AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Qupperneq 76

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Qupperneq 76
Harry Bertoia, hægindastóll með háu baki og skemill, 1952 (Ijósm. Knoll) Mario Bellini, „412 Cab.", 1977 (Ijósm. Cassina) lokaöar, „verndandi" einingar eru stólar æ opnari og með sínum hreinu, einföldu formum eiga þeir sífellt rlkari þátt I skipulagi og uppbyggingu rýmisins. Þessi þróun er afar skýr til að mynda hjá Frank Lloyd Wright og nær hápunkti sínum í stólum Charles R. Mackin- tosh, sannkölluð rýmisverk er virðast einungis ætluð fólki sem er beint í baki og sjálfsmeðvitað. Byltingarkennd form tengjast oft byltingarkenndum hugmyndum og tíðaranda. Meðan leti og dáðleysi ofdekraðrar yfirstéttar formgerðust I þungum, út- skornum og bólstruðum hægindastólum Viktoríutíma- bilsins, gerðu hin nýju, beinu og opnu húsgögn þær kröfur til notenda sinna að vera vakandi, atorkusamir og meðvitaðir. Við lok heimsstyrjaldarinnar fyrri eru mörkin milli hinnar gömlu og nýju hugsunar orðin enn skýrari, á tímum þegar öll gömlu gildin virðast vera sigld í strand og einungis hafa leitt til undangeng- inna hörmunga. Kröfurnar til mannsins sem ábyrgs og ósérhlífins einstaklings er ber hag annarra fyrir brjósti verða hluti af forsendum nýs og betra þjóðfél- ags sem byggja skal á rústum hins fyrra. Stólar Riet- velds endurspegla vel þetta viðhorf, þeir eru ekki einungis beinir og opnir, heldur er öll bólstrun horfin, þ.e. allt sem minnir á fyrri þægindi og tíma. Alvar Aalto notar bogadregin form í stað beinna, en hæg- indastólar hans ganga út frá sama einfaldleika sem jaðrar við strangleika. Stálhúsgögnin sem einkenna tímabilið milli stríða byggjast á sömu forsendum, þ.e. að þau eru eins efnislítil og unnt er og þar með and- stæðaefnishyggju; léttleiki þeirra og hreyfanleiki eru andstæðir íhaldssemi og þröngsýni. Fyrir nútíma- manni 3. og 4. áratugarins er seta vissulega verknað- ur og' samræmist vel þeim kröfum sem gerðar voru m.a. til íþróttaiðkunar og góðs líkamlegs - og andlegs - ásigkomulags. Eftirstríðsárin eru tími aukinnar velmegunar og upp- gangs í anda bandarískra lífshátta. Maðurinn kemur sér þægilega fyrir í hinu nýja neysluþjóðfélagi og stól- ar fara aftur að laga sig að þörfum hans og formum. Ný gerviefni og framleiðsluaðferðir auðvelda enn fremur þessa nýju aðlögun og stólar einkennast eink- um af plast- eða svampsætum mótuðum í heilu lagi. Þessi stefna nær hámarki sínu í lok 7. og upphafi 8. áratugarins þegarfólk lifði nánast liggjandi í svamp- eða kúlustólum, í kjölfar aukins þjóðfélagslegs og líkamlegs frelsis. Maðurinn vaknar upp af velmegunardraumnum við olíukreppuna 1975 og er kippt aftur niður á jörðina. Einfaldir, leðurklæddir stálstólar minna hann á nauð- syn rökrænnar og skýrrar hugsunar og vinna gegn tilhneigingum til of mikils kæruleysis. Það er engin tilviljun að framleiðsla hefst á ný á stálstólum evr- ópsku módernistanna, þá orðnir „sígildir. Þessi sjálfs- ögun markar að hluta til 9. áratuginn, þrátt fyrir tíma- bundinn velmegunarkipp. Hinn framsækni „uppi“ stundar líkamsrækt og ný húsakynni eru einföld og opin, allt að því meinlætaleg. Stólar gegna þar á ný grafísku hlutverki með sínum grönnu, dökku línum 74
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.