AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Blaðsíða 19
Framtíðarsýn íslensks byggingariðnaðar
r
TVIEFLDUR BYGGINGAR-
IÐNAÐUR Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2005
Samtök iönaöarins stóöu fyrir stefnumót-
unarverkefni meöal aðildarfyrirtækja
sinna um framtíöarsýn í byggingariðn-
aöi og mannvirkjagerð. Stór hópur fyrir-
tækja kom aö þessari vinnu og hefur
sammælst um niöurstöðuna. Beitt var
virkum hópvinnuaðferöum meö hugarflugi, vægis-
greiningu og almennum umræðum auk þess sem
starfsmenn Samtaka iönaöarins unnu milli funda
úr hugmyndum og upplýsingum sem fram komu.
Fyrirtækin komu sér saman um sameiginlega
framtíöarsýn og skilgreindu þær forsendur sem
þurfa aö vera í starfsumhverfinu og hjá fyrirtækjun-
um til þess aö framtíðarsýnin geti oröiö aö veru-
leika. Þessum þáttum er lýst hér á eftir.
Auk þess skilgreindu fyrirtækin fjölda verkefna og
aðgerða sem ráöast þarf í til þess aö nálgast fram-
tíðarsýnina og bæta forsendurnar. Verkefnin eru
ekki talin upp í framtíðarsýn þessari en hægt er aö
nálgast upplýsingar um þau hjá Samtökum iðnaö-
arins.
Markhópur framtíöarsýnar íslensks byggingariön-
aöar er:
■ Stjórnendur og starfsmenn byggingafyrirtækja.
■ Stjórnvöld, stjórnendur og starfsmenn í opinber-
um stofnunum.
■ Viðskiptavinir byggingariönaöarins.
■ Ungt fólk í leit að framtíðarstarfsvettvangi.
■ Aðrir sem áhuga hafa á málefnum byggingar-
iðnaöarins.
FRAMTÍÐARSÝN
STERK, ARÐSÖM FYRIRTÆKI AF ÖLLUM
STÆRÐUM
íslenskur byggingariðnaöur leggur vegi, reisir virkj-
anir og byggir hús. íslenskur byggingariönaöur
samanstendur af arðsömum fyrirtækjum, litlum og
stórum. Fyrirtækin eru almennt í einkaeign eöa
hlutafélög meö breiöa eignaraöild sem nýta sér
nýjustu aðferðir og tækni viö stjórnun. Fyrirtækin
hafa góöa aðlögunarhæfni í takt viö eftirspurn og
þarfir markaöarins. Stöðugleiki á íslenska bygg-
ingamarkaöinum er meiri en áöur.
ÖFLUGT SAMSTARF BYGGINGAFYRIR-
TÆKJA INNANLANDS OG UTAN
Mikil aukning hefur átt sér staö í samstarfi fyrir-
tækja í mannvirkjagerð, m.a. í formi fyrirtækjaneta.
Þessi nettenging fyrirtækja hefur leitt til þess aö
stór og smá fyrirtæki hafa styrkt stööu sína og eru
færari um að takast á viö verkefni af öllum stærö-
um og gerðum. Samtengd íslensk byggingafyrir-
tæki eru komin í samstarf viö erlend fyrirtæki og
nýta sér styrki EES til aröbærra verkefna og tækni-
þjónustu erlendis. Samstarf þetta hefur jafnframt
leitt til aukinnar starfsemi erlendra fyrirtækja á ís-
landi og tryggir að nýjasta tækni er ávallt hagnýtt
viö framleiöslu í byggingariðnaði.
ÍSLENSKUR BYGGINGARIÐNAÐUR í FOR-
YSTU í TÆKNI OG HÖNNUN Á NORÐURSLÓÐ-
UM
íslenskur byggingariönaöur hefur sérstööu í heim-
inum í hönnun og framleiðslu mannvirkja fyrir veö-
urfars- og náttúruaöstæöur sem skapast á norð-
lægum slóðum, s.s. vegna jaröskjálfta, umhleyp-
inga, mikils vindálags, slagregns og snjóa. íslensk
byggingafyrirtæki taka aö sér aö hanna, byggja og
reka heilu hverfin sem byggö eru úr vönduðum ís-
lenskum byggingarefnum. Fyrirtækin framleiöa
húshluta og hús innandyra í verksmiöjum undir
stjórn hæfra stjórnenda, tæknimanna og iðnmeist-
ara. Þetta hefur meöal annars náðst meö öflugri
tækniþróun sem gert hefur þessa framleiöslu sam-
keppnishæfa á erlendum mörkuöum og styrkt ís-
lensk byggingafyrirtæki.
GÓÐ STJÓRNUN Á HÖNNUNAR-,VIÐHALDS-
OG UMHVERFISMÁLUM
Landiö er einn markaöur og hluti af alþjóölegum
markaöi sem gerir miklar kröfur til gæöa hönnunar,
viðhalds og umhverfismála. Hönnuðir og bygging-
araðilar taka miö af umhverfismálum jafnframt því
aö mannvirki eru hönnuö/byggö meö það fyrir aug-
um að viðhald þeirra sé auövelt og innan skynsam-
legra marka.
17
SAMTOK IÐNAÐARINS