AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Qupperneq 49
ráðuneytisins um gistingu og veitingastaði auk þess
sem tekið var mið af þeim kröfum sem gerðar eru til
bændagistingar i öðrum Evrópulöndum og þær stað-
færðar. Ferðaþjónustubændur sjálfir áttu mikinn þátt
í vinnslu þessa máls og má segja að FFB sé frum-
kvöðull í íslenskri ferðaþjónustu hvað flokkun og
virkt gæðaeftirlit varðar.
MARKAÐSMÁLIN
Eins og áður hefur komið fram gaf það ekki góða
raun að treysta einungis á óviðkomandi söluaðila sem
höfðu eigin hagsmuni að leiðarljósi. Árið 1991 stofn-
uðu bændur því sína eigin ferðaskrifstofu og hófu
m.a. skipulagningu ferðhópa sem aka um landið og
gista á ferðaþjónustubæjunum.Einnig hefur verið
lögð mikil áhersla á að gera þjónustuna aðgengilega
söluaðilum og viðskiptavinum og er flokkunin hluti af
því. Uppbygging bæklings FFB er einnig gerð með
upplýsingagildi í huga og er tilgangurinn sá að
upplýsa væntanlega viðskiptavini sem best um þá
þjónustu sem býðst á hverjum stað til að hjálpa hon-
um að velja það sem hann leitar eftir, og í fjölbreyti-
leika þjónustu ferðabænda geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi. Auk flokkunarinnar kemur fram hvort
viðkomandi bær sé með hefðbundinn búskap og
hvort gistingin sé heimagisting eða í einhverri tegund
sérhúsanna sem bændur bjóða.
Fólki kemur oft á óvart hversu mikla gistingu margir
bæjanna bjóða, en samkvæmt bæklingi sem gefinn
var út vorið 1996 er skipting bæjanna sem bjóða gist-
ingu eftir stærðum svona:
6 rúm eða færri: 10
7-15 rúm: 43
16-25rúm: 31
25 rúm eða fleiri: 27
Af þessu sést að rúmlega helmingur bæjanna getur
tekið á móti 16 gestum eða fleiri.
FJÖLBREYTT AÐSTAÐA
Fjölmargar tegundir gistingar eru nú í boði hjá Ferða-
þjónustu bænda og segja má að fjölbreytileiki sé að-
alsmerki þjónustunnar. Fyrst má telja hina hefðbund-
nu heimagistinu á sveitaheimilinu þar sem gestur-
inn býr í herbergi á heimili bændanna. Þessi herbergi
eru oft hefðbundin svefnherbergi, lögð er áhersla á
gæði rúmanna og að nauðsynlegur búnaður sé í her-
berginu. Þannig herbergi tilheyra „flokki l“ samkvæmt
flokkunarkerfi FFB. í mörgum herbergjum er auk hins
hefðbundna búnaðar einnig handlaug og góður
fataskápur og tilheyra slík herbergi „flokki ll“. Þau
eru oft í svokölluðum „sérhúsum", þ.e. húsum sem
annaðhvort hafa verið byggð upp sérstaklega með
ferðaþjónustu í huga eða eru uppgerð eldri hús, oft-
ast íbúðarhús, en æ oftar útihús sem breytt hefur
verið í gistihús - undantekningarlaust með afar góð-
um árangri! Herbergi í „flokki lll“ eru síðan með sér-
baðherbergi. Fer þannig herbergjum mjög fjölgandi
og segja margir sem bjóða allar tegundir gistingar
þau vinsælust. Það gefur vísbendingu um það að
þó ferðafólk hafi áhuga á að komast í snertingu við
náttúrunaog njóta þeirrar persónulegu þjónustu sem
býðstáferðaþjónustu-bæjunum, þáfari kröfurferða-
mannsins vaxandi.
Sumarhús eru einnig vinsæll valkostur sem Ferða-
þjónusta bænda býður og svokölluð smáhýsi, sem
eru minni einingar þar sem einnig er fyrir hendi öll
aðstaða til að hugsa um sig sjálfur, njóta æ meiri
vinsælda. Eldunaraðstaða er einnig oft í boði á
ferðaþjónustubæjunum sem gerir fólki kleift að ferð-
ast á hagkvæmari hátt en ella og er hún afar mikið
notuð. Á flestum bæjunum er að auki í boði morgun-
verður og oft einnig kvöldverður.
Aukin áhersla er lögð á afþreyingu í boði bænda. í
félagi ferðaþjónustubænda eru í dag auk hefðbund-
inna gistibænda aðilar sem standa að bátsferðum,
jöklaferðum, hjólaferðum og gönguferðum, auk hinna
sívinsælu hestaferða og veiði. Víða er komin upp
aðstaða fyrir námskeið, fundi og er aðaláherslan í
markaðsmálum hjá Ferðaþjónustu bænda lögð á að
reyna að lengja nýtingartímann. Sem dæmi um slíkt
má nefna komu skólahópa erlendis frá til að læra„ á
vettvangi" um t.d. jarðfræði og landafræði. Ferða
þjónusta bænda hefur einnig lagt áherslu á menn-
ingarferðaþjónustu, t.d. með samstarfi við evrópskar
fræðistofnanir, og í auknum mæli beint sjónum sínum
að svokallaðri „grænni ferðamennsku" . Gott dæmi
um slíkt eru ferðir sem farnar hafa verið með erlenda
bændahópa undanfarin ár í tengslum við sauðburð
á vorin og göngur og réttir á haustin.
47