AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Side 63

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Side 63
AfsföSumynd NorSlingaholt. ákjósanlegt tæki til aö stýra eða fylgja eftir eða hafa áhrif á atvinnu- og byggðaþróun. Að síðustu raðast íbúðareiningarnar inn í burðareininguna. íbúðarein- ingarnar eru byggðar upp af léttum gólf- og vegg- einingum, og þetta er sá hluti byggingarinnar sem einstaklingarnir eignast. Vegna þess að einingarnar „púpan" er endurseljanlegar, færanlegar og jafnvel endurvinnanlegar, þá eiga einstaklingarnir möguleika á að eignast varanlegri verðmæti en ella. Einfalt er að flytja veggeiningarnar í þar til gerðum gámum landshorna á milli eða spara sér flutningskostnaðinn með makaskiptum á einingum sem passa alls staðar inn í hina stöðluðu burðargrind. íbúðareiningarnar eru byggðar upp úr þremur gerð- um af grundvallareiningum: mismunandi gerðum af tvöföldum útveggjum, eldhús-/baðeiningu og milli- veggjum. Allar íbúðir hafa auk þess einkagarð, sem oftast er í samhengi við innganga. Við útveggina er 60 cm bil sem alltaf er eitt af þrennu: geymsla, hirsla eða autt svæði með eða án inn- réttingar, sem getur orðið hluti af rýminu. Þessu 60 cm bili er alltaf hægt að loka með hurðum eða tjöldum og getur það þannig tekið þátt í að auka einangrun íbúðarinnar og minnka samtímis þörfina fyrir einangr- unarefni í útvegg. Einnig getur það nýsttil sólarupp- hitunar í þeim tilfellum sem útveggurinn er úr gleri. Tækni- og upplýsingahraðbrautin á sér þarna sama- stað, og ofnar eru staðsettir í innra vegglífi. Sorp- kassar eru í þessu bili með aðgengi utanfrá. Þeir eru sýnilegur hluti af arkitektúrnum og gefa ákveðnar tengingar við efnisnotkun í byggingunni: gosdósir gætu orðið álklæðning; endurunnið gler nýst í glugga; plast í klæðningar; endurunninn pressaður pappír nýttist í milliveggi og safnkassinn skaffað gróðurmold í garðinn. Inntaksklefi fyrir eldhús-/bað- einingu kemur inn í þetta bil, með mælaálestri utanfrá. í eldhús-/baðeiningunni liggja lagnir efst og neðst og baðið verður rými myndað af einingunni. Aðferðafræðin sem hér er lýst gefur möguleika á Norðlingaholt vesturútlit. 61

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.