AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Síða 12

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Síða 12
'TA- OG TÓMSTUNDARÁÐS FRÍTÍMAMANNVIRKI Starfsemi Reykjavíkurborgar í íþrótta-, félags- og tómstundamálum Mikill og vaxandi frítími er aö veröa eitt af megineinkennum á nútímasamfé- lögum. Frítímamannvirki og aöstaöa fyrir fólk í frítímum setja mikinn svip á umhverfi okkar og hafa veruleg áhrif á þaö líf sem lifað er í borgum og bæjum. Sveitarfélög hafa um langan tíma staöiö fyrir og hlúö að hvers kon- ar starfsemi og aðstööu sem stuðlar aö því aö íbú- ar geti notið lífsins og lagt stund á uppbyggilega iðju utan vinnutíma. Sú starfsemi sem hér um ræöir tengist einkum íþróttum, útivist og tómstunda- og félagsstarfi. Mjög margir aöilar leggja þar hönd á plóginn, jafnt félagasamtök, einstaklingar sem fyrirtæki en sveit- arfélög hafa jafnan veriö einna umsvifamest á þessu sviöi. Enginn einn aðili hér á landi hefur látiö frístunda- mál jafnmikiö til sín taka og Reykjavíkurborg. Borgin hefur afskipti af tómstunda-, íþrótta- og fé- lagsstarfi meö margvíslegum hætti, meöal annars í tengslum viö skipulagsmál, uppbyggingu og fjár- mögnun mannvirkja, rekstur og þjónustu og meö styrkjum til og samstarfi viö fjölda aöila. HLUTVERK ÍPRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐS Margir vinna aö þessum málaflokki hjá Reykjavík- urborg en hann heyrir aö stærstum hluta undir íþrótta- og tómstundaráð. ÍTR fer í umboði borgar- ráös meö stjórn íþrótta- og tómstundamála. Hlut- verk ráösins er meðal annars aö móta stefnu borgarinnar í íþrótta- og tómstundamálum, vera borgaryfirvöldum til ráðuneytis um gerö og staö- setningu nýrra íþróttamannvirkja og tómstunda- heimila. Þá hefur ÍTR umsjón meö rekstri íþrótta- valla, sundstaða, íþróttahúsa og félagsmiöstööva sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. ÞRÓUN OG UPPBYGGING Lengst af voru kirkjur einu húsin sem fólk kom saman í fyrir utan heimili, skóla eöa vinnustaði. Al- menna íþróttaiðkun í Reykjavík á síöustu öld má rekja til skólanna þegar kennsla í leikfimi var tekin upp. Fyrsta íþróttahúsiö var byggt viö Latínuskól- ann í Reykjavík 1858. Líklegt er aö þaö hafi verið notaö utan skólatíma og má því segja aö það sé fyrsta frítímamannvirkið í Reykjavík ef frá er talin fyrirhleösla í polli í læknum viö þvottalaugarnar í Laugardalnum áriö 1824 en þar fór sundkennsla fram. Fyrsta íþróttafélagið í Reykjavík hét Reykjavig Skydeforening og var stofnað áriö 1873, Sundfé- lag Reykjavíkur var stofnað 1884, Skautafélag Reykjavíkur 1893, Fótboltafélag Reykjavíkur 1899 sem seinna varö KR. Helstu íþróttirsem stundaöar voru í borginni um og fyrir síöustu aldamót voru sund, knattspyrna, skíöa- og skautaíþróttin, auk glímu og fimleika en mannvirki og skipulögð svæöi voru enn fábrotin. í Laugardalnum voru aðeins sundskýli og ófull- komnar hleöslur þar til ný sundlaug var vígö 1908, fólk fór á skíöi í Ártúnsbrekku og á Arnarhóli og skautasvæði var girt af viö Tjörnina. Brotið var blaö í þessum efnum þegar Melavöllur- inn vartekinn í notkun 1911. Fyrsta skíðaferðin í nágrenni Reykjavíkur meö hóp manna á bíl var farin 1928 á Kolviðarhól og skíðaskálinn í Hvera- dölum var byggöur 1935. Grasagarðurinn í Laugardal var opnaöur 1961. Haustið 1972 var Bláfjallanefnd sett á stofn en skömmu áöur höföu íþróttafélög komið sér upp aðstööu í Bláfjöllum. Fellahellir, fyrsta félagsmið- stööin í borginni, tók til starfa 1974. Merkustu áfangarnir á þessum áratug eru Fjölskyldu- og húsdýragaröurinn í Laugardalnum, útivistarbylt- ingin í tengslum viö lagningu göngustíga frá fjöru til fjalla og uppbygging á íþróttaaöstööu félaganna í hverfum borgarinnar. LAUGARDALURINN - ALHLIÐA ÚTIVISTARSVÆÐI Laugardalssvæöiö er ein höfuöprýöi Reykjavíkur- borgar og því er rétt aö fara nokkrum orðum um hann sérstaklega. Svo skemmtilega vill til aö hug- myndin aö íþrótta- og útivistarsvæði fyrirReykvík- inga í Laugardal var þegar komin fram á síðustu öld þótt framkvæmdir hæfust ekki fyrr en um miöja þessa öld. Hugmyndina átti Sigurður málari og hann lagöi hana fram áriö 1871. Hann taldi Laug- ardalinn kjörinn staö til trjá- og skrautblómarækt- unar. Þar gætu bæjarbúar hvílt sig í laufguðum lundi eöa gengið sér til skemmtunar. Siguröur geröi skipulagsuppdrátt af Laugardalnum meö leikvangi og göröum, jafnt yfirbyggðum sem opn- um. Áriö 1943 samþykkti bæjarstjórn Reykjavíkur aö hefja undirbúning að hvíldar-, íþrótta- og skemmti- svæöi í Laugardal. Síöan þá hefur aðstaðan veriö byggö upp smám saman. Nú er Laugardalurinn fjölbreytt og áhuga- Göngu-og hjólreiöastígur viö Ægisíðu. Ekki þarf mikla aöstöðu til aö hreyfa sig. Grasagarðurinn í Laugardal. Sigurður málari var einn helsti hvatamaður hans. vert útivistarsvæði fyrir almenning. Þar er aö finna sundlaug, göngu- og hlaupabrautir, skautasvell, grasagarö og síöast en ekki síst Fjölskyldu- og í Reykjavík og í nágrenni borgarinnar er aö finna fjölmörg frítímamannvirki sem standa til boöa bæði nætur og daga. 10 11
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.