Bændablaðið - 23.02.2023, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Í nokkrum undanförnum tölu-
blöðum Bændablaðsins höfum
við verið að rekja bjórsöguna
í gegnum handverksbrugghús
á Íslandi.
Í næstu blöðum munum við halda
áfram en hér er smá útúrdúr, þar sem
við ætlum að fjalla um mikilvægasta
brugghúsið sem þú hefur líklega
aldrei heyrt um, né smakkað bjór frá.
Ef þú þekkir til þess ertu annaðhvort
afar langt leiddur bjórunnandi eða
Skagfirðingur – en mörkin eru
kannski ekki svo skýr þar á milli.
Hólar í Hjaltadal eru ekki bara
eitt höfuðvígi kristinnar menningar
og heimili Hólaskóla heldur einnig
bjórseturs nokkurs sem er ein af
þessum örlagaþúfum í bjórsögu
Íslendinga. Bjóráhugi nokkurra
starfsmanna skólans gat af sér
öflugt heimabruggssamfélag og
innkaupafélag hóps samstarfsmanna
þar sem bjórar sem þá voru nýir í
Ríkinu voru í brennidepli. Félagarnir
Bjarni Kristófer Kristjánsson, Broddi
Reyr Hansen og Guðmundur Björn
Eyþórsson áttu veg og vanda að
stofnun þessa kaupfélags á því
drottins ári 2007.
Þessi félagsskapur skilaði sér
að lokum í því að þeir tóku yfir
gamalt mjólkurhús á hlaðinu
þar sem mjólkurhúsinu á neðri
hæðinni var breytt
í lítið brugghús og
fjósamannaíbúðin
á efri hæðinni var
tekin undir bar
sem gekk strax
undir nafninu
Bjórsetrið.
Gamlir kælar
voru dregnir upp
á dekk og afgangs
efni úr vinnu við
Staðarskála var
nýtt til að smíða
barinn.
Þannig varð Bjórsetur Íslands til
í nokkurn veginn þeirri mynd sem
við þekkjum það í dag en formlega
tók til það starfa á verkalýðsdaginn,
1. maí 2010.
Raunar hefði slíkur metnaður
ekki átt að koma á óvart, að lítið
samkaupsfélag myndi vaxa í það
sem það varð, enda Skagfirðingar
Evrópumeistarar í kaupfélagsrekstri
án atrennu. Hólamenn hafa aldrei
selt bjór í Ríkið, þannig að það má
deila um það hvort þeir teljist alvöru
brugghús í þeim skilningi.
Í brugguðum lítrum eru þeir
nanó-stærð í íslenska bjór- heiminum
og bjórinn þeirra varla yfirgefið
Hjaltadal.
Út frá þessu mætti ætla að
Bjórsetrið væri bara agnarsmá
neðanmálsgrein í íslensku
bjórsögunni – en því er öðru nær!
Goðsagnakennt úrval
Fljótlega varð bjórúrvalið goðsagna-
kennt í íslensku bjórsenunni. 60, 70,
80, jafnvel 90 tegundir voru til í
kælum setursins og gengu ýmsar
tröllasögur af því hvernig Bjórsetrið
væri og að þar fengjust bjórar sem
hörðustu bjórnirðir gátu vart látið
sig dreyma um að smakka. Gekk
svo langt að bjórperrar hvaðan
af landinu og jafnvel víðar gerðu
sér pílagrímsferðir norður í land
til að upplifa Bjórsetrið, slíkt
var orðsporið.
Hólagengið nýtti þessar
hugmyndir og blés til Bjórhátíðar,
sú fyrsta var haldin í ágústlok
2011. Þessi hátíð var ekki bara
fyrsta bjórhátíð Bjórsetursins
heldur reyndist þetta fyrsta
handverksbjórhátíðin á Íslandi eftir
því sem greinarhöfundar komast
næst. Vissulega höfðu bjórhátíðir
verið auglýstar fyrir þann tíma, en
þær áttu meira skylt við Októberfest
en þær handverkshátíðir sem við
þekkjum í dag.
Brautryðjandi í
bjórhátíðum
Hólahátíðin í bjórnum er
um margt sérstök hátíð.
Fyrir það fyrsta er
hún víðs fjarri
því sem teldist
til alfaraleiðar,
þó hún sé
nálægt mörgum
reiðleiðum.
En það virtist ekki
stöðva harðkjarnann í
að leggja leið sína norður
og hefur hátíðin verið nánast uppseld
allt frá fyrsta degi. Fjarlægðin hefur
raunar einungis aukið á dulúðina enda
færri komist en hafa viljað.
Í öðru lagi hefur þessi hátíð orðið
eins konar nýliðakynning handverks-
brugghúsa inn í bransann, en þarna
sáust fyrst ansi mörg brugghús
sem fram að því höfðu lítt spurst út
fyrir sinn eigin vinahóp. Nægir að
vísa í söguna um Brothers Brewery
sem rakin var í Bændablaðinu
fyrir skömmu.
En í þriðja lagi hefur þróunin síðan
orðið þannig að þetta er orðin eins
konar árshátíð bruggara, en keppikefli
margra hefur verið að mæta þarna,
sýna sig og koma með eitthvað alveg
nýtt og spennandi. Þannig hefur
þessi hátíð haft yfir sér annan blæ en
flestar aðrar bjórhátíðir, einkum þær
sem haldnar hafa verið í Reykjavík.
Þar hafa mögulega verið haldnar
„hefðbundnari“ bjórhátíðir sem eru
kannski frekar á markaðslegum
forsendum en ekki pálínuboðs-
andinn sem einkennir Hólahátíðina.
Kex kemur upp í hugann en andanum
þar mætti frekar líkja við ös eins og
í Kringlunni á Þorláksmessu, með
haugana af erlendum gestum og
æstum pöpul, staðráðnum í að drekka
upp í aðgangseyrinn.
Hvað sem öðru líður má
fullyrða að Bjórsetrið á Hólum
er brautryðjandi í bjórhátíðum á
Íslandi og Bjórsetrið var og er einn
merkilegasti bjórbarinn á Íslandi.
Háskólinn á Hólum hefur meira
að segja boðið upp á námskeiðið
„BOB0006121 – Bjór og bjórgerð“
sem var 6 eininga námskeið á
háskólastigi, það allra fyrsta hér á
landi og enn sem komið er það eina.
Allt þetta gerir þetta að merki-
legasta brugghúsinu sem þú hefur
líklega aldrei heyrt um. Og enn
frekar er það áhugavert þar sem
þetta hefur meira og minna verið
unnið í sjálfboðavinnu í kringum
þennan félagsskap þar sem allt að
100 manns hafa greitt félgasgjöld
í gegnum tíðina. „Félagsskapur
áhugamanna falinn á bak við
fyrirtæki“ sagði Bjarni eitt sinn í
sjónvarpi allra landsmanna. Það er
það sem gerir Bjórsetrið á Hólum
að besta kaupfélagi landsins og þótt
víðar væri leitað.
LÍF&STARF
Handverksbrugghúsin á Íslandi:
Riðið heim til Hóla
Höskuldur
og Stefán
hoskuldur@bondi.is
Svipmynd frá Hólahátíðinni.
Verðlaunahafar í bjórkeppni á Hólahátíðinni 2015. Elvar, Valgeir, Árni og
Bjarni.
Bjarni Kristófer Kristjánsson og Broddi Reyr Hansen við bruggkatlana. Myndir / Aðsendar