ef jarðvegurinn er malarkenndur er hægt að notast
við fleyga („Metpost") sem reknir eru ofan í jörðina en þá
þarf að púkka vel að fleygunum. Við val á timbri sem nota
skal utandyra er best að nota þrýstifúavarið timbur þar
sem slík fúavörn eykur endingu viðarins allt að tífalt. Oftast
er notast við heflaðan við en stundum getur óheflaður viður
66