AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 29

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 29
Svæðin eru: I Nesið: Reykjavík vestan Elliðaáa og Seltjarn- arnes II Norður: Norðausturhluti Reykjavíkur ásamt Mosfellsbæ og Kjósarhreppi III Austur: Austurhlutar Reykjavíkur og Kópavogs IV Suður: Vesturhluti Kópavogs ásamt Garðabæ, Bessastaðahreppi og Hafnarfirði Skipting í undirsvæði hefur það að markmiði að skapa yfirlit yfir framtíðarþróun á höfuðborgar- svæðinu án þess að binda sig um of við núverandi mörk sveitarfélaga. Undirsvæðin afmarka því svæði þar sem byggðarþróunin tengist sameigin- legri þjónustu, stærri vegamannvirkjum og val- kostum í almenningssamgöngum. Skiptingin hent- ar vel þegar bera skal saman mismunandi uppbyggingu til norðurs, austurs og suðurs. Eitt af áðurnefndum markmiðum er að ná fram jafnvægi á milli fjölda íbúa og starfa innan hvers undirsvæð- is fyrir sig. Breyting á fólksfjölda og íbúðaþróun 1997 - 2020 Á grundvelli fyrirliggjandi fólksfjöldaspár er gert ráð fyrir heildarfjölgun sem nemur 56.000 íbúum og að íbúafjöldinn verði alls 220.000 árið 2020. Þetta svarar til árlegrar fjölgunar um 2.800 íbúa sem að verulegu leyti er til komin vegna aðflutn- inga frá landsbyggðinni. Þessi þróun er hluti af stærra samhengi sem einnig þarf að fjalla um á öðrum vettvangi. Samkvæmt fólksfjöldaspánni stefnir í að íbúar á höfuðborgarsvæðinu verði tæplega 70% af fólksfjölda á öllu landinu árið 2020. Meðalstærð heimilis hefur minnkað á síðari árum og gert er ráð fyrir að þessi breyting haldi áfram. Helsta ástæðan er breytt aldurssamsetn- ing með fleiri öldruðum, færri börnum og að fleiri flytja ungir úr foreldrahúsum. Á grundvelli þróu- narinnar hingað til er gert ráð fyrir að heimilis- stærðin minnki úr um 2,63 íbúum á íbúð árið 1997 í um 2,3 árið 2020 að rmeðaltali sem gerir að verkum að byggja þarf íbúðir fyrir 16.000 manns til viðbótar við áætlaða fólksfjölgun. ÁTTA TILLOCUR Eins og áður segir voru í júní lögð fram drög að nokkrum svæðisskipulagstillögum. Um var að ræða tillögur byggðar á þematillögunum sem lagðar voru fram í febrúar og sem unnið hafði verið að m.a. með hliðsjón af umfjöllum sveitar- félaganna. Tillögurnar voru átta talsins og fjölluðu um valkosti byggðarþróunar á svæðinu. Út frá forsendum sem raktar eru í greinargerð með tillö- gunum er landþörf til ársins 2020 reiknuð út og áhrif mismunandi þróunarkosta skoðuð og þeir bornir saman. Einnig er reynt að varpa Ijósi á miðbæjarstarf- semi á svæðinu og hvernig henni yrði sem best fyrir komið. Eftirtaldar tillögur voru til umfjöllunar: A1 Einn miðbæjarkjarni með þróun byggðar til suðurs A2 Einn miðbæjarkjarni með þróun byggðar til norðurs B1 Tveir miðbæjarkjarnar með þróun byggðar til suðurs B2 Tveir miðbæjarkjarnar með þróun byggðar til norðurs C1 Fjölkjarna svæði með þróun byggðar til suðurs C2 Fjölkjarna svæði með þróun byggðar til norðurs D Þétting núverandi byggðar E Dreifð þróun byggðar til norðurs, suðurs og austurs Reynt var að meta tillögurnar eftir matsatriðum sem byggja á þeim rekstrarlegu markmiðum sem áður var getið um. Ekki verður fjallað frekar um tillögurnar hér en vísað á heimasíðu svæðisskipulagsins á eftir- farandi netfangi: www.svaedisskipulag.ssh.is þar sem ítarlega er gerð grein fyrir tillögunum. NÁLÞING Málþing um framtíðarsýn fyrir höfuðborgar- svæðið var haldið 2. júní þar sem fjallað var um málefnið: „Af hverju á höfuðborgarsvæðið að lifa á næstu öld.“ Unnið var í hópum að ýmsum málefn- um og leiddi málþingið til þess að haldin var opin ráðstefna í byrjun nóvember undir heitinu: Lífsskil- yrði og atvinnuhættir á höfuðborgarsvæðinu á næstu öld - hvert stefnir. í júníbyrjun var einnig lögð fram skýrsla um hafnir á höfuðborgarsvæðinu. Þar var lagt til að meiri samvinna yrði viðhöfð milli hafna og hafnar- svæða á höfuðborgarsvæðinu og einnig var kom- ist að þeirri niðurstöðu að ekki væri þörf á jafn miklu svæði fyrir hafnaraðstöðu í Geldinganesi og gert væri ráð fyrir í núverandi aðalskipulagi Reykjavíkurborgar. Skýrslan hefur verið til umfjöll- 27

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.