AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Side 22

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Side 22
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR ARKITEKT NÝJAR MENNINGARSTOFNANIR í MIÐBORG REYKJAVÍKUR Oborg mín borg ég lofa Ijóst þín stræti, þín lágu hús og allt, sem fyrir ber. Og þótt svo táriö oft minn vanga væti, er von mín einatt, einatt bundin þér. Og hversu sem aö aðrir í þig narta, þig eöla borg sem forðum prýddi mig, svo blítt, svo blítt sem barnsins unga hjarta er brjóst mitt fullt af minningum um þig. Svo kvaö Vilhjálmur frá Skáholti um Reykjavík. En borgin hans Vilhjálms hefur breyst. Slíkt er eðli borga, því borg er ekki einungis hús, götur, torg og opin svæöi heldur flókiö samspil þessa alls og fólksins sem borgina byggir. Um leiö og athafnir, lifnaöarhættir og venjurfólks- ins breytast þá breytist borgin jafnvel þótt húsin, torgin og göturnar séu söm og fyrr. En þá ríður á að skilja hismiö frá kjarnanum. Greina þaö mikilvæga í borgarmyndinni, þaö sem gefur henni gildi, er gott og viö viljum ekki glata. Síöan þarf aö byggja á því nýtt samspil húsa, gatna, torga, opinna svæöa og hins nýja mannlífs. Oft hættir okkur til aö hlaupa yfir þessa greiningu, sem er svo nauðsynleg. Viö breytum umhverfinu án íhugunar og án þess aö hafa skilið hvernig viö getum skapað ný tengsl og séö til þess aö „sjarm- inn“ og grundvöllurinn fyrir lifandi borg glatist ekki. Athyglisvert er aö í nýjum borgum eða borgar- hverfum sem byggö eru upp frá grunni virðist ekki vera hægt aö ná fram því sama og í eldri borgum eöa borgarhlutum jafnvel þótt reynt sé aö raða saman meö sama hætti sömu gerö eininga. Langa göngu fólksins og líf þess í gleði og sorg á götum, torgum og í húsum vantar, einnig öryggiö sem fylgir því aö hafa tekiö í arf þekkingu á um- hverfinu og skáldin hafa ekki heldur enn ort sín Ijóö. Ýmsar kollsteypur hafa átt sér staö í sögu borga. Nægir að nefna afleiðingar iönbyltingarinnar, sem voru m.a. þær aö fyrir rúmri öld var farið aö leggja áherslu á að flytja allan atvinnurekstur eöa iön- fyrirtæki burt úr íbúðarhverfunum vegna mengun- ar frá starfseminni. Upp úr því var farið aö flokka borgarhluta í íbúöar- svæöi, atvinnu-og iðnaðarsvæði, stofnanasvæöi og verslunarsvæöi eöa miðbæjarsvæði. Þetta varö aö skipulagsstefnu sem er við lýöi enn í dag. Annar áhrifavaldur í sögu borga er bíllinn og vax- andi notkun hans. Stór umferðarmannvirki uröu til og farið var aö leggja áherslu á aöskilnað akandi og gangandi umferöar vegna þeirrar hættu sem af bílaumferö stafar. Útivinna kvenna jókst hrööum skrefum og ýmsar breytingar urðu á lífsháttum. Innkaupavenjur breyttust, stórmarkaöir héldu innreið sína og þann- ig mætti lengi telja. Miöborg Reykjavíkur hefur ekki fremur en aðrar miöborgir fariö varhluta af þessum breytingum. Starfsemin á hafnarsvæöinu hefur breyst meö til- komu nýrrarflutningatækni. Verslanirog heildsölu- fyrirtæki hafa horfið af sjónarsviöinu og íbúöa- hverfin, sem áöur voru háö þjónustu í göngufjar- lægö sem veitt var í miöbænum, geta nú sótt ann- aö. í merkri grein, eftir hugsuöinn og skipuleggjandann Christopher Alexander, sem birtist í apríl/maí hefti Architectural Forum áriö 1965 er sett spurningar- merki viö uppskiptingu borga í hverfi eftir athöfn- um. Höfundurinn gerir aö umræöuefni muninn á borg sem hugsuð er sem tré, þ.e.a.s. þar sem at- hafnir eru flokkaðar líkt og enn tíðkast í borgar- skipulagi, og borg sem hann nefnir hálfnets-borg, en þar eru snertipunktar athafna aörir og fleiri. Christopher Alexander telur ástæðuna fyrir því aö haldið er áfram aö skipuleggja borgir sem tré vera aö frumstarfsemi hugans gangi út á aö minnka tvíræöi og víxláhrif í ruglingslegu umhverfi. Starf- semi hugans hafi ekkert umburöarlyndi gagnvart tvíræöi. í grein sinni segir Alexander aö meö tré-hugsunar- hættinum séum viö aö skipta á fjölbreytileika hinnar lifandi borgar og einfaldari hugsun, sem einungis henti skipuleggjendum og borgarstjórn- um. í hvert skipti sem borgarhluti er rifinn og tré (einhæfni) kemur í staö hálfnets (fjölbreytni) er 20

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.