AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 66

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 66
varða landnotkun, notkun, ásýnd, umferð, hús- vernd, útivist, uppbyggingu o.fl. eru settar fram. Þróunaráætlun er auk þess ætlað að setja leik- reglur um samskipti og vera vettvangur breytinga á lögformlegum skipulagsáætlunum er varða þró- un miðborgarinnar. Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Reykja- víkur 1996-2016 sem hér fer á eftir er fyrsta skref af mörgum. í beinu framhaldi munu fleiri breyting- ar á skipulagsáætlunum og ýmsar samþykktir, er varða miðborgina, líta dagsins Ijós og verða kynnt- ar. HVERS VEGNA ÞROUHARAÆTLUN? Grundvöllur Þróunaráætlunar er sú skoðun margra að ástand miðborgarinnar gæti verið mun betra en það er í dag. Það á jafnt við um þá sem þar búa, starfa, stunda rekstur eða sækja hana heim. Flestir bera hins vegar taugar til miðborg- arinnar og vilja auka veg hennar. Markmið Þróun- aráætlunar lúta í meginatriðum að þremur þáttum þ.e. efnahagslegum vexti og uppbyggingu, félags- legum og samfélagslegum þörfum og bættu um- hverfi. Með Þróunaráætlun og þeim breytingum sem hún hefur í för með sér er jafnframt verið: ■ Að skapa grundvöll að lýðræðislegri þátttöku í lögformlegri stjórnun uppbyggingar. ■ Að skapa grundvöll að samræmingu og jafn- ræði í uppbyggingu og landnotkun. ■ Að leggja grunn að áætlun um eftirlit með framkvæmd skipulags og sískoðun á því. Þróunaráætlun fjallar um það svæði sem í dagiegu tali kallast miðborg, hér eftir kallað mið- borgarsvæði(Höfðatún, Langahlíð, Hringbraut, Ljósvallagata,Hofsvallagata, Ægisgata, Tryggva- gata og Sæbraut, sjá 1. kort hér að aftan). Áætlunin verður unnin á þann hátt að hverju sinni verða teknir fyrir hlutar miðborgarsvæðisins en ekki gerðar breytingar á því öllu í einu. í fyrsta framkvæmdaþætti hennar er unnið með verslun- arsvæði miðborgarsvæðisins þ.e. Laugaveg, Hverfisgötu, Skólavörðustíg, Kvosina, og stofn- anasvæði Arnarhváls. Með öðrum orðum þann hluta miðborgarsvæðisins sem hefur landnotkun- arflokkinn miðborg-miðsvæði í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, hér eftir kallað miðborg. Þessi fyrsti framkvæmdaþáttur kallar á breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 og samþykkti skipulags-og umferð- arnefnd Reykjavíkur á fundi sínum 11. október s.l að senda tillögu þess efnis í lögformlega kynningu sem nú stendur yfir. Á næstu misserum verður fjallað um öll svæði miðborgarsvæðisins á svipað- an hátt þó ekki þannig að allar tillögur Þróunar- áætlunar leiði til breytingar á aðalskipulagi borgar- innar. HVAÐ ER FYRSTI HLUTI ÞROUNAR- AÆTLUNAR? Sú tillaga sem samþykkt var í skipulags-og umferðarnefnd felur í sér: 1. Breytta afmörkun hluta miðborgarsvæðisins sem í Aðalskipulagi Reykjavíkur hefur landnotk- unarflokkinn miðborg-miðsvæði og aðrar land- notkunar breytingar sem því fylgja (sjá 2. kort). 2. Nánari skilgreiningu á landnotkun miðborg- arsvæðisins í landnotkunarreiti í samræmi við ríkj- andi og fyrirhugað skipulag, þ.e. miðborgarkjarna, atvinnusvæði og verslunarsvæði (sjá 3.kort). 3. ítarlegri skilgreiningu á notkun innan ein- stakra landnotkunarreita með vísan til staðbund- innar samþykktar. Tillagan fjallar í meginatriðum um að stýra landnotkun í miðborginni nánar en gert hefur verið hingað til. Þannig er 3. liður hér að ofan nákvæm flokkun og greining á landnotkun. Flokkunin bygg- ir á enskri fyrirmynd, sk. „use classes" en mikil vinna hefur verið í lögð í að laga þá að íslenskum aðstæðum.Tilgangur með skilgreiningu á notkun- arflokkum er að einfalda framsetningu skipulags- áætlana þannig að skýrari reglur gildi um það hvaða notkun má vera hvar. Markmið með nánari flokkun á notkunarflokkum eru eftirfarandi: 1. Að til verði flokkunarkerfi sem skilgreini, af meiri nákvæmni en nú, mismunandi notkun svæða og bygginga í miðborginni. 2. Að Ijóst sé hvenær þurfi heimild skipulags-og byggingaryfirvalda þegar tillaga er gerð um breytta notkun byggingar, lóðar eða svæðis. 3. Að nákvæmara sé hvaða notkun má vera inn- an einstakra landnotkunarreita miðborgar og slík flokkun tryggi betur: ■ Að andstæð notkun verði skilin að hvenær sem slíkt er mögulegt. ■ Nauðsynlega fjölbreytni og bæti úr ójafnvægi. Réttindi einstakra íbúa, atvinnurekenda, gesta og borgarinnar í heild. ■ Jafnræði borgaranna. í tillögu skipulags- og umferðarnefndar er gert 64
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.