AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Blaðsíða 29

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Blaðsíða 29
verið er að vinna. í reglunum er talað um að atvinnu- rekanda beri að sjá til þess að dagleg skjávinna sé rofin reglulega með hléum eða verkefnum af öðru tagi. Eldri verkstöðvar fá frest til 1. janúar 1997 til að uppfylla öll þau skilyrði sem sett eru til búnaðar og vinnuskipulags í reglunum. Nýjar verkstöðvar, þ.e. þær sem hafa tekið til starfa eftir 15. september 1994, skulu uppfylla öll skilyrði nú þegar. MISMUNANDI ÚTFÆRSLA TÖLVUVERKSTÖÐVA Það er algengt að vinnuaðstæður við tölvur séu allt of þröngar. Jafnvelhefurtölvanásumumvinnustöð- um verið sett á hliðarkálf út frá skrifborði sem ætlaður var ritvél. Það hefur tekið langan tíma fyrir marga að átta sig á því að tölvur gera allt aðrar kröfur til vinnu- rýmis og skipulagningar vinnuumhverfis heldur en ritvélar. Nokkuð er um það að tölvuverkstöðvar séu settar inn í stærri einingu þar sem vinnuaðstæður við tölvu og skrifborðsvinna mynda eina heild. Hnappaborðið er þá oft sett á niðurfellda hillu. Þetta getur verið góð lausn en það þarf að gæta þess að rými á niðurfelldu hillunni sé nægt fyrir bæði hnappaborð og mús. Það er algengt að sjá að hillurnar rúmi alls ekki músina og það veldur vandræðum. Mús sem staðsett er fyrir ofan hnappaborðið er líkleg til að valda óþægindum frá öxlum og úlnlið áður en langt um líður. Önnur lausn getur verið sú að hafa hnappaborðið á skrifborði ef rými er nægjanlegt. Þá verður að vera hægt að stilla hæð skjásins, t.d. setja hann á þar til gerðan arm. Kosturinn við að setja skjáinn á arm er sá að hægt er að breyta fjarlægð frá augum að skjá eftir þörfum. Þegar hnappaborðið er á skrifborði þarf að hækka stólinn meðan unnið er við hnappaborðið til að fá góða líkamsstöðu og því oft nauðsynlegt að hafa fótskemil til stuðnings fyrir fætur. Þriðja lausnin er hefðbundið tölvuborð með hliðarplötum. Það þarf að vera hægt að stilla hnappaborðs- og skjáplötu hvora fyrir sig. Lýsingu þarf að vanda þegar vinnusvæði er skipu- lagt. Lýsing eða birta frá gluggum má ekki endurkast- ast í skjánum. í sumum tilfellum þarf sérlýsingu til lesturs vinnuskjala. Það er mikilvægt að skipuleggja vinnusvæðið fyrst og síðan ákveða lýsingu út frá því. LOKAORÐ Fjöldi íslendinga vinnur að staðaldri við tölvur. Erlend- ar kannanir benda til að óþægindi frá úlnliðum, olnbogum og öxlum sé vaxandi vandamál meðal tölvunotenda. Til þess að draga úr álagseinkennum er mikilvægt að hönnun vinnuaðstöðu sé þannig að hægt sé að vinna í góðri líkamsstöðu. það er einnig mikilvægt að reyna að stytta sem mest þann tíma sem unnið er við tölvu. Á átta tíma vinnudegi ætti helst ekki að vinna lengur en 4 tíma við tölvu og sinna öðrum verkefnum hinn hluta vinnudagsins. þar sem unnið er við tölvur að staðaldri á að taka reglubundin hlé t.d. 5-10 mínútna hlé á klukkutíma fresti eða tveggja mínútna á 20 mínútna fresti. Reglur um skjúvinnu eiga að tryggja öryggi og hollustu þeirra sem vinna við tölvu. Samkvæml reglunum á að: Veita upplýsingar og træðslu Starfsmenn eiga rétt á að fá upplýsingar um alla þætti öryggis og hollustu er tengjast vinnu þeirra við skjá. Þeir eiga einnig rétt á starfsþjálfun. Meta vinnuaðstæður Atvinnurekendur skulu sjá til þess að gerð sé úttekt á skjáverkstöðvum til að meta hvaða áhrif þær hafa á starfsmenn. Athuga ber sérstaklega áhættu fyrir sjón og líkam- legt og andlegt álag. Vinnavið tölvu Hafa samstarf Hafa ber samráð við starfsmenn og tryggja að samstarf geti orðið sem best um öryggismál, aðbúnað og hollustuhætti. • llppfylla lcröfur Nýjar verkstöðvar eiga nú þegar að uppfylla þær kröfur sem fram koma í viðauka reglnanna. Eldri verkstöðvar skal lag- færa fyrir 1. janúar 1997. Reglurnar f jallcs einnig um daglega vinnufilhögun augn- og sjónvernd sfarfsmanna Reglurnar iást hjá Vinnueftirliti rikisins, einnig leiðbeiningabæklingurinn VINNA VIÐ TÖLVU VINNUEFTIRLIT RIKISINS Bíldshöfða 16-112 Reykjavik Sími 567 2500 - Bréfsími 567 4086 y Ég hvet fólk til aö athuga vel vinnuaðstæður sínar til að stuðla að vellíðan og góðri heilsu - til hagsbóta fyrir alla. ■ 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.