AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Blaðsíða 35
Sem dæmi má nefna að litlar upplýsingar eru til
um ferðavenjur, verslunarhætti og almennt um
atvinnulífið á svæðinu og sama gildir um óskir
íbúanna um húsagerðir og umhverfi. Stefnumótun
frá fagráðuneytum í einstökum málaflokkum sem
tengjast þéttbýlisþróun, eins og gerist á Norður-
löndum, er lítil hér á landi nema helst í umhverfis-
málum.
Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið gríðarlega hratt
síðustu áratugi aðallega vegna mikils aðflutnings
fólks frá landsbyggðinni með þeim afleiðingum að
byggðin hefur þanist hratt út. Hvert sveitarfélag
hefur gert sína aðalskipulagsáætlun án þess að
mikillar samræmingar fyrir svæðið í heild hafi gætt
í þeirri vinnu. Samkeppni milli sveitarfélaga um út-
hlutun byggingalóða hefur verið meira áberandi
en samráð í skipulagsrmálum.
Almenningi og hagsmunahópum hefur blöskrað
þessi þróun og síðustu misseri hafa komið fram
margar ábendingar og tillögur frá ýmsum aðilum
sem taka þarf tillit til. Flestar þessar tillögur fjalla
um nauðsyn þess að takmarka útþenslu byggðar,
t.d. með þéttingu byggðar, nýrri byggð á landfyll-
ingum, flutningi Reykjavíkurflugvallar og nýtingu
þess lands fyrir byggð og eins hafa margir bent á
nauðsyn þess að bæta almenningssamgöngur á
svæðinu. Sjá mynd 1. Þetta er þó ekki eins auð-
velt og ætla mætti, því flestum tillögum skipu-
lagsyfirvalda um nýbyggingar eða þéttingu byg-
gðar í grónum hverfum á síðustu árum hefur verið
mótmælt kröftuglega af nágrönnum. Það er því
að mörgu að hyggja í nýrri svæðisskipulags-
áætlun og ekki seinna vænna að móta stefnu um
byggðaþróun fyrir höfuðborgarsvæðið.
ÞROUNIN ERLENDIS
Einkabíllinn, eða almenn bílaeign almennings,
hefur haft meiri áhrif á skipulag flestra borgar-
svæða á Vesturlöndum síðustu fjóra áratugi en
aðrir þættir í þjóðfélagsþróuninni. Með tilkomu
einkabílsins var ekki lengur þörf fyrir að byggja
þétt innan göngufjarlægðar frá lestar- eða spor-
vagnalínum og fór byggðin því að þenjast út í allar
áttir út frá gömlu borgarbyggðinni. Almenn vel-
megun og ameríski draumurinn um einbýlishús í
úthverfi hafði og mikil áhrif, þannig að þéttleiki
byggðarinnar varð mun minni en áður hafði tíðk-
ast. Afleiðingin varð sú að borgarbyggðin þandist
út yfir mörg sveitarfélög og varð svo gisin að ekki
varð grundvöllur fyrir hefðbundna nærþjónustu
eða hverfaþjónustu, sem byggðist upp í fáum en
stórum verslunarmiðstöðvum á mótum hrað-
brauta, en á sama tíma hnignaði miðborgum. Sjá
mynd 2. Alvarlegasta afleiðingin varð samt sú, að
samkennd og félagsleg samskipti sem einkenndu
eldri þéttari borgarhverfi var horfin. Fólk einan-
graðist í úthverfunum og var bjargarlítið ef það gat
ekki ekið bíl. (Sjá nánar þrjár greinar höfundar í
Lesbók Morgunblaðsins ágúst-sept. 1998 um
þróun borga Við aldahvörf).
Það sem hefur einkennt alla umræðu og al-
menna stefnumótun um skipulag borgarsvæða
síðasta áratug þessarar aldar eru einmitt óskir um
að vinda ofan af þessari þróun. í Bretlandi hefur
ráðgjafahópur um skipulagsmál „The Urban Task
Force“ mælt með því að 60% af nýbyggingum í
breskum borgum næstu 25 árin verði komið við
með endurnýjun eldri borgarhverfa, aðallega með
endurskipulagningu úreltra iðnaðarhverfa til að
takmarka útþenslu borgarbyggðar. Þá mæla þeir
með því að 65% af opinberum fjárveitingum sem
fara til samgöngumála verði ráðstafað til að
byggja upp almenningssamgöngur og hjóla- og
göngusvæði. Þetta kemurfram í lokaskýrslu hóps-
ins „Towards an Urban Renaissance" sem kom út
Mynd 2. íbúar og ferðir í Bandaríkjunum 1969-1990:
Hiutfailsleg aukning
Fjölgun ibúa FjMgun ieröa Leogd leröa
Draga má úr fjölda bílferða og lengd þeirra með því að
þétta byggð í og umhverfis þjónustukjarna í úthverfum,
þ.e. auka framboð af þjónustu og atvinnutækifærum í út-
hverfum.
sl. sumar.
í Bandaríkjunum eru svipaðar hugmyndir í gangi
meðal skipulagsfræðinga og fáar bækur hafa haft
eins mikil áhrif þar í landi síðustu ár og bók Peters
Calthorpe, „The Next American Metropolis: Eco-
logy, Community and the American Drearn" sem
út kom 1993. Lausn Calthorpes felst m.a. í því að
þétta byggð umhverfis biðstöðvar almennings-
vagnakerfisins og leyfa meiri blöndun íbúða og
atvinnustarfsemi í þessum kjörnum. Tískuorðið
33