AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Blaðsíða 72
með íslenskt byggingarefni og var leikur að Ijósi
sérstaklega skemmtilega útfærður í mörgum til-
lögum. Leit dómnefndar var að sérstökum íslensk-
um einkennum og er að finna margar skemmtilegar
þjóðlegar tilvitnanir í mörgum tillögunum.
Á sameiginlegum dómnefndarfundi í Berlín 4. - 5.
júní hittust dómnefndirnar fimm frá öllum Norðurlönd-
unum með bestu tillögurnar sem þær höfðu valið hver
í sínu heimalandi og báru saman tillögurnar á sam-
eiginlegu líkani áður en endanleg niðurröðun átti sér
stað. Frá íslandi tók dómnefndin með sér tvær tillögur
sem lentu í 1. og 2. sæti og eftir að tillögunum hafði
verið raðað niður kom í Ijós að höfundur fyrstu verð-
launa tillögunnar var Pálmar Kristmundsson og sam-
starfsmaður hans, var Gunnar B. Stefánsson. Önnur
verðlaun fékk Studio Granda. Þriðju verðlaun fengu
Björk Haraldsdóttir og Keeth Brown. Tvær tillögur
voru keyptar. Höfundurannarrartillögunnarer Guðni
Pálsson og höfundar hinnar tillögunnar eru þau
Albína Thordarson, Reynir Sæmundsson og Þorkell
Magnússon. Eina tillögu tilnefndi dómnefnd sem
athyglisverða tillögu, og er höfundur hennar Guð-
mundur Jónsson.
í umsögn dómnefndar um þá tillögu sem fékk fyrstu
verðlaun segir eftirfarandi: Tillagan byggist á mjög
sterkri hugmynd og sannfærandi meðferð efna og
forma. Ljós aðalbyggingin við Inner Plaza og dökkt
stigahúsið við vatnið hæfa vel skipulagi reitsins að
mati dómnefndar. Vesturhlið hússins mætti þó liggja
beturað koparveggnum. Tværtegundirnáttúrusteins
í andstöðu hvor við aðra virka sannfærandi í samspili
við koparvegginn. Meðferð dagsljóss er mjög ákveð-
in. Eftirtektarverðar eru Ijóðrænar útfærslur glugga í
forsal og stigahúsi, sem nýta skemmtilega möguleika
tjarnarinnar fyrir utan. Hugmynd á gólfi ássins með
hvalbeini í sjávarmöl virkar vel á dómnefnd sem list-
ræn og þjóðleg tilvitnun, sem og ærvambir í glugga
stigahússins. Garðurinn er vel hugsaður og rökstudd-
ur sem Ijósagarður til yndisauka innan frá mænu
hússins, um leið og hann heldur heimþrá starfsmann-
anna við. Tillagan er sérstaklega vel leyst hvað varðar
innra fyrirkomulag, aðlaðandi og vel upplýst rými auk
þess sem hún tekur gott tillit til aðgengis allra. í
tillögunni eru möguleikar á stækkun sendiráðsins.
Það er mat dómnefndar að tillagan geti orðið fagurt
merki íslands í Berlín, en ekki síður sérlega líflegur
og góður vinnustaður.
70