AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 83
Gjörðu svo vel
og aktu í bæinn!
Sex glæsileg bílahús
í hjarta borgarinnar
Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum komið
myndarlega til móts við þörfina á fleiri bílastæðum
í hjarta borgarinnar með byggingu bílahúsa,
sem hafa fjölmarga kosti framyfir önnur bílastæði.
Fyrir það íyrsta er engin hætta á að tíminn renni
út og gíróseðill bíði undir rúðuþurrkunni þegar
bilhnn er sóttur. í bilahúsum er einfaldlega borgað
fyrir þann tíma sem notaður er.
Annar stór kostur húsanna tengist misgóðu
veðurfari okkar ágæta lands. í roki og rigningu,
kulda og skafrenningi er þægilegt að geta gengið
þurrum fótum að bílnum inni í björtu húsi.
Og síðast en ekki síst eru bílahúsin staðsett með
þeim hætti að frá þeim er mest þriggja mínútna
gangur til flestra staða
Nýttu þér bílahúsin
og miðastæðin.
Þau eru þægilegasti
og besti kosturinn!
Þú borgar fyrir þann tíma
sem þú notar.
Engin takmörk
á hámarksstöðutíma!
í miðborginni.
gSfiB
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bílastceöi fyrir alla
Traðarkot, Hverfisgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu. 271 stæði.
$
Vitatorg, bílahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu. 223 stæði.
Bergstaðir, á homi Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs. 154 stæði.
Vesturgata 7, innkeyrsla frá Vesturgötu um Mjóstræti. 106 stæði