AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 60

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 60
 Meðal þess sem kemur fyrir í öðrum tillögum má nefna hurðarhún, vatnskrana, sturtubarka, stólfót, gleraugnaspangir og varalit. Sumar tillögurnar skírskota til hönnunarhefða viðkom- andi greina. Þannig notfæra menn sér efni og aðferðir sem yfirleitt eru ekki sett í samhengi við snagagerð, t.d. snagi Önnu Þóru Karlsdóttur, sem er gerður úr litríkum ullarflóka, sem hún hefur mikið unnið með. Textíl- og fatahönnuðir hafa notað efni eins og vír, hrosshár og útsaum. Aftur á móti er „þjónn“eftir Helgu Rún Pálsdóttur hreint myndverk, í húmorlskum tón, súpuskál með súpu morandi af flugum, en skeiðin í skálinni er snaginn. Nokkur myndverk sem þessi eru á sýningunni og standa sjálfstætt sem myndverk og eru ekki snagar nema af hendingu. Það eru furðufáir snagar sem hægt er kalla „snagapródúkt", eiginlega framleiðsluvöru. Ryðfría stál- og krómdeildin er ekki mjög áberandi. Studio Granda útfærir kunnuglegt snagaform á massívan hátt með stálplötu. Það er öllu meiri léttleiki yfir snaga þeirra Oddgeirs og Guðrúnar Margrétar, en plexiglersvængir þeirra á hjörum eru smekkleg útfærsla á fiðrildamótívi. Sá snagi sem er einna fallegastur í einfaldleika sínum er Ijósasnagi Ásmundar H. Sturlusonar, sem er upplýstur plexíglerstautur sem stendur beint út úr veggnum eins og Ijósleiðari. Nýjar lausnir á „upphengifúnksjón“ snagans eru ekki fyrirferðarmiklar á þessari sýningu, enda býður snag- inn kannski ekki upp á mikið pótensjal til tæknilegrar framþróunar. Þó er ein tillaga, eftir Gulleik Lövskar, nokkurs konar upphengivél fyrir viskustykki, sem er býsna hugvitsamleg. Það er erfitt að átta sig á henni í fyrstu, enda virðist snagi hans snúa á hvolf, en lausnin felst í því að innan í rennu er laus kúla, visku- stykkinu er rennt upp í rennuna og klemmist milli kúlu og tangar. Gréta Guðmundsdóttir gerir hins vegar gys að upphengifúnksjóninni með upphengivél, sem er þeim gagnslausa eiginleika búin að það er hægt að kveikja og slökkva á henni; þegar kveikt er á vélinni þá snýr snaginn upp, en þegar slökkt er á henni þá snýr snaginn niður. Hvar er hinn eiginlegi snagi í þessu öllu saman? Snagi er náttúrlega hvaðeina sem notað er sem snagi-nagli í vegg, þess vegna. En þessi sýning sýnir manni fram á, svo ekki verður um villst, að snaga- hönnun getur leitt mann í ýmsar óvæntar áttir. ■ Gunnar J. Árnason. o cn o o > o c 03 _Q 03 C O) 03 O) o ■O o O) C C 0 CD E C 03 0 œ £ 58 ER ÞITT FYRIRTÆKI SKRÁÐ? Internet: http://www.itn.is/bygglina

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.