AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Page 23
Hafnarhúsið, frá höfninni.
stigiö skref í átt til upplausnar borgarinnar. í þjóö-
félagi eru slit tengsla sama og stjórnleysi. Alexand-
er nefnir dæmi um tengslaslit, sem hann telur
óheillavænleg í borgum, en þaö er aðskilnaöur
fólks á eftirlaunaaldri frá öörum þáttum borgarlífs-
ins. Þaö tekur ekki aðeins frá yngra fólki félags-
skap þeirra sem lengur hafa lifað heldur veldur
þaö upplausn í lífi hvers einstaklings.
Orö Christophers Alexanders vekja til umhugsun-
ar. Þau segja okkur m.a. hversu mikilvægt er aö
greina eöli borga og hversu hnitmiðuð og vel hugs-
uö þau skref þurfa aö vera sem tekin eru í sam-
bandi viö allar breytingar á grónu borgarumhverfi.
í dag stöndum viö sem endranær frammi fyrir
margvíslegum breytingum sem áhrif hafa á borg-
arumhverfið. Nokkur sláandi dæmi skulu nefnd.
Meðalaldur hefur hækkað og margt fólk heldur
fullu atgervi miklu lengur nú en áöur, oft í áratugi
eftir aö heföbundnum starfsaldri lýkur. Ferðalög og
ýmis frístundaiöja kemur nú miklu sterkar inn í lífs-
hætti fólks en áöur var. Ýmiss konar hugbúnaöur
og ný fjarskiptatækni sem nú er aö verða almenn-
ingseign opnar aðgang aö stærra samskiptaneti.
Nú er hægt aö hafa hröð samskipti viö menn hvar
sem er í heiminum, hvaðan sem er. Endurmennt-
un og símenntun er orðin staöreynd auk þess sem
sífellt meiri áhersla er lögö á aö skoöa hlutina
heildstætt. Þekkingarsamfélagiö sem við lifum í
hefur leitt til nýrrar alþjóðlegrar stefnu í mennta-
málum og njóta fræðsluferðir nú mikilla vinsælda
og margra alþjóölegra styrkja.
En hvað með borgina hans Villa frá Skáholti?
Hvernig mætir hún breytingum sem þessum?
Flókin spurning, sem ég ætla mér ekki aö svara
nema aö mjög takmörkuðu leyti aö þessu sinni.
Ég ætla aö láta nægja aö greina frá ákvöröunum
sem teknar hafa veriö um aukið vægi menningar-
stofnana í miðbæ Reykjavíkur. Tilgangurinn er í
fyrsta lagi aö auka fjölbreytileika starfseminnar
sem þar fer fram. í öðru lagi aö bæta hag menn-
ingarstofnananna sem í nútímasamfélagi gegna
æ mikilvægara hlutverki sem miðlarar upplýsinga
og fræöslu á fjölmörgum sviöum. í þriöja lagi aö
nýta stóru húsin viö höfnina, sem nú gegna ekki
lengur hlutverki hafnarhúsa, hús sem vel henta
fyrir starfsemi af þessu tagi og viö viljum ekki aö
hverfi úr borgarmyndinni.
Til þess aö menningarstofnanir í borg eins og
Reykjavík geti sinnt veigamiklu hlutverki sínu meö
sóma þarf aö hlúa aö þeim. Þær þurfa margar
21