AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 60

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 60
TRAUSTI VALSSON, SKIPULAGSFRÆÐINGUR, BIRGIR JONSSON, JARÐVERKFRÆÐINGUR Staðfesting svæðisskipulags MIÐHÁLENDISINS ER ÓTÍMABÆR Misbrestur var á að farið væri að stefnumótun réttkjörinna stjórnvalda Þessi grein er svar við grein Stef- áns Thors skipulagsstjóra hér að framan og einnig svar við nánast sömu grein Stefáns í nýlegu fréttabréfi hans, en reifar málið auk þess á breiðum grundvelli. AÐDRAGANDI AÐ SKIPULAGI MIÐHÁLENDIS- INS Flestar skipulagsáætlanir eru unnar fyrir lítil svæði og snerta þar með oftast hagsmuni fárra aðila. Á þessu er ein stór undantekning: Miðhálendið, sem nær yfir meira en 40% af flatarmáli íslands og þar sem fyrirfinnst mikill hluti auðlinda þjóðarinnar. Þriðja atriðið, sem með réttu ætti að undirstrika að skipulag Miðhálendisins varðar alla íbúa þessa lands, er að í skilningi flestra er Miðhálendið sam- eign allrar þjóðarinnar, jafnvel þó ríkið hafi ekki gengið formlega frá því atriði. Um 1990 kom upp mikil umræða um nauðsyn þess að fara að taka á málefnum þessa svæðis. Umhverfisráðuneytið lét skilgreina markalínu milli hálendis og heimalanda. Síðan lagði ráðuneytið fram frumvarp um að gera þetta svæði að nýju stjórnsýsluumdæmi. Gallinn við þá tillögu var, að umhverfisráðherra ætlaði sér afgerandi valdastöðu í stjórn þessa svæðis. Olli þetta miklum kurr, ekki síst á meðal þeirra byggða sem liggja að Miðhálendinu og vildu ógjarnan þurfa að sækja allt sitt, t.d. beitarréttindi, til þessar- ar stjórnar sem starfa átti á vegum umhverfisráð- herra. Var nú frumvarpið dregið til baka og annað lagt fram sem lög nr. 73/1993 um að aðliggjandi byggðum yrði fenginn réttur að gera tillögu að svæðisskipulagi Miðhálendisins. Á þessum tíma- punkti var þó ekki farið í það að skilgreina lögsögu- réttinn sem oftast er ákveðinn fyrst og leiðir þá sjálfkrafa til skipulagsréttar viðkomandi lögsögu- hafa. Þegar Samvinnunefnd um ofangreint svæð- isskipulag tók til starfa 1994 og var skipuð 13 full- trúum að mestu úr sveitarfélögum sem liggja að hálendinu, var greinilegt að hún túlkaði skipulags- réttinn á þann veg, að löggjafinn ætlaðist til þess í raun, að Miðhálendinu yrði skipt upp á milli aðliggj- andi sveitarfélaga. Var reyndar að beiðni nefndar innar settur á fót starfshópur nokkurra ráðuneyta til að skýra þessi væntanlegu lögsagnarmörk. FRAMKOMIN SKIPULAGSTILLAGA SAM- VINNUNEFNDARINNAR Árið 1994 buðu Samvinnunefndin og Skipulag rík- isins út, með almennu útboði, ráðgjafastarf við gerð svæðisskipulagstillögu fyrir Miðhálendið. Mörg tilboð bárust og lágu þau á bilinu 20-150 milljónir kr. Lægsta gilda tilboði, Landmótunar ehf. var tekið, en eigendur þess eru þrír landslagsarki- tektar. Venja er að hafa umræður og mótunarfundi í þeim sveitarfélögum sem viðkomandi svæði tilheyrir. Þar sem stærstur hluti Miðhálendisins tilheyrir al- menningi skv. skilningi flestra eins og komið hefur fram í nýlegum hæstaréttardómum, hefði nefndin átt að opna mótunarumræðuna um allt land, þ.á m. í stærstu sveitarfélögunum. Voru á þriggja ára tímabili skipulagsvinnunnar, haldnir fjölmargir fundir um gerð skipulagsins úti á landsbyggðinni en ekki í hinum stóru þéttbýlissveitarfélögum. Þegar skipulagstillagan var síðan gefin út með 600 bls. greinargerð á 6000 kr. og auglýst eftir athuga- semdum síðastliðið vor, var það í fyrsta skipti sem margir höfðu heyrt af þessari vinnu. í Ijósi þessa kemur það spánskt fyrir sjónir að Stefán Thors skuli segja í fyrrnefndri grein: „Nefndin kynni til- lögur sínar fyrir öllum hagsmunaaðilum og allri þjóðinni er gefinn kostur á að tjá sig um þær". Þjóðin fékk ekki að koma að málinu á meðan skipulagsvinnan stóð yfir, en getur kynnt sér skipu- lagstillögurnar með því að kaupa 600 bls. greinar- gerð. Miklar óánægjuraddir hafa komið fram með hve óaðgengileg greinargerðin sé, enda hefði ver- ið eðlilegt að gefa út stutt, ókeypis kynningarrit með aðalatriðum málsins. í grein Hilmars J. Malmquist, líffræðings og Brynju Valsdóttur, sem bæði eru í stjórn Náttúruverndar- samtaka íslands, í Mbl. 8/11 “97 segja þau undir millifyrirsögninni Almennilega kynningu, takk: „Kynningiri á tillögunum í vor var einnig þannig að fólk, óvant að rýna í kort og töflur, og hvað þá held- ur óvanur almenningur, getur vart hafa áttað sig á því með góðu móti hvað felst í henni". 58
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.