Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Orkuskipti:
Vetnistæknin springur út
– JCB kynnir umhverfisvænan brunahreyfil
Breski vinnuvélaframleiðandinn JCB hefur á undanförnum árum leitað
leiða til að bjóða viðskiptavinum sínum umhverfisvæna kosti. Víða hafa
stjórnvöld sett fram áætlanir um að banna nýtingu jarðefnaeldsneytis
í vélum og vill JCB vera kominn með lausn í tæka tíð. Sprengihreyfill
sem gengur fyrir vetni virðist vera svarið.
Undanfarin ár hafa verkfræðingar
fyrirtækisins skoðað fjölda lausna
þegar kemur að því að knýja
vinnuvélar á umhverfisvænan
hátt. JCB hefur náð mjög langt
þegar kemur að rafhlöðutækni
og vetnisefnarafölum, en báðum
þessum lausnum fylgja of mikil
vandamál til að hægt sé að koma
þeim á markað. Margföldun á
kostnaði, flókið viðhald, aukin
þyngd og langur hleðslutími
eru meðal þeirra annmarka sem
áðurnefndum lausnum fylgir.
JCB hefur sett á markað
batterísknúnar vinnuvélar, en
vegna þeirra takmarkana sem
þeim fylgja hentar sú tækni
ekki nema fyrir minnstu tækin.
Vetnisefnarafallinn lofaði góðu fyrir
stærri vélar að mati starfsmanna
JCB þar sem mjög fljótlegt er
að fylla á eldsneytistankana,
ólíkt batterísknúnum tækjum. Eftir
að hafa sett saman frumgerð af
beltagröfu með vetnisefnarafali
sást hins vegar að flækjustigið þegar
kemur að viðhaldi og margföldun
á kostnaði útilokaði þá tækni
eins og er.
Sama vélarblokk
Anthony Bamford lávarður,
eigandi og stjórnandi JCB (sonur
stofnandans Joseph Cyril Bamford),
skoraði á starfsmenn sína að þróa
vetnisknúinn sprengihreyfil eftir að
fyrirséð var að vetnisefnarafallinn
og rafhlöðurnar væru á leið í
öngstræti. Úr þeirri vinnu kom mótor
með sömu vélarblokk og fjögurra
lítra dísilvélarnar sem JCB hefur
framleitt um árabil.
Samkvæmt JCB er vetnisknúni
sprengihreyfillinn kominn mjög
langt í þróun og verður hægt að
setja hann á markað á allra næstu
misserum. Einn stærsti kostur
þessarar nýju tækni er sá að þetta
byggir á gamalreyndum grunni sem
auðveldar allt viðhald og notkun.
Fyrir neðan heddið er vélin sú sama
og fjögurra lítra DieselMax vélin
sem er í mörgum traktorsgröfum
og skotbómulyfturum. Breytingin
felst helst í nýju strokkloki með
kveikikertum og innspýtingarkerfi
fyrir vetni og hins vegar nýjum
eldsneytisleiðslum og gaskútum í
stað dísiltanka.
Ólíkt því sem fólk hefur
kynnst með rafmagnsbíla, sem eru
umtalsvert dýrari en sambærilegir
bensín- eða dísilbílar, þá munu
vinnuvélar með vetnismótornum
einungis verða fimm til fimmtán
prósent dýrari í innkaupum. JCB
sá fram á að vinnuvélar með
batteríum eða vetnisefnarafli
þyrftu að vera allt að fjórfalt
dýrari en samsvarandi vinnuvél
knúin með jarðefnaeldsneyti.
Notkun svo gott sem eins
JCB hefur útbúið nokkrar
frumgerðir af vinnuvélum með
þessum mótor og er umgengnin
og notkunin á þeim nær
alfarið eins og á hefðbundnum
dísilknúnum tækjum. Hljóðið er
mjög sambærilegt og myndi hinn
almenni borgari ekki átta sig á að
um sé að ræða nýja tækni.
Notandinn mun ekki finna
merkjanlega mun, því aflið er nánast
það sama og er vetnismótorinn með
mikinn togkraft á lágum snúningum,
rétt eins og dísilmótorar.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Nýi vetnismótorinn er fjögurra lítra og skilar 55 kW – svipað afl og tog og á
dísilmótorum af sömu stærð. Í stað dísiltanks eru þrýstikútar. Hentar meðal
annars í traktorsgröfur og skotbómulyftara. Mynd / JCB
Notendur vetnisvinnuvélanna frá JCB munu ekki verða varir við mikinn
mun samanborið við hefðbundnar dísilvélar. Eiginleikar vélanna eru nánast
þeir sömu. Mynd /JCB
Fiskislóð 41
101 Reykjavík
561 4110
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbæ
420 3333
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
460 4350
Lyngási 8
210 Garðabæ
565 8600
Breiðhöfði 13
110 Reykjavík
590 2080
Meira úrval á nesdekk.is
B
irt m
eð
fyrirvara um
m
ynd
a- o
g
textab
reng
l.
ÚRVAL
JEPPADEKKJA
Skoðaðu heimasíðuna okkar á nesdekk.is
Þar getur þú fundið réttu dekkin
sem henta þér best.
Courser CXT
Jeppadekk
Frábært dekk fyrir est
undirlag, bleytu og
vetrarfærð.
Courser MXT
Jeppadekk
Hentar við erðar
aðstæður og
veðurskilyrði.
Open Country A/T Open Country M/T
Jeppadekk
Þrautreynt jeppadekk
við allar akstursaðstæður
allt árið um kring.
Jeppadekk
Hentar vel þar sem mikið
grip þarf, svo sem í drullu
og sandi.
Anthony Bamford lávarður, forstjóri JCB, hefur látið starfsfólk sitt leita allra leiða til að framleiða umhverfisvænar
vinnuvélar. Eftir að hafa rekist á takmarkanir rafhlaða og vetnisrafala eru vetnisknúnir sprengihreyflar orðnir að
vænlegum kosti. Bensín- og dísilvélar eru sprengihreyflar og er þessi nýja lausn byggð á gömlum grunni. Mynd / JCB
Í DEIGLUNNI
Aðeins nokkrar mínútur tekur að dæla eldsneyti sem dugar heilan vinnudag.
Vetnið er geymt við 350 bara þrýsting, en kúturinn er hannaður til að þola
allt að 1.300 bör. Mynd / ÁL