AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Qupperneq 57

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Qupperneq 57
lagi miðhálendisins.Umhverfisráðherra skipaði for- mannnefndarinnar. Þjóðkjörin stjórnvöld tóku þessa ákvörðun og skipulagsstjórn ríkisins kom þar hvergi nærri. Héraðsnefndirnar tilnefndu full- trúa í samvinnunefndina og héraðsnefndirnar 12 hafa fylgst með framgangi mála. í því sambandi má geta þess að íbúar á þeim héraðssvæðum sem aðild eiga að samvinnunefndinni eru um 30% þjóðarinnar en ekki 4% auk þess sem formaður nefndarinnar er Reykvíkingur. Höfundar hneykslast á því að samvinnunefndin hafi sniðgengið sjónarmið vega- og orkugeirans. Fulltrúar vega- og orkumála hafi að vísu verið kall- aðir á fund en að sjálfsögðu hafi það verið svo að þótt þeir gætu lýst grunnhugmyndum sínum og þörfum, þá hafi þeir ekki á þeim tíma getað kom- ið fram með „endanlegar" hugmyndir um skipulag á sínu verkefnasviði. í greinargerð svæðisskipulagstillögunnar er m.a. lýst samráði við Landsvirkjun sem tók þátt í þrem- ur fundum samvinnunefndar. Þar að auki voru haldnir nokkrir fundir með starfsmönnum Lands- virkjunar og farið í tvær skoðunarferðir. Orkumála- stjóri sat tvo fundi samvinnunefndar og auk þess voru nokkrir fundir með starfsmönnum Orku- stofnunar. Fulltrúi Vegagerðarinnar sat fund og flutti erindi á einum fundi samvinnunefndar. Fund- ir voru haldnir með nokkrum starfsmönnum Vega- gerðarinnar sem auk þess afhenti samvinnunefnd mikið af gögnum. Fulltrúar vega- og orkugeirans komu hugmyndum sínum skilmerkilega á framfæri við nefndina sem vann úr þeim gögnum sem henni voru afhent. Höfundar gera athugasemd við að samvinnu- nefndin hafi ráðið sér 3 landslagsarkitekta sem ráðgjafa og benda á að einn þeirra sé fyrrverandi framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs og hinir tveir vel þekktir náttúruverndarmenn. Öllvinnuað- ferð þeirra eigi fyrst og fremst við þegar unnið sé að skipulagi fólkvanga og þjóðgarða en ekki svo viðamikið skipulag sem hér er á ferðinni. Ef frá er talin samantekt Trausta Valssonar á hug- myndum ýmissa aðila um framkvæmdir á hálend- inu hefur ekki áður verið unnið að heildarskipulagi fyrir miðhálendið. Sú leið sem valin var til að lýsa og skilgreina betur eiginleika þessa stóra svæðis með því að skipta því upp í landslagsheildir eftir náttúrufarsforsendum, nýtingarmöguleikum og mati á verndargildi gaf mjög góða raun og auðveld- aði nefndinni að átta sig á samanburði milli svæða, sérstöðu einstakra svæða og hugsanlegum hags- munaárekstrum. Samanburður þessi sem er settur fram á skilmerkilegan hátt mun nýtast í áframhald- andi skipulagsvinnu á svæðinu. Höfundar eru þeirrar skoðunar að það sé óleysan- legt lögfræðilegt vandamál að annars vegar sé verið að vinna að gerð svæðisskipulags innan skil- greindra marka miðhálendisins en hinsvegarsé verið að vinna að gerð svæðisskipulags fyrir að- liggjandi svæði eins og t.d. Skagafjörð, Eyjafjörð og Héraðssvæði sem samkvæmt tillögu að skipt- ingu landsins í sveitarfélög nái inn á miðhálendið. Ef ákveðið verður að skipta öllu landinu í sveitarfé- lög, eins og gengið er út frá, verður framgangurinn sá að t.d. svæðisskipulag á Héraðssvæði mun ná inn á miðhálendið. Fyrir þann hluta þess sem mörkuð hefur verið stefna um í svæðisskipulagi miðhálendisins gildir sú stefna og er tekin upp óbreytt í svæðisskipulagið á Héraðssvæði. Ef sú nefnd sem vinnur að svæðisskipulagi á Héraði kemst að þeirri niðurstöðu að breyta þurfi að ein- hverju leyti þeirri stefnumörkun getur hún gert til- lögu um það sem yrði auglýst og öllum hagsmuna- * „I bókinni „ísland hið nýja“ er hins vegar með órökstuddum fullyrðingum gefin svo röng mynd af eðli og framkvœmd skipulags á Islandi að ekki er hœgt að láta hjá líða að benda fólki á að lesa hana með fyrirvara. “ aðilum gefinn kostur á því að tjá sig um þá breyt- ingartillögu áður en málið kemur til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra. Eðli skipulagsáætlana er, hvort sem þær gilda fyrir miðhálendið eða önnur svæði, að þær þarf að endurskoða miðað við breyttar forsendur. Skipu- lagsáætlun þarf að vera í stöðugri endurskoðun. Það er skoðun höfunda að áður en ákveðið var að ráðast í gerð svæðisskipulags fyrir miðhá- lendið hefði þurft að liggja fyrir meiri mótunar- vinna á landsskipulagsstigi. Það er rétt að æskilegt hefði verið að meira hefði verið unnið að stefnumörkun í skipulagsmál- um á landsvísu. Ýmislegt liggur þó fyrir og ann- að er í vinnslu. Hitteralveg Ijóstaðekki erenda- laust hægt að bíða með það að ráðast í skipu- lagsgerð þartil stefnumörkun í öllum málaflokkum liggur fyrir. Tillaga að svæðisskipulagi miðhálend- isins ýtir vonandi undir að flýtt verði vinnu við stefnumörkun þar sem hana skortir. í þessu sam- bandi er rétt að benda á framkvæmdaáætlun 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.