AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Side 61
Gefinn var fjögurra mánaöa umsagnarfrestur, til
10. október nú í haust. Nú tóku margir aöilar aö
átta sig á aö hér væri ákvörðunarferli um framtíð
nær helmings landsins komiö á lokastig, og geröi
verkáætlun ráö fyrir aö umhverfisráöherra staö-
festi skipulagið fyrir áramót. Uröu margir aðilar til
þess aö biöja um lengri frest til athugasemda en
um leið fóru að koma fram skoðanir um aö ýmsir
réttbærir aðilar heföu ekki fengið eðlilegan rétt til
aö fylgjast meö og taka þátt í mótun skipulagsins
og jafnvel aö nefndin heföi ekki fariö eftir stefnu-
mótun réttkjörinna stjórnvalda og ýmissa sam-
þykkta Alþingis.
ATHUGASEMDIR ÝMISSA AÐILA
Þegar í júní sendi stjórn Landsvirkjunar fyrri hluta
athugasemda sinna viö skipulagiö. Þar segir m.a.
á bls. 2: „í greinargerð eða fylgiskjölum vantar
hvaða forsendur nefndin og ráðgjafar hennar
hafa haft við vinnu sína varðandi orkumál.
Ekki er getið stefnumarkmiða allra ríkisstjórna
landsins sl. áratugi um nýtingu orkuauðlindar-
innar, né heldur ákvæða Ríó-sáttmálans um
áherslur á nýtingu endurnýjanlegra orkulinda".
Hinn 15. október geröi Ferðamálaráð eftirfarandi
samhljóöa ályktun: „Ferðamálaráö telur að til-
laga að skipulagi Miðhálendis íslands .... taki
ekki tillit til stefnumótunar í ferðamálum, sem
unnið hefur verið að og ólokið er. Því leggur
ráðið þunga áherslu á, að afgreiðslu tillögunn-
ar verði frestað....". Hér má bæta viö aö megin-
atriöi stefnumótunarinnar komu út á prenti í maí
1996.
Hinn 20. september héldu Félag skipulagsfræð-
inga og Verkfræðistofnun Háskóla íslands ráö-
stefnu um hálendisskipulagið í Háskólabíói. Þar
kom fram enn frekari gagnrýni á skipulagið og
hvernig aö því hefur veriö staðiö. Stuttu síðar var
frestur til athugasemda framlengdur um tvo mán-
uöi, eða til 10. desember.
HVERJUM BER SKIPULAGSRÉTTURINN
Umræöan sem hefur oröiö í fjölmiölum nú í haust
hefur mest snúist um það hverjum beri skipulags-
rétturinn og í grein í tímaritinu AVS, sem kom út í
október, dregur prófessor Gunnar G. Schram, sér-
fræöingur í umhverfisrétti, fram helstu atriöi þessa
máls:
„í fyrsta lagi felst mikiö óréttlæti í því aö fá 3-4%
landsmanna vald yfir nær helmingi landsins...."
„í öðru lagi er Ijóst aö víðáttumikil svæöi Miöhá-
lendisins eru utan alls eignar- og þá stjórnsýslu-
Skipulag Miðhálendisins leggur til að mörg orkuríkustu
svæði landsins verði gerð að verndunarsvæðum.
réttar... Skipulagsyfirvöld hafa mjög vafasaman
rétt til að fá örfáum mönnum vald yfir þessum eig-
endalausu svæöum. Þaö er raunar fráleitt og verö-
ur ekki gert nema með nýrri og sérstakri lagaheim-
ild".
„í þriðja lagi er þaö mjög hæpin stefna.. aö fá
hagsmunaðilum vald til aö nýta Miðhálendið....
vegna m.a. ofbeitarhættu sem þar er um aö ræöa".
„í fjóröa lagi er þaö mjög vafasamt aö sveitarfélög-
in 40, sem ætlað er stjórnsýsluvaldiö, hafi innan
sinna vébanda þá fagþekkingu sem krefjast verö-
ur til skilvirkrar stjórnsýslu þar....". (Bls. 45).
NAUÐSYN Á ÞVÍ AÐ SKÝRA SKIPULAGS-,
LÖGSAGNAR- OG EIGNARRÉTT Á HÁLEND-
INU
í grein sinni kemur Gunnar G. Schram inn á þann
skort á lagaheimildum sem „kemur í veg fyrir að
unnt sé að fara að tillögu Samvinnunefndarinn-
ar og fá hinum fámennu hálendissveitarfélög-
um stjórnsýsluvaldið í hendur. Þess vegna
hefur félagsmálaráðherra hlaupið undir bagga
með þessari slæmu hugmynd ....". (Bls. 45).
Hér á Gunnar við frumvarp ráöherrans um að Miö-
hálendinu sé skipt upp á milli aöliggjandi sveitarfé-
laga. Gunnar heldur áfram í grein sinni: „Sú
stefna sem í þessu frumvarpi er mörkuð geng-
ur í fyrsta lagi þvert á ríkisstjórnarfrumvarp um
þjóðlendur, sem einnig var lagt fram á síðasta
þingi. Má slík málsmeðferð furðu sæta. í öðru
lagi gengur þetta frumvarp þvert á almanna-
hagsmuni landsmanna ....". (Bls. 46). Gunnar
ber lofsorö á þjóölendu-frumvarpiö sem felur í sér
eignarrétt ríkisins á Miöhálendinu, nema aörir eigi
þar sannanlegan rétt. Frumvarpiö gerir ráö fyrir aö
meginstjórnsýsluhafinn veröi aðeins einn, þ.e. for-
59