AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 37

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 37
fjárfestingin skilaði sér í engu - nema til þeirra að- ila sem hafnaraðstöðuna byggðu. Þetta var ekki arðbær aðgerð - hvorki í efnahagslegum né fé- lagslegum skilningi. Þarna var einfaldlega um óarðbæra fjárfestingu að ræða í öllum skilningi. Forgangsröðun er tískuorð nútímans og ætla mætti að þar færi ný uppgötvun. Það er auðvitað fjarri öllu lagi. Allar götur hafa stjórnmálamenn fengist við það verkefni að forgangsraða - setja umgjörð um tiltekna hluti, ákveða að tiltekin verk- efni séu brýnni í tíma en önnur. Um það snýst póli- tík ekki síst. Ekki síst með það í huga nefndi ég hér áðan til sögunnar, sem áhrifavald á stefnu stjórnvalda við- víkjandi mannvirkjagerð, kjördæmaskipan og kosningalög. Landinu er skipt í 8 kjördæmi. Tvö þessara kjördæma, R- kjördæmin svokölluðu, hafa „innanborðs" mikinn meirihluta íbúa þjóðarinnar. Það endurspeglast þó engan veginn í fjölda þing- manna. Það er óumdeilt, að í nafni byggðastefnu hefur verið ráðist í fjölmargar óarðbærar fjárfest- ingar í dreifðari byggðum landsins. Þær hafa til orðið vegna þrýstings heimamanna, þá ekki síst þingmanna viðkomandi kjördæmis, sem hafa talið það hlutverk sitt að fá atvinnu í byggðarlagið og jafnvel þótt viðkomandi mannvirki skili engu í at- vinnulegu tilliti, þegar byggingu þess er lokið. Til að segia hlutina eins og þeir eru, þá hefur kjördæma- potið reynst okkur dýrt og milljarðar hafa runnið í mannvirkjagerð, sem við hefðum komist af án, en getað varið í skynsamlegri uppbyggingu og mann- virkjagerð annars staðar á öðrum vettvangi. Þess vegna segi ég það skýrt: Alþýðuflokkurinn er þeirrar skoðunar, að landið eigi að vera eitt kjör- dæmi og þingmenn verði hér eftir þingmenn þjóð- arinnar allrar, en ekki fulltrúar tiltekinna héraða. Bara sú breyting ein myndi miklu breyta að mínu áliti. Nálgun viðfangsefna yrði með gjörbreyttum hætti og skynsemin og yfirsýnin, þær systur fengju þann stall sem þeim ber. Alþýðuflokkurinn einn flokka hefur skýra flokksafstöðu í þessu máli og hefur haft lengi, en sem betur fer hafa stuðningsmenn þess- ara viðhorfa í öðrum flokkum sótt í sig veðrið á síð- ari tímum. Við stjórnmálamenn eigum ekki að segja fólki fyrir verkum og getum ekki búið til þarfir fyrír fólk. Fólk tekur sjálft sínar ákvarðanir. Við eigum að skapa umhverfi, en hið endanlega val um búsetu hér eða þar eða starfsvettvang hlýtur ævinlega og á auðvit- að að vera á hendi einstaklinganna. Óneitanlega hefur nokkuð borið á ofstýringu í þessum efnum af hálfu opinberra aðila og þeir reynt að stýra með beinum hætti búsetuþróun í landinu, þá er ekki síst gripið til „mannvirkjastjórnmála“ í þeim efnum. Það er byggður stór og glæsilegur skóli í byggðar- lagi þar sem íbúum fer fækkandi. Mikil vinna í hér- aði meðan á framkvæmdum stendur. Skólinn tek- inn í notkun, en fólksflutningar í burtu halda samt áfram. Skólinn er hálfsetinn. Mannvirkið glæsilega sem öllu átti að breyta er að stórum hluta ónýtt. Nú er því stundum haldið fram að vegna þess að margar félagslegar íbúðir standi auðar víða úti um land og seljist ekki, þá sé rétt að draga mjög ákveðið úr fjárframlögum til byggingarsjóðs verka- manna. Þetta er kolröng ályktun. Ástæðan fyrir því, að félagslegar íbúðir, jafnvel glænýjar, standa auðar víða úti um land, er einfaldlega sú, að opin- berir aðilar veittu fjármagn til þeirrar mannvirkja- gerðar, enda þótt fyrir lægi að eftirspurn væri ekki til staðar, þarfir fólksins ekki fyrir hendi. En eftir sem áðurereftirspurnin eftir félagslegu íbúðarhús- næði í kringum okkur. En bara allt annars staðar. Nefnilega hér á suðvesturhorni landsins. Mann- virkin voru byggð á röngum stað. ALVÖRU BYGGÐASTEFNA Ég er enginn andstæðingur svokallaðrar byggða- stefnu. Það er langur vegur frá því. Þvert á móti tel ég það metnaðarmál að við höldum landinu í byggð og að við treystum stöðu svokallaðra byggðakjarna hér og þar á landinu, þannig að þeir geti orðið eðlilegar þjónustumiðstöðvar fyrir við- komandi svæði. En það er nákvæmlega engin byggðastefna, engin stefna, heldur bókstaflega „Við stjórnmálamenn eigum ekki að segja fólki fyrir verkum og getum ekki búið til þarf- ir fyrir fólk. Fólk tekur sjálft sínar ákvarðan- ir. Við eigum að skapa umhverfi, en hið end- anlega val um búsetu hér eða þar eða starfs- vettvang hlýtur œvinlega og á auðvitað að vera á hendi einstaklinganna. “ rennandi rugl og vitleysa, ef nokkrum dettur það í hug, að hægt sé að halda byggð í landinu, fólki kyrru á stöðum úti á landi með því einu að byggja nægilega margar íbúðir á viðkomandi stað. Það er hundalógík. Og aðeins áfram á þessum nótum. Enginn deilir 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.