AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 76

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 76
„afgreiðslugjalcf sem er fyrir notkun á vél- og hugbúnaði hjá Borgarverkfræðingi og umsýslu þar og rennur gjaldið til hans. Þetta gjald er nú kr. 1500 fyrir hverja úttekt, en allt sem tekið er út inn- an einnar klukkustundar telst aðeins ein úttekt, þótt úttektarsvæðin séu mörg. Fyrir notkun sjálf- ra gagnanna á stafrænu formi er að auki greitt s.k. „gagnagjald", sem rennur til aðila LUKR í sömu hlutföllum og þeir greiða kostnað við uppbyggingu og viðhald LUKR. Hægt er að fá gögn afgreidd „handvirkt" í Skúlatúni 2, án þess að Netið komi þar við sögu. Handvirk aðferð er nú orðið einkum notuð ef menn eru að taka út mjög mikið magn, t.d. heil gagnaþemu, eða þurfa gögnin í formi sér- unninna korta. Þá er lágmarksafgreiðslugjald 3500 kr/tíma, en algengast er að það sé um 5000 kr, að CD-diski eða pappírs- og prentkostnaði meðtöldum. Fyrir gögn á pappírsformi, svo og s.k. „prentskrár" (tiff, eps o.s.frv.) þarf aðeins að greiða afgreiðslugjald. Gagnagjaldið við handvirka af- greiðslu er hið sama og á Netinu. Það er 10 kr/ha hvers fullgilds gagnaþema, en fyrir fast- og hæðarmerkjaþemað greiðast þó aðeins 5 kr/ha og 2,50 kr/ha fyrir þemað strandlínur-ár-vötn. Hvert þema reiknast vera 5000 ha að stærð, þannig að stofnverð flestra þema er 50.000 kr. Vaxandi afsláttur er af gagnagjöldum, ef menn taka fleiri en eitt fullgilt þema, allt upp í 45% fyrir þemu umfram 10, en 15 þemu standa til boða. Ef heil þemu eru tekin, teljast menn þar með vera orðnir áskrifendur að þeim og geta eftir það fengið heildaruppfærslur árlega með því að greiða 15% áskriftargjald, reiknað af stofnverði hvers gagnaþema án afsláttar, eða 7500 kr/ári. Greiðsla gagnagjalds veitir rétt til að fram- leiða hverskyns afurðir úr gögnunum, en þó ekki til dreifingar stafrænna gagna til þriðja aðila, t.d. sem hluta af hugbúnaði. Um það er samið sér- staklega og hafa þegar verið gerðir nokkrir slíkir samningar við hugbúnaðarfyrirtæki. SDE, BORGARSJA OG BORGARVEF- SJÁ: SDE er skammstöfun á hugbúnaði frá ESRI, sem á ensku nefnist Spatial Database Engine („staðgagna-safnsvél"). Hlutverk þessa hugbún- aðar er í stuttu máli sagt að auðvelda samteng- ingu LUK og almennra gagnagrunna. Nýlega hafa öll gagnasöfn LUKR verið „sett undir SDE“ og komið fyrir á Oracle-gagnagrunnsmiðlara Borgarverkfræðings, þar sem fyrir var Erindreki, sem er upplýsingakerfi Byggingarfulltrúa og Borgarskipulags, með tengingum við Fasteigna- skrá og Þjóðskrá. Við það að þessi söfn eru nú öll undir Oracle og SDE á sama gagnagrunn- miðlaranum og geymd þar á sama hátt, næst full- komin samþætting gagnanna og tryggt er að allir séu ávallt að vinna með sömu gögn og jafn- framt nýjustu útgáfu þeirra. Nú er hægt að gera samskonar fyrirspurnir í grafísk gögn og „texta- gögn“, þar er ekki lengur nein gjá á milli. Allar landfræðilegar fyrirspurnir geta því farið í gegnum SDE, sem sækir alltaf nýjustu upplýsingar í söfnin. Með þessu hafa opnast leiðir til að þróa öflug Borgarsjá, stöðluð aldursdreifing á völdu svæði. Landupplýsingakerfi Reykjavíkur - Úttekt gagna úr LUKR- Landupplýsmgakerfi Reykjavflcur geymir viðamiklar landfraiðilegar upplýsingar um götur, byggingar, lóðir, hæðalínur, lagnakerfi o.fl. í Reykjavflc. Þessi gögn eru á stafrænu formi sem notendum gefst kostur á að sækja hér. Úttekt á DXF gögnum Úttekt á SHAPE gögnum Úttekt á ArclNFO gögnum Náð í úttekin gögn Upplýsingar um skráningu I Upplýsingar um gögn LUKR Tilmæli til hflnnuða! Hönnuðir sem skila teiknmgum fil Borgarverkfræðings á tölvutæku formi eru vinsamlegast beðnir um að flokka lagheitin samkvæmt flokkunarreglum LUKR/LMÍ. Þessar flokkunarreglur má finna á á vefsíðu LUKR. 74

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.