Bændablaðið - 23.02.2023, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Freyvangsleikhúsið í Eyjafirðinum frumsýnir
verkið Fólkið í Blokkinni þann 24. febrúar
í Freyvangi. Miðasala er hjá tix.is og í síma 857-5598.
Sýnt verður í átta skipti, klukkan 20.00, föstudaga
og laugardaga frá frumsýningu þar til 18. mars
næstkomandi og miðaverð er kr. 3500.
Á döfinni ...
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
MENNING
Hörgdælir: Leikfélag Hörgdælinga
frumsýnir nú 2. mars verkið
Stelpuhelgi eftir Karen Schaeffer
– í höndum leikstjórans Gunnars
Björns Guðmundssonar.
Um er að ræða stórskemmtilegan
farsa í þýðingu Harðar Sigurðar
sonar, framkvæmdastjóra Bandalags
íslenskra leikfélaga – og í fyrsta
skipti sem verkið er sett upp
hérlendis
Áhorfendur kynnast vinkonunum
Meg, Carol, Dot ásamt Ellie, dóttur
Megs, sem hittast í bústaðnum hjá
Dot yfir helgi (stelpuhelgi semsé)
með það fyrir augum að skemmta
sér til hins ýtrasta lausar við alla
karlmenn. Þær vinkonur áætla að fá
sér í tána, skiptast á sögum, drekka
áfengi auk þess að fara mögulega
yfir næstu bók í bókaklúbbnum. Vel
gengur með áfengisneysluna – svo
vel að þegar lækka fer í flöskunum
hafa þær stöllur allar boðið til sín
karlmanni, hver fyrir sig, þvert á
hugmyndir gestgjafans.
Sýnt verður í félagsheimilinu
Melum í Hörgárdal, frumsýningin
2. mars nk. og næstu sýningar eftir
það verða föstu og laugardagana
3.4. mars og svo 10.11. mars.
Vegna vinsælda var nýverið bætt
við sýningum dagana 17.18. mars.
Miða er hægt að nálgast hjá miðasölu
tix.is. og eru allar sýningar kl. 20.00.
/SP
Þessa dagana er nóg um að
vera hjá leikdeildinni enda hafa
æfingar á leikriti vetrarins verið
í fullum gangi. Um ræðir leikritið
,,Vitleysingana“ eftir Ólaf Hauk
Símonarson, fjörugt, fyndið og
krassandi stykki í leikstjórn Ólafs
Jens Sigurðssonar.
Ólafur Haukur er þjóðinni að
góðu kunnur fyrir sínar fjölmörgu
skáldsögur, ljóðabækur og smásögur
en einnig mörg vinsæl leikrit fyrir
svið, útvarp og sjónvarp.
Þótt leikritið Vitleysingarnir hafi
verið skrifað fyrir rúmum tveimur
áratugum á það vel við enn þann
dag í dag og varpar skoplegri sýn
á samfélagið með persónum sem
auðvelt er að tengja við, jafnvel þótt
árið sé nú 2023.
Verkið sýnir á gamansaman
hátt hvernig hið daglega amstur og
hraðinn á gervihnattaöld gefa í skyn
að allt sé í sóma. Undir yfirborðinu
kraumar þó einmanaleiki og
erfiðari tilfinningar þótt verðlaun
lífsgæðakapphlaupsins séu aukin
velsæld og metorð. Svört kómedía
er kannski réttnefni – hraði og
firring þar sem samskipti fyrr og nú,
skemmtilegar uppákomur og ástríður
eiga eftir að kitla áhorfendur.
Sýnt verður í Árnesi, en
frumsýningin verður föstudaginn 3.
mars, önnur sýning 5. mars, þriðja
sýning 9. mars, fjórða sýning 11.
mars og sú fimmta sunnudag 12.
mars. Allar sýningar eru kl. 20.00.
Miðapantanir í síma 8691118 og á
gylfi1sig@gmail.com. /SP
Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja:
Vitleysingarnir ...
Leikfélag Húsavíkur æfir verkið
Ávaxtakörfuna um þessar mundir.
Verkið er eftir Kristlaugu Maríu
Sigurðardóttur og tónlistin
er samin af Þorvaldi Bjarna
Þorvaldssyni.
Margir þekkja Ávaxtakörfuna
þar sem aðeins ávextir mega búa
en þó leyfist einu litlu jarðarberi að
dvelja þar, með því skilyrði að sjá
um að allt sé hreint og fínt í körfunni.
En þegar gulrót birtist allt í einu í
körfunni fer allt á annan endann.
Í raun fjallar Ávaxtakarfan um
viðkvæmt efni, einelti og fordóma
– en smám saman opnast augu
ávaxtanna fyrir því að það er ekki
útlitið sem skiptir máli heldur
innrætið. Þetta er leikrit sem eldist
vel og á erindi við alla, jafnt nú sem
fyrir rúmum 20 árum er verkið var
fyrst kynnt áhorfendum. Þarna eru
á ferðinni bæði þaulreyndir leikarar
og tónlistarmenn og aðrir sem eru
að stíga sín fyrstu spor á sviðinu í
gamla Samkomuhúsinu.
Leikstjórinn, Valgeir Skagfjörð,
er að vinna með Leikfélagi
Húsavíkur í fyrsta sinn. Frumsýning
verður laugardaginn 4. mars,
svo þriðjudaginn 7. mars kl.
20, fimmtudag 9. mars kl. 20 og
laugardaginn 11. mars kl. 17.
Miðapantanir eru á netfanginu
midi@leikfelagid.is eða s.4641129,
tveimur tímum fyrir sýningu. /SP
Leikfélag Húsavíkur:
Ávaxtakarfan
Leikfélag Hörgdælinga:
Stelpuhelgi
Á sviðinu standa leikararnir Oddrún, Gylfi, Magnea Guðmunds, Jón Marteinn, Helga og Magnea Gunnars, ásamt
Ingvari sem liggur makindalega í stólnum – en þau hafa verið á kafi á æfingum sl. vikur.
Frá æfingum – leikhópurinn á sviði og svo hún Maja jarðarber í rólunni
sinni. Mikil eftirvænting er í loftinu enda er boðskapur Ávaxtakörfunnar
réttmætur og fallegur.
Hér má sjá alla leikara, leikstjórann og hvíslara. Efri röð frá vinstri: Juliane
Liv Sörensen (hvíslari), Fanney Valsdóttir (Dot), Lúðvík Áskelsson (Tom),
Eyrún Arna Ingólfsdóttir (Ellie), Gunnar Björn Guðmundsson (leikstjóri).
Neðri röð frá vinstri: Jenný Dögg Heiðarsdóttir (Meg), Brynjar Helgason
(Stephen), Þorkell Björn Ingvason (Bubba), Freysteinn Sverrisson (Rick)
og Særún Elma Jakobsdóttir (Carol).
Líf og fjör er á sviðinu!