Bændablaðið - 23.02.2023, Side 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Áhugaverð rós af bás Rosen Tantau.
LÍF&STARF
Nú ber svo við, þegar ég sest niður til að
öngla saman efni til þessa vísnaþáttar, að
daginn ber upp á konudaginn.
Því var nefnilega vikið að mér við
rismál hér á heimili mínu. Til þess að
víkja þægindum að kvennaljóma landsins
þá verður efni þáttarins mestan part eftir
eina þekktustu vísnagerðarkonu síðari
tíma, Þuru Árnadóttur frá Garði í
Mývatnssveit (1891-1963). Fyrsta vísan
er nokkurs konar sjálfslýsing:
Hann mætti vera oftar aftur
á mér kjafturinn.
Af því hann er illa skaptur
óláns rafturinn.
Talsvert áttust þau við í kveðskap, Þura
og Einar Árnason frá Finnsstöðum í
Köldukinn, enda samtímis þá vistuð á
Akureyri. Í einhverju alvöruleysi nefndi Þura
við Einar, að réttast væri að hún hengdi sig.
Þá orti Einar:
Nú er fögur sólarsýn
en senn mun ríkja vetur.
Hengdu þig áður heillin mín,
ég held þér liði betur.
Þura svaraði:
Andanum lyfti á æðra sig,
upp er runninn dagur.
Ég hætti við að hengja mig,
heimurinn er svo fagur.
Þura orti ósjaldan um samskipti kynjanna,
þótt hún byndist aldrei ektastandi:
Betra er að passa á feldi flær
en frelsa mey frá spjöllum.
Lengra ekki námið nær
-náttúran ræður öllum.
Júníus var verkstjóri Þuru á Akureyrarárum
hennar. Konu Júníusar, Soffíu, sendi Þura
vísu á afmælisdegi hennar:
Gegnum lífið góða ferð
á gæfuvegi fínum.
En þú ert ekki öfundsverð
af eiginmanni þínum.
Júníus svaraði Þuru fyrir hönd konu sinnar:
Þú kvartar ei, en kalt er það
að kúra ein í næturhúmi,
en enginn hefði öfundað
eiginmann í þínu rúmi.
Þura orti þessa vísu til sr. Gunnars
Árnasonar á Æsustöðum, en þau þekktust
frá því að hann ólst upp á Skútustöðum við
Mývatn:
Fölna blóm um foldarból,
fugla þagnar skarinn.
Engin gleði, engin sól
úr því að þú ert farinn.
Um hjónabandið orti Þura:
Gatan liggur yfir urð
út til hjónabandsins.
Krossfestist á kirkjuhurð.
Konan er höfuð mannsins.
Til Braga Sigurjónssonar, ritstjóra
Birtings, orti Þura þessar tvær vísur:
Enginn rekur okkar spor
út í sumardaginn,
af því það kom aldrei vor
eða sól í bæinn.
Ég skal segja þér elskan mín,
oft er á sænum hvikul bára,
en ég er alltaf Þura þín
þótt ég verði 100 ára.
Einar Árnason vék að Þuru vísu sem endar
svona:
Þú mátt sjálfri þér um kenna
þessa vöntun eiginmanns.
Þura svaraði afturhelmingi Einars:
Einu hvísla eg að þér,
engum máttu segja.
Enginn vildi unna mér,
ein má lifa og deyja.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Dagana 23.–27.janúar fór hópur garðyrkjubænda á IPM-ESSEN sýninguna í Essen í
Þýskalandi til að kynna sér allt það nýjasta í heimi garðyrkjunnar.
Á sýningunni voru yfir 1.300 fyrirtæki með sýningarbása frá yfir 100 löndum og komu yfir
40.000 manns á sýninguna í ár. Voru garðyrkjubændur ánægðir með sýninguna og veitti hún
innsýn inn í framtíðina og hvaða lausnir er meðal annars hægt að tileinka sér í umhverfisvænni
umbúðum, tækjakosti og ræktunarefnum til að minnka kolefnislosun greinarinnar. /gbb
Heimur garðyrkjunnar:
Allt það nýjasta
Hér er hópurinn sem sótti sýninguna í Essen – að ofanverðu talið frá vinstri; Þórunn Eiðsdóttir, Þorvaldur Snorrason, Rósa Ragnarsdóttir, Gunnar Bjarnason, Gísli Þorvaldsson, Hjalti Garðar Lúðvíksson, Gísli Jóhannesson, María Reykdal, Baldur Þorgeirsson og Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ. Að neðan, talið frá vinstri; Helgi Jóhannesson, ráðunautur hjá RML, Birgir Birgisson, Sara Hafbergsdóttir, Hafberg Þórisson, Guðrún Birna Brynjarsdóttir, starfsmaður BÍ. Myndir /gbb
Bændablaðið kemur næst út 9. mars
Pottar geta komið í mismunandi efnum, hér
má sjá suma úr endurvinnanlegu plasti, aðra
úr niðurbrjótanlegum efnum.
Mismunandi tegundir þykkblöðunga.
Munur árstíðanna sést gaumgæfilega á ástandi þessara trjáa.
Mismunandi yrki Sansevieria sp.
Rós, búin til úr rósablöðum sem forma hjarta.
Skemmtilegur bás á sýningunni.