AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 51

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 51
nám í greininni er viö nám á Norðurlöndunum. Fyrir örfáum árum var talan um 80%, en þá voru á annað hundrað við nám. Þessari þróun þarf að snúa við og fjölga arkitektum verulega. íslensk kunnátta á sviði byggingarlistar getur orðið mikil- væg útflutningsvara bæði beint og óbeint. Óbeint með því að stuðla að harmonisku og manneskju- legu umhverfi sem laðar að ferðamenn og gerir umhverfi íslendinga enn betra. Stuðla þarf að sérhæfingu íslenskra arkitekta á byggingum á norðurhjara (Winter Cities), hönnun fiskvinnsluhúsa, matvælafyrirtækja, orkustöðva o.fl. íslenskir fiskútflytjendur hafa undanfarin miss- eri verið að koma upp fiskvinnslufyritækjum víðs- vegar um heiminn til þess að vinna og selja fiskaf- urðir á erlendum mörkuðum. Þarna hafa fyrirtæk- in fengið margvíslega aðstoð frá opinberum aðil- um sem stuðla að útflutningi og markaðsfærslu ís- lenskra afurða. Ráðherranefndir eru sendar sem brautryðjendur og aftur sem sporgöngumenn fyrir einstakar greinar í íslensku atvinnulífi. íslenskt hugvit á sviði hönnunar hefur ekki fengið slíka þjónustu. Það er minnistæð umræðan í Danmörku fyrir um 30 árum þegar Margrét Danadrottning fór í sínar fyrstu opinberu heimsóknir. Þá var sagt að Kekkonen Finnlandsforseti hafi tekið með sér sýn- ingar á finnskri hönnun og arkitektúr meðan Mar- grét tók með sér Den Kongelige Ballet. EES-samningurinn hefur opnað möguleika ís- lenskra arkitekta til þess að sækja á evrópskan markað. Til þess að þetta skili sér þurfa arkitektar að kunna leiðirnar að markaðnum. íslenskir arki- tektar hafa forskot annarra Evrópuþjóða vegna þess að þeir hafa lært fag sitt víðsvegar um heim- inn og koma því inn í samkeppni með öðrum hætti en arkitektar annarra Evrópulanda sem flestir eru heimalningar hvað varðar menntun sína. Þarna kemur fram ákveðinn kostur þess að ekki er kennd byggingalistá íslandi. íslenskir arkitektar tala mörg tungumál Evrópu. íslenskir arkitektar eru með þeim tölvuvæddustu í Evrópu. íslenskir arkitektar eru ekki bundnir á klyfjar hefðarinnar í byggingalist á íslandi Til þess að íslenskir arkitektar geti haslað sér völl á mörkuðum utan landsins þarf að koma upp kerf- isbundnu samskiptaneti þar sem arkitektar og nemar í arkitektúr víðsvegar í Evrópu senda Arki- tektafélaginu upplýsingar um öll útboð og allar þær samkeppnir sem fram fara og eru á döfinni í lönd- um Evrópubandalagsins á sviði arkitektaþjónustu og dreifa þeim til arkitekta. Það er gagnslítið að stilla mönnum bak við skrif- borð á Iðntæknistofnun og ætlast til þess að menn komi þangað og spyrji spurninga um Evrópska Efnahagssvæðið. Útbúa þarf námskeið fyrir stjórn- endur teiknistofa þar sem fjallað er um þessi mál og koma á fót umboðsmannakerfi um álfuna. Veita þarf styrki til verkefnaöflunar og hagstæð lán vegna útflutnings á þjónustu. Það hefur sýnt sig að þörfin fyrir tæknimenntað fólk er sívaxandi í nánast hvaða fagi sem er. Arkitekt- ar eru auk tæknimenntunar lærðir í listum og eru sérstaklega þjálfaðir í því að sjá heildarmynd við- fangsefnis síns, leita nýrra leiða og setja fram hug- myndir sínar. Eitt meginvandamál arkitektastéttarinnar á íslandi er að þar eru flest fyrirtækin 1 -4 manna vinnustað- ir. Mikilvægast í vinnuumhverfi arkitekta er að vinnustaðirnir sameinist og stækki þannig að hér á landi verði 5-10 vinnustofur arkitekta sem hafa 10-20 manns í þjónustu sinni. Við stækkun vinnu- staðanna skapast meiri möguleikar á að breikka þjónustusviðið og fjárfesta í nýjum mörkuðum og á nýjum sviðum. Samfara stækkun vinnustaðanna þarf upplýsingastreymi milli stofanna að vera virkara þannig að nýjungum sem einstakar stofur hafa góða reynslu af sé miðlað á skilvirkan og markvissan hátt. Viðskiptaleyndarmálum og tæknilegum framförum má ekki rugla saman. Ef setið er á reynslusögum og tækninýjungum, kem- ur það til með að tefja fyrir framþróun í umhverfinu. Slíkt tefur fyrir möguleikum stéttarinnar á að hasla sér völl á erlendum vettvangi og auðveldar erlend- um aðilum að sækja á íslenskan markað. Arkitektar eiga ekki að vera að reyna að selja þjón- ustu sína til aðila sem ekki vilja kaupa hana. Það má leiða rök að því að um 60% íslendinga sé ekki sérlega umhugað um hvernig umhverfi þeirra lítur út. Þessi hluti íslendinga er ekki tilbúinn til þess að greiða fyrir að fá ráðleggingu um umhverfi sitt. Verkefnin er að finna hjá þeim sem kunna að meta þjónustunna en vita ekki að hún er fyrir hendi. Þess vegna er kynningarstarf mikilvægt. En það liggur í augum uppi að menn gera ekki annað en að kynna sig meðan þeir eru að því. „Maðurinn finnur það sem hann leitar að, og sá sem trúir á draug finnur draug“, sagði Halldór Lax- ness í Sjálfstæðu fólki. Það fólk sem trúir því að þörf sé fyrir það, verður ómissandi. Arkitektar, sem ekki trúa því að þeir fái vinnu, fá hana ekki. Mark- aðir fyrir arkitekta eru nægir. Það þarf aðeins að finna þá og aðlaga þjónustuna kröfum þeirra. ■ 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.