AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Blaðsíða 70
VERKEFNIÐ
Keppnissvæðið er að mörgu leyti sérstakt og
áhugavert sem byggingarsvæði. Það er um 195 ha
að stærð og nær frá suðurmörkum byggðar á
Brekkunni inn að Kjarnaskógi.
Um var að ræða hreina hugmyndasamkeppni, og
voru keppendum því gefnar nokkuð frjálsar hend-
ur um mótun og innihald hverfisins. Skv. skilgrein-
ingu er munurinn á hugmyndasamkeppni og
venjulegri keppni m.a. sá, að útbjóðanda ber eng-
in skylda til að fela vinningshafa verkefnið að lok-
inni keppni, en Skipulagsnefnd Akureyrar hefur þó
lýst því yfir, að hún stefni að því að hafa samstarf
við sigurvegara keppninnar um gerð skipulags-
ramma hverfisins.
í keppnislýsingu voru m.a. sett fram eftirfarandi al-
menn skipulagsmarkmið:
„Nýta ber sem best náttúrulega kosti svæðisins,
s.s. útsýni og tengsl við útivistarsvæði. Byggð skal
laga sig að landslagi og taka tillit til sérkenna þess.
Leitast verði við að skapa hverfinu einkennandi
byggðarmynstur eða bæjarmynd. Reynt verði að
stuðla að framþróun hefðbundinna íbúðargerða og
nýsköpun á því sviði. Taka skal ríkt tillit til sérþarfa
barna, aldraðra og fatlaðra.
Leggja ber áherslu á umferðaröryggi, að gegnu-
makstur um íbúðarhverfi verði sem minnstur og að
gönguleiðakerfi sé rökrétt með tilliti til tengsla
íbúðasvæða við skóla og aðra þjónustu, útivistar-
svæði og önnur hverfi bæjarins."
NIÐURSTAÐAN
Á fundi sínum 10. júní 1997 kvað dómnefndin upp
eftirfarandi úrskurð:
„Dómnefnd ákveður að velja tillögu nr. 5 með ein-
kennistölu 02018, til verðlauna, og mælir með því
að haft verði samstarf við höfunda hennar um gerð
skipulagsramma hverfisins.
Tilgangur útbjóðanda með samkeppninni var að fá
fram ferskar en samt raunhæfar og hagkvæmar til-
lögur að megindráttum hins nýja bæjarhluta. Sér-
staklega var vonast til að niðurstaða samkeppn-
innar gæti vísað til framtíðar á nýrri öld, með tilliti til
þróunar búsetu, lífs- og atvinnuhátta, jafnvægis
byggðar og náttúru og umhverfissjónarmiða.
Að mati dómnefndar er tillagan snjöll og heildstæð
og svarar í öllum meginatriðum þeim markmiðum
sem sett voru fram í keppnislýsingu. Grunnhug-
mynd hennar er einföld, en tillagan felur samt í sér
margbreytileika og sveigjanleika. Tillagan er þró-
unarhæf. Sérstaklega vill dómnefnd benda á að
draga má úr ágöllum umferðarkerfisins, án þess
að raska meginhugmynd skipulagsins.
„ í Naustahverfi rúmast ný hugsun sem vísar veg-
inn fram á við. Skýrleiki og umhverfisgæði eldri
hverfa er hafður að leiðarljósi en jafnframt er tekið
á vanda, sem aukin bílaumferð í nútíma þéttbýli
skapar. Skipulagið er í senn einfalt í sínum marg-
breytileika, það tekur tillit til og undirstrikar sér-
kenni landsins og er ein heild á hverjum tíma.
Þannig á Naustahverfi að verða akureyrskur fram-
tíðarbær." (Úr greinargerð höfunda).1'
HÖFUNDARNIR:
Aðstandendur verðlaunatillögunnar reyndust sem fyrr
segir vera Kanon arkitektar ehf., nánar tiltekið eftirtalin:
HÖFUNDAR: Halldóra Bragadóttir arkitekt FAÍ, Helgi
Bollason Thóroddsen arkitekt FAÍ, Póröur Steingrímsson
arkitekt FAÍ.
AÐSTOÐ OG RÁÐGJÖF: Helga Bragadóttir arkitekt FAÍ,
Sveinn Bragason arkitekt.
RÁÐGJÖF: Porsteinn Porsteinsson byggingarverkfræö-
ingur. ■
68