AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Side 21

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Side 21
sókn Glostrup í Kaupmannahöfn). Vinnugetan hefur aukist. í dönsku rannsókninni fundu menn líka betra andlegt ástand þekkingar- og stærðfræðihæfileika og leikni. Mun fleiri 70 ára hafa hlotið fram- haldsmenntun við menntaskóla, sérskóla eða jafnvel háskóla en sjötugir fyrir 20-30 árum. Þetta fólk er því virkara og vill hafa eitthvað fyrir stafni. Af þessum sökum líður þeim verr í athafna- leysinu og nota meira af andleg- um deyfðarlyfjum. Þessi þróun er til vansa. 7. Fordómar. Unglingadýrkunin eykst stöðugt og þeir umgangast mest þá sem eru á þeirra aldri. Þeir eldri einangrast meira og meira og hafa sífellt minna fyrir stafni. Þetta er grundvöllur for- dóma. „68 kynslóðin mun ekki sitja undir þessu þegjandi og láta sér nægja „minimum existens index“ og bryðja með því geð- deyfðarlyf. 8. Þegar ég var landlæknir vann ég mikið með félagsleg-, líkam- leg- og sálfræðileg vandamál þeir- ra sem eru útundan í samfélaginu. Hvað viðkom eldra fólki var þetta skylda mín því samkvæmt lögum hafa allir sama rétt til heilsu- og félagsþjónustu á öllum sviðum. Þetta er keppni um lífskjör manna og hvað það varðar hefur mitt starfssvið ekki breyst mikið. Það heldur áfram að vera barátta við stjórnmála- og kerfisfólk. Aldraðir fylla biðlistana á sjúkrahúsunum. Það sama gildir um hjúkrunar- heimili. Aldraðir eru ekki í for- gangsflokki, jafnvel ekki hvað við- víkur félagsmálum. Þetta er orðin keppni um fjármagn, styrki og laun. Ef fjöldi innflytjenda til Evrópu eykst ekki mikið næstu áratugi mun meðalaldur í Evrópu og jafn- vel á Norðurlöndum verða hærri en 50 ár. „Evrópa verður aðsetur fátækra gamalmenna" . Þessi Verktakar í flotílögnum S8971080 www.flotefni. is fiotefni@mmedia.is «______________________- Verður Evrópa aðsetur fátækra gamalmenna? þróun mum þó að öllum líkindum gerast hægar á íslandi vegna hærri frjósemi. Meðalaldurinn verður mun lægri í Bandaríkjunum vegna fjölda innflytjenda. Breytilegur eftirlaunaaldur Árið 1988 gerði landlæknir þá tillögu til Alþingis að tekinn yrði upp sveigj- anlegur eftirlaunaaldur frá 64-74 ára. Alþingi samþykkti þetta að hluta með því að setja á stofn nefnd sem hætti störfum eftir nokkur ár. Fjórtán árum seinna var lögð fram tillaga á Alþingi um sveigjanlegan eftirlaunaaldur frá 64-72 ára. Þetta mál var tekið upp aftur vegna þrýstings frá öldruðum. Ef til vill tók þetta langan tíma en þetta er þó eitt- hvað til að gleðjast yfir. ■ RENNISIÍTT • Flotílagnir í nýbgggingar • Verksmiðju- og lagergólf • Sérstök bílageymslugólf • Afrétting gólfa undir gólfefni • Tilboðsgerð og ráðgjöf

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.