AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Síða 40

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2003, Síða 40
Jórunn Ragnarsdóttir, arkitekt Teiknistofa Lederer, Ragnarsdóttur og Oei í Stuttgart Teiknistofa okkar var stofnuð árið 1979 og þar eru nú yfir 20 starfs- menn (15 arkitektar og fimm arki- tektúrnemar í starfsnámi). Til þess að starfsmennirnir komist í sem nánast samband við verkefni stof- unnar vinna þeir í litlum hópum. Hver hópur heldur saman meðan verkefnið varir og náið samstarf er á milli hópanna. Þetta vinnulag kann fljótt á litið að virðast heldur óhagkvæmt og ósveigjanlegt. Engu að síður er það reynsla okk- ar að þetta fyrirkomulag hafi mjög góð áhrif á starfsánægjuna - og hvers getur maður óskað sér frekar en áhugasams samstarfs- fólks? Teiknistofan leggur ríka áherslu á að takast á við nýstárleg verkefni. Um árabil höfum við aflað slíkra verkefna, mestmegnis með þátt- töku í samkeppnum. Af þessum sökum skipa samkeppnir, auk reglubundinna verkefna, ríkan sess í starfseminni. En þátttaka í samkeppnum er ekki aðeins að- ferð til að afla nýrra verkefna, heldur gefur hún ekki síður tæki- færi til að takast á við áskoranir líðandi stundar. Einnig reynir teiknistofan að koma sér á fram- færi hjá aðstandendum lokaðra samkeppna með því að sýna skyld verkefni og taka þátt í sýn- ingum og ýmiss konar útgáfu- verkefnum. Frumskissur sem gefa vísbendingu um heildstæða hönnunarhugmynd, nákvæm flat- argreining og vinnulíkön gegna einnig þýðingarmiklu hlutverki í þessu sambandi. Á árinu 2003 hefur teiknistofunni m.a. tekist að vinna til verðlauna í samkeppni um viðbyggingu við höfuðstöðvar kaþólsku kirkjunnar í Rottenburg (Tubingen), starfsmenntaakademí- una í Lörrach, Hús kirkjunnar í Heilbronn og heimavist ásamt kennaraíbúðum í Schwábisch Gmund. Önnur mikilvæg verkefni sem teiknistofa okkar hefur feng- ist við, s.s. bygging raforkufyrir- tækisins EVS (EnBW) í Stuttgart (1997), Salem International Col- lege í Uberlingen (2000) og skólabygging og íþróttahús í Ost- fildern (2002), eiga einnig rætur að rekja til þátttöku í samkeppn- um. Það er markmið teiknistofu okkar að koma fram með skýra stefnu á sviði arkitektúrs sem lýsa má með þessum orðum: „Við lítum til baka á 4000 ára byggingarsögu þar sem maðurinn hefur skapað sér rými sem svara líkamlegum og sálrænum þörfum hans. Þessi rými búa yfir merkingu sem gerir þau að sendiboðum menningar- legrar arfleifðar - þau skilgreina staði og hitta í mark vegna áþreif- anlegra og skynrænna eiginleika sinna. Hví skyldum við þá leitast við að skapa gegnsæ rými sem segja okkur þegar við göngum inn í þau: Þú ert aftur komin(n) út!“ Þetta eru einkunnarorð okkar. Og afstaðan sem í þeim felst varpar jafnframt Ijósi á nálægð hins hlað- na útveggjar. Þar sem aðrir skera göt í útveggina og glerja þau til að hampa gegnsæi arkitektúrs sam- tímans, þar sem fíngerð glerhimna reynir að má út markalínuna milli þess sem er inni og úti - þar vilj- um við sýna að við höfum aðra afstöðu. Rýmin sem við hönnum eru oftast umlukin traustri steinkápu, því við viljum að hægt sé að skynja hinn líkamlega þunga. „Hvað gerir módernisminn okkur með því að byggja útvegginn úr gleri jaegar ekki er þörf á gleri frá sjónarhóli hönnunarinnar? Hvaða hag höfum við af því að láta fólk sem gengur upp stiga fá á tilfinn- inguna að það sé úti, þótt það sé í raun inni? Gerir þessi tilhneiging til gegnsæis, til útiveru, ekki möguleika arkitektúrsins fátæk- legri? (Arno Lederer). „Inni er öðruvísi en úti“ - með þessum orðum erum við ekki að boða skýra aðgreiningu á milli innri og ytri rýma í byggingum, heldur að hafna þránni eftir því að eyða muninum á inni og úti. Við lítum á rýmið sem áþreifanlegan ramma sem með efnislegri stemmningu og Ijósleiðni greinir sig skýrt frá hinu óskýra ytra um- hverfi. Við reynum að mæta „hvarfi inn- rýmisins" fyrir tilverknað gegnsæ- isins, með arkitektúr sem lætur okkur skynja rýmin sem líkamleg hylki. Um þetta má viðhafa sömu orð og gilda um byggingar Emils Steffans: „Enginn mun skynja þennan arkitektúr sem kaldan, fjarlægan, óvenjulegan, til- gerðarlegan og gervilegan. Þvert á móti er hann hlýr, kunnuglegur og nánast sjálfsagður. Ástæðan fyrir þessu er efnisleg holdgerving hans (...) og formin sem eru hluti af sögulegu minni okkar.“ Við hönnun nýrra rýma leggjum við áherslu á að vistarverur bygging- arinnar, sem virka þungar og efn- islegar, séu hvorki þröngar né þrúgandi. Þvert á móti reynir hér einmitt á sérstök gæði vinnunnar: Með þaulhugsuðu Ijósflæði er reynt að skapa björt, en um leið skýrt afmörkuð rými. 38

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.