Bændablaðið - 23.02.2023, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
FRÉTTIR
Útbreiðsla fjölónæmra baktería:
Frysting matvæla hefur engin áhrif á útbreiðslu
– Varast ber innflutning á matvælum frá löndum með útbreitt sýklalyfjaónæmi
Nær-alónæmar bakteríur, sem
eru þá ónæmar fyrir næstum því
öllum sýklalyfjum sem til eru,
breiðast hratt út um allan heim.
Frysting á matvörum hefur engin
áhrif á sýklalyfjaónæmi.
Sýklalyfjaónæmi er mikil ógn við
lýðheilsu. Árið 2019 var áætlað að
sýklalyfjaónæmi hafi leitt til 1,3-5
milljóna dauðsfalla í heiminum, árið
2021 létust 3,57 milljónir vegna
COVID-19.
Karl. G. Kristinsson, prófessor í
sýklafræði við Læknadeild Háskóla
Íslands og yfirlæknir við sýkla- og
veirufræðideild Landspítalans, segir
að gríðarlegur munur sé á útbreiðslu
sýklalyfjaónæmis milli heims- og
landshluta.
„Þær bakteríur sem við höfum
einna mestar áhyggjur af eru E. coli
og skyldar bakteríur, sem eru hluti
af eðlilegu örveruflórunni í þörmum
manna og dýra, þarmabakteríur.
Þessar bakteríur smitast um munn
með saurmenguðu vatni, matvælum
eða umhverfi. Útbreiðslan er því
mest þar sem skortur er á hreinu
vatni, fráveitur í ólagi og mikið
nábýli manna og dýra. Þar sem
þessar bakteríur eru hluti af eðlilegu
örveruflórunni, þá vitum við ekki
hvort við berum í okkur ónæmar
bakteríur. Eina leiðin til að komast
að því er að skima fyrir þeim
með sértækum bakteríuræktunum
og kanna sýklalyfjanæmi með
næmisprófum. Ef við erum svo
óheppin að sýkjast af þeim, þá
má búast við því að hefðbundin
meðferð með sýklalyfjum sé
gagnslaus. Algengustu sýkingar
af völdum þessara baktería eru
þvagfærasýkingar, en þær geta
valdið fjölmörgum öðrum sýkingum.
E. coli er til dæmis sú baktería sem
veldur oftast sýkingum í blóði.“
Minnst útbreiðsla á
Norðurlöndunum
Útbreiðsla sýklalyfjaónæmra
þarmabaktería er einna minnst á
Norðurlöndunum, sem Karl segir
þakka megi lítilli sýklalyfjanotkun
í landbúnaði, hreinu vatni, góðum
fráveitum og hreinlæti.
„Víða er verið að gefa dýrum
sýklalyf til vaxtarörvunar, það er
að segja sýklalyf eru sett í fóður
dýranna til að örva vöxtinn. Vegna
þess er sýklalyfjanotkun víða mun
meiri í landbúnaði en í mönnum. Slík
notkun hefur verið bönnuð í löndum
Evrópska efnahagssvæðisins síðan
2006.“
Ferðamenn útsettir fyrir smiti
Karl segir mikilvægt að við gerum
allt sem við getum til þess að hægja
á útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
„Þekkt er að þeir sem ferðast
til landa með mikla útbreiðslu
sýklalyfjaónæmis eru líklegir til þess
að koma til baka úr ferðalaginu með
fjölónæmar bakteríur (12-69% líkur).
Mestar líkur eru á því eftir ferðalög
til Indlands, Asíu, Mið-Austurlanda,
Afríku, Suður-Ameríku og sumra
landa í Suður- og Austur Evrópu.
Þeir sem ferðast til þessara landa ættu
að viðhafa sömu varúðarráðstafanir
og mælt er með til að minnka líkur
á ferðamannaniðurgangi. Í þessum
sömu löndum eru matvæli oft
menguð af fjölónæmum bakteríum.
Sem dæmi má taka rannsókn á 411
sýnum teknum frá grænmeti tilbúnu
til neyslu, í 36 stórmörkuðum eða
bændamörkuðum í 18 borgum Kína.
Hún sýndi að 10 (2,4%) þeirra voru
með nær-alónæmar þarmabakteríur.“
Nær-alónæmar bakteríur
í matvælum
„Alþjóðleg verslun með matvæli
hefur vaxið gríðarlega og matvæli
eru send heimshorna á milli.
Nær-alónæmar þarmabakteríur
hafa fundist í grænmeti frá Asíu í
verslunum í Kanada og Sviss og í
sjávarafurðum frá Asíu í Kanada.
Það er því full þörf á því að fara
varlega í innflutningi á tilteknum
matvælum frá löndum með mikla
útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
Kjúklingar frá Úkraínu
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
var sagt frá innflutningi á frystum
kjúklingum frá Úkraínu til landsins.
Karl segir að kjúklingar mengist mjög
af þarmabakteríum við slátrun og ef
þeir koma frá löndum með mikla
útbreiðslu sýklalyfja séu þeir oft
mengaðir af fjölónæmum bakteríum.
„Í vöktun Evrópsku matvæla-
stofnunarinnar (EFSA) á
fjölónæmum E. coli (ESBL/AmpC) í
kjúklingakjöti árið 2020 var meðaltal
kjöts með slíka stofna 32%, en
dreifingin var allt frá 0% á Íslandi í
100% á Möltu.
Ég hef ekki fundið sambærilegar
tölur frá Úkraínu en vegna óhóflegrar
sýklalyfjanotkunar í Úkraínu, og
einna hæsta algengi fjölónæmra
baktería hjá mönnum í okkar
heimshluta má búast við því að ónæmi
sé útbreitt í bakteríum í matvælum
eins og kjúklingum, ef teknar eru
hliðstæður frá öðrum löndum. Ég
hef áhyggjur af miklum innflutningi
á frosnum kjúklingum frá löndum
með hátt algengi nær-alónæmra
baktería, enda hefur frysting engin
áhrif á sýklalyfjaónæmi. Mikilvægt
er að fylgjast með sýklalyfjaónæmi
í innfluttum matvælum frá löndum
með útbreitt sýklalyfjaónæmi,
að almenningur sé vel upplýstur
og að matvæli séu með réttar
upprunamerkingar.“
Fjölónæm þarmabaktería
í sýklalyfi
Í frétt frá Lyfjastofnun og
Landlæknisembættinu 9. febrúar
síðastliðinn var greint frá innköllun
á tilteknu sýklalyfi. Fjölónæm
þarmabaktería hafði smyglað sér
í sýklalyfið og sýkt níu íbúa í
Danmörku og líklega einn á Íslandi.
Karl segir að í dönskum fjölmiðli hafi
kom fram að allt að 35.000 Danir
gætu hafa smitast.
„Talið var líklegast að bakterían
væri í hylkjunum utan um lyfin, en
slík hylki eru gerð úr gelatíni sem
iðulega er unnið úr dýraafurðum.
Þetta dæmi sýnir glögglega hvað
fjölónæmar bakteríur eiga auðvelt
með að dreifa sér með dýraafurðum
á milli landa.“
/VH
Kortið sýnir útbreiðslu ónæmis E. coli fyrir breiðvirkasta sýklalyfinu
(karbapenem). Hlutfall tiltekinna sýklalyfjaónæmra örvera í blóði, og
mænuvökva í löndum Evrópu. Mynd / https://worldhealthorg.shinyapps.io/
Karl. G. Kristinsson, prófessor
í sýklafræði við Læknadeild HÍ
og yfirlæknir við sýkla- og veiru-
fræðideild Landspítalans. Mynd / VH
Þú finnur Bændablaðið
á bbl.is,
Facebook & Instagram
Matvæli eru flutt inn víða að úr heiminum samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Íslands. Ekki er þar með öll sagan sögð, því séu matvæli flutt inn
í gegnum annað land telst það vera landið sem matvælin koma frá en ekki
upprunalandið.
Innflutningur á matvælum til Íslands árið 2022
Kjúklingakjöt frá:
• Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Litháen, Póllandi, Sri Lanka,
Úkraínu, Þýskalandi, Belgíu, Spáni, Svíþjóð, Tælandi.
Grænmeti frá:
• Bandaríkjunum, Hollandi, Spáni, Danmörku, Póllandi, Belgíu,
Egyptalandi, Tyrklandi, Víetnam, Portúgal, Marokkó, Ítalíu, Suður-
Afríku, Kína, Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi, Túnis, Nýja Sjálandi,
Tælandi, Litháen, Ungverjalandi, Líbanon, Mexíkó, Senegal, Svíþjóð,
Sýrlandi, Madagaskar, Brasilíu, Bútan, Chile, Perú, Kanada, Kólumbíu,
Ekvador, Kenýa, Eþíópíu, Filipseyjum, Sádi Arabíu, Ghana, Guatemala,
Seychelles-eyjum, Hondúras, Indlandi, Íran, Ísrael, Suður-Kóreu.
Fryst rækja frá:
• Indlandi, Víetnam, Bangladesh, Kína.
Upplýsingar frá Hagstofu Íslands.
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps
úthlutaði nýlega lóðum fyrir alls
25 íbúðir við Fannborgartanga,
fyrsta áfanga hverfis sem kallast
„Byggð á Bríkum“. Alls bárust
150 umsóknir um þær lóðir sem
auglýstar voru.
Um er að ræða átta íbúðir í fjórum
parhúsum, átta íbúðir í tveimur
fjögurra íbúða raðhúsum, sex íbúðir
í tveimur þriggja íbúða raðhúsum og
þrjár lóðir fyrir einbýlishús.
„Það er afar ánægjulegt að finna
þennan mikla áhuga sem er á Flúðum
og í raun á Uppsveitum Árnessýslu
í heild sinni. Ég efast ekki um að
margir eru farnir að líta lengra út
fyrir þau svæði sem helst hafa notið
mikillar uppbyggingar að undanförnu
og uppgötva um leið hversu mikil
lífsgæði felast í landsbyggðunum.
Uppsveitir Árnessýslu eru þar að
koma sterkar inn og hér á Flúðum
finnum við það mjög greinilega.
Fólk sækir hér í góða þjónustu, gott
mannlíf og ekki síst veðurfarið,“ segir
Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri
Hrunamannahrepps.
Innt eftir nafngift hverfisins,
Byggð á Bríkum, segir Aldís:
„Ástæðan er sú að það stendur
á brík sem hallar niður að Litlu-
Laxá. Það er staðsett mitt á milli
golfvallarins og tjaldsvæðisins og
sameinar þannig gæði þéttbýlisins
en einnig nálægðina við náttúruna
og hins góða golfvallar. Þá er líka
gaman að geta þess að nöfnin á
götunum í hverfinu vísa til örnefna
í Kerlingarfjöllum, sem eru mörgum
Hrunamönnum mjög kær, en sem
dæmi má nefna að fyrsta gatan heitir
Fannborgartangi. Framkvæmdir eru
hafnar við göturnar og framkvæmdir
lóðarhafa eiga að geta hafist um mitt
sumar. Svo fer það auðvitað eftir
framkvæmdahraða húsbyggjenda
hvenær fyrstu íbúar flytja inn,“
segir Aldís. /mhh
Flúðir:
Miklu færri fengu lóðir en vildu
Hópur stjórnarmanna í sveitarstjórn tóku fyrstu skóflustungur af nýja
hverfinu, f.v. Bjarney Vignisdóttir, Herbert Hauksson, Daði Geir Samúelsson,
Alexandra Rós Jóhannesdóttir og Jón Bjarnason. Mynd / Aðsend