Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Fundargerð fagráðs um velferð
dýra frá 25. janúar var nýlega birt
á vef Matvælastofnunar þar sem
ályktun ráðsins er að finna í máli
frá síðasta hausti og varðar meinta
vanrækslu hrossa í Borgarbyggð.
Telur fagráð að Matvælastofnun
þurfi ávallt að tryggja að dýrum í
sárri neyð sé komið tafarlaust til
bjargar. Allar tafir á úrræðum séu
óásættanlegar.
Ályktun fagráðsins kemur í kjölfar
yfirlýsingar Samtaka um dýravelferð
á Íslandi sem Matvælastofnun barst
13. október og tengdist meintri
vanrækslu á hrossum í Borgarbyggð
og talsvert var fjallað um í fjölmiðlum
á þeim tíma. Þar kölluðu samtökin
eftir tafarlausum aðgerðum af hálfu
Matvælastofnunar í því máli og bentu
á að stofnunin væri eina bjargræði
dýra sem lögum um velferð dýra væri
ætlað að vernda gegn illri meðferð.
Töldu samtökin að Matvælastofnun
héldi verndarhendi yfir eigendum
dýra og þrátt fyrir góðan vilja
stofnunarinnar gagnvart mikilvægi
velferðar dýra þá fylgdu athafnir ekki
þeim orðum.
Efast um réttmæti þess
að veita ítrekaða fresti
Fagráðið telur að í öllum málum
sem varða dýrvelferð þurfi að fylgja
góðir og skýrir verkferlar og að þeir
séu gagnsæir og aðgengilegir á vef
stofnunarinnar.
„Það er mat ráðsins að of djúpt sé
á þessum upplýsingum á vef MAST.
Jafnframt þurfi MAST að skerpa á því
hvernig tilkynningum sé sinnt, meðal
annars með því að svara tilkynnanda
eins fljótt og auðið er og benda á þá
verkferla sem unnið sé eftir. Að veita
frest til úrbóta, eins og nú er gert út
frá meðalhófsreglu stjórnsýslulaga,
er vissulega mikilvægt. Í málum
þar sem dýr sæta sannanlega illri
meðferð, svo sem ef þau eru höfð í of
þröngu rými, njóta ekki lögbundinnar
útivistar, eða eru vanfóðruð, efast
fagráðið hins vegar um réttmæti þess
að veita ítrekaða fresti til úrbóta,“
segir í ályktun fagráðs.
Dýrin alltaf látin njóta vafans
Þá segir í ályktuninni að séu lög og
reglugerðir ekki nægilega skýr, að
mati stofnunarinnar, verði að beina
beiðni um viðhlítandi breytingar
til ráðuneytisins, þannig að dýrin
séu alltaf látin njóta vafans og að
eignarhald umráðamanns tefji aldrei
fyrir nauðsynlegum aðgerðum. Það
er mat fagráðsins að í tilvikum sem
varða alvarleg frávik í dýrahaldi
verði MAST að vinna af meiri festu
og skoða öll möguleg úrræði til
liðveislu umráðamanna dýranna með
hagsmuni dýranna að leiðarljósi.“
Á fundinum ræddi fagráðið einnig
þörf þess að Matvælastofnun hefði
á sínum snærum fólk sem stofnunin
geti falið að sjá um dýr og/eða
búrekstur í dýravelferðarmálum.
Einnig var rædd þörf á sjálfstæðri
innri endurskoðun hjá stofnuninni.
Kalla þyrfti eftir auknu fjármagni
ef það væri mat stofnunarinnar að
fjármagn skorti til að sinna eftirliti
og tryggja dýravelferð.
Fagráð er Matvælastofnun
til samráðs um álitaefni
Fagráð um velferð dýra starfar
á grunni laga um velferð dýra.
Framkvæmd stjórnsýslunnar, í
málum sem varða velferð dýra, er
í höndum Matvælastofnunar sem
er skylt að leita álits fagráðsins
um stefnumótandi ákvarðanir og
umsóknir um leyfi til dýratilrauna.
Fagráðið hefur aðsetur hjá
Matvælastofnun sem leggur því
til vinnuaðstöðu og starfsmann
með sérfræðiþekkingu á starfssviði
ráðsins. Í ráðinu skulu sitja fagfólk
á sviðum dýralækninga, dýrafræði,
dýraatferlisfræði, dýravelferðar,
dýratilrauna, búfjárfræða og
siðfræði. Hlutverk þess er meðal
annars að vera Matvælastofnun
til samráðs um stefnumótun og
einstök álitaefni á sviði velferðar
dýra, að fylgjast með þróun
dýravelferðarmála og upplýsa
stofnunina um mikilvæg málefni
á sviði dýravelferðar, auk þess að
taka til umfjöllunar mál á sviði
velferðar dýra að beiðni einstakra
fagráðsmanna.
Sigurborg Daðadóttir, yfirdýra-
læknir hjá Matvælastofnun, er
formaður fagráðsins, en auk
hennar eiga þar sæti þau Hilmar
Vilberg Gylfason, yfirlögfræðingur
Bændasamtaka Íslands, Anna
Berg Samúelsdóttir, búfræðingur
og landfræðingur, tilnefnd af
Dýraverndarsambandi Íslands,
Katrín Andrésdóttir dýralæknir,
tilnefnd af Dýralæknafélagi
Íslands, og Henry Alexander
Henrysson, heimspekingur og
kennari í siðfræði, tilnefndur af
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
Henry Alexander segir að
einhugur hafi verið í ráðinu með
ályktuninni um hrossamálið í
Borgarbyggð, en formaðurinn
hafi reyndar ekki tekið þátt í gerð
hennar eða afgreiðslu. „Vissulega
voru ólík sjónarmið og áherslur
hjá ráðsfólki en að lokum var mjög
góð sátt um orðalagið,“ segir hann.
Draga þarf lærdóm af þessu
máli
Á svipuðum tíma og hrossamálið
kom upp í Borgarbyggð, komu
upp mál af svipuðum toga sem
vörðuðu sauðfé og nautgripi og
tengdist sama umráðafólki. Henry
segir að eingöngu hafi verið fjallað
um hrossamálið í fagráðinu – og
viðbrögð Matvælastofnunar hvað
varðar hrossin – þar sem erindi
Samtaka um dýravelferð hafi
eingöngu snúið að því máli.
Hann segir aðspurður að það
sé ekki niðurstaða fagráðsins að
viðbrögð stofnunarinnar hafi verið
ámælisverð. „Hins vegar telur
ráðið að það þurfi að draga lærdóm
af þessu máli þegar í stað, meðal
annars varðandi samskipti við þá
aðila sem tilkynna um möguleg
brot á velferð dýra.
Þá er það einnig skoðun
fagráðsins að dýr þurfi að njóta
vafans í auknum mæli. Það kann
að reyna á lögfræðilega hlið þess
hvernig á að standa að aðgerðum,
en persónulega tel ég eðlilegt að
stofnun sem á að sjá um dýravelferð
láti stundum reyna á það fyrir
dómstólum hvort of hart sé gengið
fram gagnvart umráðamönnum til
að koma dýrunum til aðstoðar,“
segir Henry.
Lög um velferð dýra
eru nokkuð skýr
Henry segir að það sé mat
fagráðsins að ef slík dómsmál
kalli að lokum á lagabreytingar til
þess að tryggja velferð dýra þurfi
eftirlitsstofnunin að kalla eftir
slíkum breytingum. „Besta dæmið
um þetta er sú tilhneiging að veita
stöðugt og ítrekað fresti til úrbóta og
það réttlætt með því að vísa í þann
lagaramma sem MAST vinnur eftir.
En lög um velferð dýra eru nokkuð
skýr um að það eigi að grípa inn í
þessi mál eins fljótt og auðið er.
Ef það er einhver togstreita þarna
þarf að bregðast við því af hendi
löggjafans.“
Ályktun fagráðsins snúist
eingöngu um að hvetja MAST til
að taka ávallt málstað dýranna,
enda séu lögin alveg skýr hvað þetta
varðar. „Og þótt þau lög væru ekki
enn samþykkt þá held ég einfaldlega
að viðtekin viðmið í samfélaginu í
dag hneigist í þá átt,“ segir Henry.
Einkennileg viðbrögð
MAST við ályktuninni
Henry telur að viðbrögð stofnunar-
innar við ályktun fagráðsins hafi
verið einkennileg. „Mér fannst
ályktunin vera varfærin og
málefnaleg. Fagráðinu var
tilkynnt að ályktanirnar yrðu
birtar sérstaklega á forsíðu vef
stofnunarinnar.
Eftir nokkra bið ákvað MAST
að birta eingöngu fundargerðina
á sínum stað og nota forsíðu
heimasíðunnar til að bregðast við
ályktununum fagráðsins.
Persónulega verð ég að segja að
þetta kemur mér fyrir sjónir þannig
að MAST sé ekki á vegferð sem
snúist um að lægja óánægjuöldur
í samfélaginu heldur réttlæta
fremur vinnubrögð sín í einu og
öllu. Hugmynd fagráðsins með
þessari ályktun var alltaf að hvetja
MAST til dáða og leggja fram
stuðning við því að stofnunin
leitaði til ráðuneytisins ef heimildir
hennar eru of takmarkaðar í
dýravelferðarmálum.
Svo vakna auðvitað margar
spurningar í framhaldinu. Ein
þeirra er hvort það þurfi að taka upp
einhvers konar hæfis- og hæfnimat
þeirra sem hafa fjölda dýra í sinni
umsjá. Það gæti verið ein lausn
en auðvitað er slíkt mat upp að
einhverju marki þegar í gangi í
ljósi þess eftirlits sem MAST á
að hafa með búfjárhaldi og þess
fjölda ábendinga sem berast um
slæman aðbúnað. Það sem er mest
aðkallandi akkúrat í dag held ég
að sé að eftirlitið og viðbrögð við
ábendingum verði í betri sátt við
samfélagið og breytt viðhorf til
dýravelferðar.“
FRÉTTIR
VEIÐISVÆÐI ÓSKAST
Vegna mikilla eftirspurna þá köllum við eftir nýjum veiðisvæðum í flóru
félagsins. Bæði stöðuvötn og rennandi vatn. Skoðum einnig veiðisvæði
á afskektum stöðum.
Veiðifélagið Fish Partner er í stöðugum vexti og leitast eftir fleiri
samstarfsaðilum um land allt óháð fisktegund og tegund vatnasvæðis.
Vinsamlegast hafið samband við Kristján í síma 898 3946 eða á
netfangið kristjan@fishpartner.com.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Fagráð um velferð dýra:
Óásættanlegar tafir á úrræðum
fyrir skepnur í sárri neyð
Ályktun fagráðs um velferð dýra fjallaði um meinta vanrækslu á hrossum í Borgarbyggð. Mynd / Steinunn Árnadóttir
Henry Alexander Henryson.
Hins vegar telur
ráðið að það þurfi
að draga lærdóm af
þessu máli þegar í stað,
meðal annars varðandi
samskipti við þá aðila
sem tilkynna um mögu-
leg brot á velferð dýra.“