AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 25
greindir eru styrkleikar og veikleikar ásamt ógnunum
og tækifærum. Aöilum aö verkefninu er skipt í eftir-
farandi vinnuhópa og eru að jafnaði 5-7 manns í
hverjum hópi:
Borgarstofnanir Umhverfi/útivist
íþróttir/þjálfun/hollusta/heilsa Menning/andinn
Atvinnulíf /iönaður Verslun og viðskipti
Samfélagsþjónusta Veitingar/gisting næturlff
Afþreying Skólar/námskeið
Með því að renna yfir þennan lista geta lesendur
betur áttað sig á hverjar áherslurnar eru í verkefninu.
Helmingur hópanna er nú þegar langt kominn í vinnu
sinni og hafa margar góðar hugmyndir um úrbætur
veriðsettaráblað. Þáereinnig hafin, ávegumferða-
málanefndar Reykjavíkurborgar, viðhorfskönnun
meðal erlendra ferðamanna. Spurt er um afstöðu
þeirra til ýmissa þátta, s.s. umhverfisins, merkinga,
upplýsingamiðlunar, framboðs á afþreyingu o.m.fl.
Það verður fróðlegt að sjá niðurstöður þessarar
könnunar en þetta er í fyrsta sinn sem leitað er eftir
þessum upplýsingum.
SKIPULAGSMÁL OG FERÐAÞJÓNUSTA
Fólk áttar sig æ betur á því að við uppbyggingu
borga og bæja þarf að taka tillit til ferðamanna enda
nýtist uppbygging sem gerð er í nafni ferðaþjónustu
ekki síður íbúum viðkomandi svæðis. Nú stendur yfir
endurskoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur og hafinn
er undirbúningur að nýju deiliskipulagi fyrir miðborg-
ina. Höfundar skipulagsins munu leita í smiðju stefnu-
mótunarverkefnisins enda margar góðar hugmyndir
um úrbætur settar fram þar eins og áður sagði.
Einna mestu máli skiptir að vel takist til við skipulag
miðborgarinnar enda sækja flestir þangað. Sú þróun
sem átt hefur sér stað þar á undanförnum árum er
bæði til hagsbóta og vandræða fyrir ferðamenn. Fjöl-
breytt verslun við Laugaveginn og einstaklega
skemmtileg endurlífgun Skólavörðustígsins er til
hagsbóta fyrir ferðamenn ekki síður en heimamenn.
Fljótlega verður hafist handa við frágang lóðarinnar
við Hallgrímskirkju sem dregurtil sín um 100 þúsund
ferðamenn á ári hverju.
23