AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Side 32

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Side 32
Þótt viö íslendingar eigum auðvelt meö aö hrífast af andstæöum í náttúrunni sjálfri, þá veitist mörgum erf- itt aö sjá fegurð í kröftugum andstæðum hins mann- gerða og þess náttúrlega.Það viðhorf er algengt, að aðal íslands sem ferðamannalands sé hin ósnortna náttúra og því eigi byggingar og önnur mannvirki helst ekki að sjást, því þau skaði hina „ósnortnu ímynd” landsins. Þetta sjónarmið er skiljanlegt, því vissulega hefur stöðum hér á landi verið spillt með flausturslegri uppbyggingu. Það lýsir þó ákveðinni uppgjöf að vilja fela öll ummerki um tilvist mannsins í þessu landi. Alltof oft hefur stöðluðum, tilbúnum húsum verið ekið á ákveðna áningarstaði í óbyggðum og þau sett niður með það eitt að leiðarljósi að ekki setji að þeim snjó að vetri. Þetta hefur þýtt staðsetningu uppi á hæð eða hól þar sem vel blæs um bygginguna og festir ekki snjó. Um leið verða mannvirkin mjög áberandi, sjást víða að og það sem verra er, eru ekki í neinum tengslum við umhverfið. Hvorki myndastandstæður né samruni og húsið nær ekki að grípa „anda” staðarins því það er ekki hannað með neinn ákveðinn stað í huga.. Segja má að það sé stefna út af fyrir sig að leysa mannvirkjagerð á öllum ferðamannastöðum landsins með tilbúnum sumarbústaðabyggingum, norskum fjallakofum eða öðru því líku. Slíkar byggðir sumar- húsa vítt um landið, oftast í viðkvæmu landi, eru að verða „aðalsmerki” íslenskrar náttúru og vísbending um steingelda afstöðu til umhverfisins. Hlutverk byggingar, hvar sem hún kann að vera stað- sett, er umfram annað að grípa „anda” staðarins og styrkja hann. Stundum getur það falist í einskonar þyrpingu húsa sem láta lítið yfir sér með efnis- og litaval, sem hálfpartinn týnist í umhverfinu. Annars staðar getur þetta þýtt sterka og áberandi byggingu sem kallast á við landslagið í kring. Er með öðrum orðum í andstöðu við umhverfi sitt. Á sama hátt og sporna verður við raski á viðkvæmri náttúru er mikilvægt að mannvirkjum og mannvistar- leifum sé ekki raskað að ástæðulausu, jafnvel þótt þau gegni ekki lengur upphaflegu hlutverki sínu. í augum margra ferðamanna er íslenskt landslag ekki síður áhugavert sem „menningarlandslag”, vegna sögunnar sem því tengist og vegna þeirra ummerkja, sem lífsbarátta þjóðarinnar hefur skilið eftir sig. Þannig eru vissir staðir, t.d. á Ströndum og undir Eyjafjöllum, aðdráttarafl fyrirferðamenn vegna þeirrar sögu sem býr í yfirgefnum mannvirkjum. Tengsl þeirra við umhverfi sitt felast oftar en ekki í auðn þeirri og veðrun efnanna sem þau skarta, svona yfirgefin og hrá, þannig kallast þau á við hrjóstrugt og óræktað umhverfi sitt. í stað þess að jafna mannvirki við jörðu má varðveita þau sem sögulegar minjar. Jafnt strandaður skips- skrokkur, hálfur á kafi í malarkambi, sem tóftir torf- bæja eða hálfhruninn húsgafl, getur haft ómetanlegt umhverfisgildi sem sögulegur vitnisburður um lífs- baráttu fyrri tíma. „ANDI STAÐARINS” Vert er að minna á að stór hluti allrar ferðamennsku í heiminum gengur út á að fara frá einum stað til annars í þeim tilgangi að skoða manngerða hluti í sínu náttúrlega samhengi. Hér er átt við það sem á fagmáli hefur verið kallað „genius loci” eða „anda” staðarins. Fræg dæmi um slíkt eru Akropolis í Aþenu, Katsura í Kyoto og Taj Mahal í Agra í Indlandi. Norski fræðimaðurinn og arkitektinn Christian Norberg- Schulz hefur gert tilraun til að skýra hvað felst í hugmyndinni um „anda staðarins”. Hann hefur sett fram tilgátu um þrenns konar frumgerðir landslags (archetypes): „Kosmískt landslag” eða „eyðimerkurlandslag”, þar sem „himinhvolf yfirgnæfir jörð”. Einkenni eru þrúg- andi sólarljós, kaldar nætur og endalaus víðátta. „Rómantískt landslag” eða „norrænt landslag”, þar sem jörðin skyggir á himinhvolfið. Veðurfar og birta eru sífellt að breytast og margbreytileiki einkennir staðhætti og landslag. „Klassískt landslag” eða „landslag Miðjarðarhafsins”, þar sem birta og umhverfi einkennist af jafnvægi og stöðugleika. Vegna skógleysis og berangurs í íslensku landslagi er hið sjónræna umhverfi afar viðkvæmt. Jafnvel hin smæstu mannvirki sjást úr órafjarlægð. Gróðurleysið og víðsýnin veldur því að fara verður með gát í alla 30

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.