AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Blaðsíða 77
fyrirspurnatól sem gera almennum notendum fært
að tvinna saman fyrirspurnir í framantalin gagna-
söfn og sækja þangað margvíslegar upplýsingar.
Hér verður drepið á tvö slík tól sem eru í þróun og
hafa hlotið nöfnin Borgarsjá og Borgarvefsjá.
Borgarsjá hefur verið í þróun síðan í byrjun
s.l. árs. Hún er forrituð í Delphi, notar s.k. Map
Objects korteiningar og er ætluð fyrir notkun á
einkatölvum með Windows notendaumhverfi á
aðildarstofnunum LUKR. í Borgarsjánni eru nú
fyrir hendi fjölmargir möguleikar til að tvinna sam-
an fyrirspurnir í öll framangreind gagnasöfn.
Svo dæmi séu tekin getur notandinn afmarkað
sér svæði á skjánum með mörgum aðferðum,
spurt um mál til meðferðar í nefndum borgarinnar
á tilteknu tímabili á þessu svæði, fengið þau hús
eða lóðir í sérstökum lit, nafnalista íbúa eða eig-
enda, fengið fólksfjölda og aldursdreifingu, verð-
mæti lóða og bygginga sett fram með ýmsu móti,
margvíslegar upplýsingar um hús og lóðir, um
landnýtingu úr Aðalskipulagi, vegalengdir, flatar-
mál o.fl. Borgarsjáin getur bæði svarað spurning-
um af gerðunum „hvað er hér?“ og „hvar eru ...?“.
Borgarvefsjá er styttra á veg komin. Henni
er ætlað að leysa svipuð viðfangsefni og Borgar-
sjá, en verður aðgengileg almenningi á Netinu.
Hún er forrituð í Java. í fyrsta áfanga sem gert er
ráð fyrir að opna almenningi í haust í tengslum við
heimasíðu Reykjavíkurborgar verður hægt að fá
kort af húsum og lóðum í borginni, m.a. með því
að slá inn heimilisfang, stækka og minnka kortið
og færa sig til („zoom“ og ,,pan“), sjá fólksfjölda í
húsum, öll lagnakerfi, fylgjast með úthlutun lóða
í Grafarholti frá degi til dags og fá almennar
upplýsingar um lóðaúthlutanir. í næstu áföngum
eru ýmsar hugmyndir í bígerð, m.a. er áhugi á að
fólk geti fylgst með hvort og þá hvenær fram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar á stað sem menn velja
sér, geti fengið skönnuð mæliblöð af lóðum og af-
stöðumyndir, séð margvíslegar stjórnsýsluskipt-
ingar borgarinnar (skólahverfi, póstnúmerasvæði,
þjónustusvæði Gatnamálastjóra o.s.frv.), upplýs-
ingar um byggingamagn, fasteignamat, aldurs-
samsetningu o.s.frv. Birting gagna úr Fasteigna-
mati og Þjóðskrá er háð leyfi viðkomandi gagna-
eigenda. Einnig þarf leyfi Tölvunefndar, einkum
varðandi upplýsingar úr Þjóðskrá. Viðræður við
nefndina standa nú yfir og hefjast senn við gagna-
eigendurna.
LOKAORÐ
Gagnaþemun í LUKR eru misjafnlega langt á
veg komin og innan hvers lags eru gögnin sömu-
leiðis misgóð. Hver stofnun ber ábyrgð á og ann-
ast eigin gagnasöfn. Stöðugt er unnið að því að
bæta gögnin og halda þeim við með endurmæl-
ingum og öðrum tiltækum aðferðum og er það
orðinn hluti af daglegum rekstri stofnananna.
Gagnavinnsludeild - LUKR í Skúlatúni 2, sem og
aðrir aðilar LUKR, leitast við að veita upplýsingar
um allt sem varðar gagnasöfnin á hverjum tíma
og taka þakksamlega við ábendingum um það
sem betur má fara, enda þurfa notendur gagn-
anna á stofnununum og viðskiptavinir LUKR að
geta treyst því að í gagnasöfnunum sé alltaf
að finna bestu fáanlegar upplýsingar á hverjum
tíma. ■
Þú ert kominn á slóðina - eftirleikurínn verður auðveldur
www.boksala.is
Á vefsíðum okkar hefur þú gott yfirlit yfir þær bækur sem
eru á boðstólum, leitarvél til að finna ákveðnar bækur, lista
yfir útgefendur og eyðublað til að fylla út ef þú vilt panta.
bók/aJfc. /túdei\t\
Stúdentaheimilinu við Hringbraut • Simi 5700 777
75