AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Blaðsíða 44
fræðilegt stílbrot og hljóta fyrr eða síðar að ganga
til baka.) Það gæti verið gott upphafsskref til
sameiningar svæðisins alls að endurreisa sem
fyrst þessa tvo fornu hreppa, leggja Seltjarnarnes-
kaupstað og Kópavog til Reykjavíkur, og sameina
Bessastaðahrepp, Garðabæ og Hafnarfjörð í eina
heild. Jafnframt þarf að koma á fót skipulögðum
hverfastjórnum í báðum sveitarfélögunum og skil-
greina í einstökum atriðum verkaskiptinguna milli
þeirra og yfirstjórnarinnar. Eðlilegt virðist að
stærri einingarnar hefðu skipulagsmálin á sinni
könnu, gatna- og vegakerfið og rekstur veitustofn-
ana, - en hverfin ættu að vera sjálfráð um félags-
leg mál af ýmsu tagi, þar á meðal rekstur bæði
grunnskóla og leikskóla. Með þessu ynnist tvennt:
annars vegar aukin hagkvæmni á þeim sviðum
þar sem stærð rekstrareiningarinnar skiptir máli,
og gleggri yfirsýn yfir heildina; og hinsvegar vald-
dreifing og aukið lýðræði á þeim sviðum sem
standa næst fólkinu sjálfu.
Þessi hugmynd að skipulagi höfuðborgarsvæð-
isins var fyllilega tímabær fyrir aldarfjórðungi þeg-
ar ég orðaði hana fyrst, og núna held ég sé farið
að verða óhjákvæmilegt að íhuga hana í fullri
alvöru. Annars vegar er skipting svæðisins í sex
sveitarfélög alvarlegur dragbítur á eðlilega þróun
þess; en á hinn bóginn eru stærstu sveitarfélögin
- og þá sérstaklega Reykjavíkurborg - orðin svo
stór að þau geta ekki annað en stjórnað jafnvel
viðkvæmustu grenndarmálum, eins og til að
mynda skólamálum, á miðstýrðan og ólýðræðis-
legan hátt. Með því skipulagi sem hér hefur verið
reifað væri hægt að eyða þessum annmörkum
báðum.
(Þessi grein hefur áður birst í Morgunblaðinu og er hér birt á ný með
leyfi höfundar.) I
Kynnring á bæklringri -
99Sustarinable retaril premrises46
Tímaritinu hefur nýverið borist bæklingur sem
ber heitið „Sustainable retail premises: an envi-
ronmental guide to design, refurbishment and
management of retail premises," eftir Josephine J.
Prior. Þessi bæklingur er gefinn út af CRC
(Construction Research Communications), og
kostar £ 39,50. Hægt að panta hann frá CRC á
netinu (crc@construct.emap.co.uk).
Bæklingurinn, sem fjallar um sjálfbær verslu-
narhverfi og verslanir er 84 síður og fjallar um fjöl-
marga þætti þessa máls, allt frá skipulagi verslu-
narsvæða til hönnunar og rekstrar einstakra ver-
slana sem vilja leggja áherslu á sjálfbært, vist-
vænt umhverfi. í bæklingnum er einnig að finna
góðan gátlista fyrir þá sem fást við skipulag og
rekstur verslunarhverfa og 180 tilvísanir í mikil-
vægar heimildir á þessu sviði. ritstj. ■
42