Bændablaðið - 23.02.2023, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Fáar fisktegundir ef nokkrar
eru sveipaðar jafnmiklum
ævintýraljóma og Norðurlands-
síldin svonefnda. Hún ásamt
þorskinum lyfti Íslendingum úr
fátækt í velmegun á síðustu öld.
Síldin skilar enn þá verðmætum í
þjóðarbúið þótt mikilvægi hennar
sé ekki jafnmikið og áður var.
Sú síld sem kölluð var Norður
landssíld eða Íslandssíld hér
áður fyrr er af norska vorgots
síldarstofninum. Hún hrygnir
aðallega við vesturströnd Noregs
í febrúar til apríl en kemur hingað
í ætisleit á sumrin og það er
gjarnan stórsíld sem leitar lengst
í vestur. Stærsta síld sem vitað er
að veiðst hafi hér við land fékkst
út af Skjálfanda árið 1955. Hún
var 46,5 sentímetra löng. Annars
verður síldin sjaldan lengri en 30
til 40 sentímetrar, segir í bókinni
Íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson
og Jónbjörn Pálsson.
Síldin veiddist aðallega fyrir
norðan og austan og hún gat
verið að einhverju marki blönduð
íslenskri síld og er svo enn í dag.
Norðurlandssíldin er nú á tímum
nefnd norskíslensk síld.
Nokkrir síldarstofnar
Í þessari grein verður fjallað um
veiðar og vinnslu Íslendinga á norsk
íslenskri síld en lítillega minnst á
aðra síldarstofna.
Fyrir utan norskíslensku síldina
eru margir síldarstofnar í norð
austanverðu Atlantshafi, misjafnlega
stórir. Má þar nefna Hvítahafssíld,
Múrmansksíld, þrjá stofna haust
gotssíldar í Norðursjó og við
vesturströnd Skotlands og tvo
íslenska síldarstofna, vorgots
og sumargotssíld, að því er fram
kemur í grein á vef Hafrannsókna
stofnunar sem byggist á bókinni
Íslenskir fiskar.
Íslenska sumargotssíldin, sem
einnig var kölluð Suðurlandssíld,
veiðist á haustin og eitthvað fram á
vetur. Íslenska vorgotssíldin, sem gaf
góðan afla í eina tíð, er hins vegar
nánast útdauð af völdum ofveiði,
óhagstæðra umhverfisskilyrða
og að einhverju leyti vegna
Surtseyjargossins sem eyðilagði
mikilvægar hrygningarslóðir hennar.
Ein mest veidda fisktegundin
Síld hefur um langan aldur verið
ein mest veidda fisktegundin í
heiminum.
Síldveiðar voru stundaðar í
Norðurálfu löngu áður en sögur
hófust. Flestir síldarstofnar í
NorðausturAtlantshafi hrundu á
sjöunda og áttunda áratug síðustu
aldar en hafa náð sér aftur nema
vorgotssíldarstofninn við Ísland.
Árið 1966 veiddust alls um 3,6
milljónir tonna af síld í Norðaustur
Atlantshafi og er það mesti afli sem
náðst hefur. Það ár veiddust tæpar
2 milljónir tonna af norskíslenskri
síld, þar af veiddu Íslendingar um
690 þúsund tonn og er það mestur
afli þeirra af þessum eðalfiski á einu
ári. Önnur ár voru aflabrögðin ekki
eins góð. Á árunum 1950 til 1960
var aflinn til dæmis undir 50 þúsund
tonnum á ári.
Hrun og ris stofnsins
Norskíslenski síldarstofninn
hrundi eftir 1968 eins og margoft
hefur verið fjallað um á opinberum
vettvangi. Kom þar einkum til mikil
veiði á ungsíld, sem vó þungt,
breytt umhverfisáhrif og skortur á
aðalfæðu síldarinnar, rauðátunni.
Síldin sást ekki hér við land í ein
25 ár eða svo en kom hingað aftur
1994. Það ár veiddu íslensk skip
um 21 þúsund tonn. Eftir að veiðar
hófust á ný var ársaflinn minnstur,
tæp 43 þúsund tonn, árið 2015
en mestur, rúm 269 þúsund tonn,
árið 2009.
Seinni árin hefur heildarafli allra
þjóða farið mest í tæpar 1,7 milljónir
tonna árið 2009. Heildarafla
mark allra þjóða var tæp 828 þúsund
tonn árið 2022.
Veiðar úr stofninum hafa
verið umfram ráðgjöf Alþjóða
hafrannsóknaráðsins (ICES) síðan
árið 2013.
Engin sátt um skiptingu
heildarkvótans
Norðmenn, Íslendingar, Færeyingar,
Rússar, Bretar og þjóðir innan ESB
stunda veiðar á norskíslensku
síldinni. Heildaraflamark er
ákveðið ár hvert á vettvangi Norð
austurAtlantshafsfiskveiðiráðsins
(NEAFC). Gert er ráð fyrir að
hlutaðeigandi strandríki komi sér
saman um skiptingu heildarkvótans.
Stundum hefur það tekist en
oftar ekki í seinni tíð. Samkvæmt
samkomulagi frá 2007 var hlutur
Íslands 14,51% af heildarveiðinni
en frá 2013 hefur ekki náðst sátt
um skiptinguna. Hver og einn
hlutaðeigandi gefur einhliða út
aflamark á hverju ári.
94% aflans í íslenskri lögsögu
Á síðasta ári veiddu Íslendingar um
112 þúsund tonn af norskíslenskri
síld. Árið þar á undan var aflinn
rúm 114 þúsund tonn og var allur
veiddur í flotvörpu.
Rúmlega 94% aflans 2021
fékkst innan íslenskrar lögsögu
og 6% á alþjóðlegu hafsvæði.
Veiðar úr stofninum fóru fram
frá júní til nóvember og var mest
veitt í september (48%), að því
er kemur fram í upplýsingum frá
Hafrannsóknastofnun. Af fréttum
að dæma gekk einnig vel að ná
norskíslensku síldinni í íslensku
lögsögunni á vertíðinni 2022.
Alþjóða hafsvæðið austan við
íslensku lögsöguna og norðan við
þá færeysku er nefnt Síldarsmugan.
Þar geta íslensk skip veitt af kvóta
sínum í norskíslenskri síld ef á þarf
að halda. Einnig hafa þau heimild
til að veiða síldina í færeysku
lögsögunni.
Hagræðing, öflug skip
og sjálfvirkni
Veruleg hagræðing eða samþjöppun
hefur orðið í síldveiðum sem og
öðrum veiðum á uppsjávarfiski.
Samhliða hefur uppsjávarflotinn
verið endurnýjaður. Færri en
öflugri og burðarmeiri skip eru nú
að veiðum en áður og þau er búin
kælitönkum sem halda hráefni fersku
fram að löndun. Einnig hafa verið
byggð hátæknivædd frystihús fyrir
uppsjávarfisk þar sem sjálfvirkni
ræður ríkjum. Mannshöndin kemur
varla nærri eiginlegri vinnslu
lengur. Fiskimjölsiðnaðurinn
hefur líka tekið stakkaskiptum
með verksmiðjum sem framleiða
hágæðamjöl.
Níu útgerðir með kvótann
Kvóta Íslands í norskíslensku
síldinni á síðasta ári var úthlutað á
skip sem eru í eigu 9 útgerðarfélaga.
Eitt félagið er þó aðeins með 0,4%
kvótans.
Kvótahæsta félagið 2022 var
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
með 21,5% af heildinni. Ísfélag
Vestmannaeyja hf. var í öðru sæti
með 20,2% og í því þriðja var
Brim hf. Reykjavík með 14,1%.
Í fjórða sæti er Vinnslustöðin
hf. í Vestmannaeyjum með um
10% og er þar meðtalinn kvóti
dótturfélagsins Huginn ehf.
Þrjú kvótahæstu félögin voru
með 56% kvótans.
Vilhelm aflahæstur
Á síðasta ári stunduðu 23 skip
veiðar á norskíslensku síldinni.
Þeirra aflahæst var skip Samherja,
Vilhelm Þorsteinsson EA, með
13.561 tonn. Þar á eftir kom Börkur
NK með 9.770 tonn og Beitir NK
var í þriðja sæti með 9.686 tonn.
Síldarvinnslan gerir út Börk og
Beiti. Tíu aflahæstu skipin voru
með 71% aflans.
Heildaraflamark íslenskra skipa
í norskíslenskri síld á árinu 2023
er rúm 92 þúsund tonn.
Saltsíldin því sem næst horfin
Hér áður fyrr var manneldisvinnsla
á síld aðallega og nær eingöngu
söltun. Síldin var hausskorin og
slógdregin og söltuð í tunnur. Lítils
háttar var fryst af síld og um tíma
var síld flutt út niðurlögð í dósir í
einhverjum mæli. Þar voru gömlu
góðu gaffalbitarnir á ferðinni.
Vinnsla síldarinnar hefur
gjörbreyst frá því sem áður var. Nú
er megnið af síldinni fryst, í flökum
eða heilfryst. Örlítið er enn
þá saltað til útflutnings
og er þá um að ræða bita
og flök, ekki heila síld
eins og áður. Aðeins eitt
fyrirtæki heldur í þessa
hefð, Loðnuvinnslan á
Fáskrúðsfirði.
Mjöl og lýsi er
mikilvæg afurð sem fyrr.
Þótt allri síld sé nú landað til
manneldisvinnslu fara afskurður og
frákast til framleiðslu á fiskmjöli
og lýsi. Getur það verið umtalsvert
magn sem þannig fellur til.
Síld skilaði 5,2%
af verðmæti sjávarafurða
Árið 2021 voru fluttar út
síldarafurðir fyrir 15,3 milljarða
króna, sem er um 5,2% af
útflutningsverðmæti sjávarafurða
í heild, samkvæmt tölum á
vef Hagstofunnar. Þettar eru
heildartölur fyrir síld og ekki
gerður greinarmunur á afurðum
úr norskíslenskri síld og íslensku
sumargotssíldinni. Ljóst er að
hlutur norskíslensku síldarinnar
vegur töluvert þyngra því meira
sem er veitt af henni og hún er alla
jafna stærri og verðmeiri.
Skipting eftir afurðum er
þannig að fryst síld skilaði 8,5
milljörðum króna, mjöl og lýsi
gaf 5,8 milljarða, ísuð síld rúman
milljarð og söltuð síld aðeins 32
milljónir.
Noregur helsta viðskiptalandið
Hér áður fyrr keyptu Svíar og
Rússar megnið af saltsíld sem flutt
var héðan út. Nú er Noregur stærsti
kaupandi síldar, keypti síldarafurðir
af okkur fyrir 5,2 milljarða í fyrra
og er þar aðallega um að ræða
síldarmjöl og lýsi sem notað er í
framleiðslu á fóðri fyrir laxeldi.
Pólland kemur næst á eftir Noregi
sem mikilvægasta viðskiptalandið.
Þangað fóru síldarafurðir að
verðmæti 2,9 milljarðar og Litháen
er í þriðja sæti með 1,9 milljarða.
Heilfryst síld og önnur fryst
síld fer að langstærstum hluta til
AusturEvrópu.
IKEA stærsti smásali á síld
í Skandinavíu
Hér í lokin má til gamans rifja upp
frétt í Fiskifréttum frá árinu 2012.
Þar er vísað í erindi sem flutt var á
Sjávarútvegráðstefnunni og fjallaði
um hvað verður um uppsjávarfisk
frá Íslandi.
Megnið af uppsjávarafurðum
er frystur fiskur sem fer í
framhaldsvinnslu erlendis. Hér er
um síld, makríl, loðnu og kolmunna
að ræða. Erlendis er fiskurinn
maríneraður, saltaður, reyktur
og þurrkaður. Einn vinsælasti
síldarrétturinn í AusturEvrópu er til
dæmis marineruð síld með kartöflum,
dilli og lauk. Síld er einnig niðurlögð
í dósir og krukkur. Fyrirlesari sýndi
sem dæmi mynd af krukku með síld
í sem merkt var IKEA. „Fáir vita að
IKEA er stærsti smásöluaðili á síld
í Skandinavíu en það er staðreynd,“
sagði hann.
Hvort IKEA sé
stærsti smásali síldar í
Skandinavíu enn þann dag
í dag skal ósagt látið en í
verslun IKEA á Íslandi má
að minnsta kosti finna þrjár
tegundir af marineraðri síld
innan um og saman við
sænsku kjötbollurnar!
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
NYTJAR HAFSINS
Hrun og ris norsk-íslensku síldarinnar
Veiðar á norsk-íslenskri síld. Mynd / Þorgeir Baldursson.
... í verslun
IKEA á Íslandi
má að minnsta kosti
finna þrjár tegundir
af marineraðri síld
innan um og saman við
sænsku kjötbollurnar!“