Bændablaðið - 23.02.2023, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
SKÓGRÆKTARFÉLAG
ÍSLANDS
Fræðslufundur um Græna stíginn
Skógræktarfélag Íslands og svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
boða til fræðslu- og kynningarfundar í fundarsal Arion banka Borgartúni
19 í Reykjavík föstudaginn 3. mars næst komandi kl. 13 – 17.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Dagskrá
13:00–13:05 Setning fundarins
Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
13:05–13:30 Græni stígurinn - saga, staða
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt
13:30–13:50 Lengri ferðaleiðir í svæðisskipulagi
Pawel Bartoszek, formaður svæðisskipulags
höfuðborgarsvæðisins
13:50–14:10 Uppbygging stíga á höfuðborgarsvæðinu
Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur, Vegagerðinni
14:10–14:30 Mikilvægi Græna stígsins
Albert Skarphéðinsson, umferðarverkfræðingur
14:30–14:50 Lýðheilsa og Græni stígurinn
Silja Dögg Sigurjónsdóttir, lýðheilsufræðingur
14:50–15:20 Græni stígurinn frá sjónarhóli skógræktarfélaga
Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur
15:20–15:30 Ávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra
15:30–16:00 Kaffihlé
16:00–17:00 Pallborðsumræður
Fulltrúar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt
fyrirlesurum
Skráning á fundinn er á netfangið skraning@skog.is og er skráningarfrestur til 1.
mars. Taka þarf fram hvort mætt verði á staðinn eða fylgst með í streymi.
Sendur verður hlekkur fyrir streymið þegar nær dregur fundinum.
kílói. Aukin sérhæfing hefur
orðið í nautakjötsframleiðslu á
síðustu árum og segja má að ný
atvinnugrein hafi byggst upp í
sveitum landsins sem nauðsynlegt
er að styrkja með auknu fjármagni í
búvörusamningum. Full ástæða er til
að styrkja nautakjötsframleiðsluna
þar sem mikil eftirspurn er eftir
íslensku nautakjöti og allir innviðir
til staðar til að auka framleiðsluna,
verði rekstrarforsendur til þess.
Það er óraunhæft að
ætlast til þess að mjólkur- og
nautakjötsframleiðendur séu, í
harðnandi rekstrarumhverfi, tilbúnir
að auka við framleiðslu sína til að
svara eftirspurn markaðarins á
sama tíma og ríkisstuðningurinn
þynnist út og tollvernd fer stórlega
þverrandi.
Áhersla verði aukin á
framleiðslutengdan stuðning
Við könnumst líklega flest við að
þegar framleiðslutengdur stuðningur
er til almennrar umræðu er umræðan
oft neikvæð og allt of algengt að
ekki sé gerður greinarmunur á
stuðningskerfi milli búgreina.
Íslensk mjólkurframleiðsla býr þó
svo vel að hafa framleiðslustýringu
sem virkar, árlega er gefið út
heildargreiðslumark sem byggt
er á söluspám þess árs. Þannig er
komið í veg fyrir bæði skort á mjólk
og óhóflega umframframleiðslu.
Með því að greiða stuðning til
þeirra bænda sem sannanlega skila
mjólk sem óskað er eftir á markað
er fyrst og fremst verið að stuðla
að fæðuöryggi, auk þess myndast í
beinu framhaldi hvati fyrir bændur
að ná frekari árangri og hagræðingu
í sínum rekstri.
Fjöldi innsendra tillagna á
búgreinaþing NautBÍ fjalla um
að áhersla á framleiðslutengdan
stuðning í nautgriparækt verði
aukinn. Þetta er einnig mjög í takti
við niðurstöður skoðanakönnunar
sem NautBÍ lagði fyrir alla
nautgripabændur landsins í lok
síðasta árs.
Í könnuninni voru nautgripa-
bændur spurðir hvernig þeir
vildu sjá stuðningsgreiðslur
búvörusamninga þróast. Alls vildu
76% svarenda sjá aukið fjármagn á
framleiðslutengda liði. Í framhaldinu
var spurt hvaða stuðningsgreiðslur
bændur vilja að mest áhersla sé
lögð á. Mjólkurframleiðendur
leggja mesta áherslu á greiðslur út
á greiðslumark og innvegna mjólk,
nautakjötsframleiðendur leggja
mesta áherslu á sláturálag sem fæst
í gegnum nautakjötsframleiðslulið
samningsins. Allt eru þetta
framleiðslutengdar greiðslur.
Framleiðslutengdur stuðningur
er gegnsætt og einfalt form
stuðningsgreiðslna, eitthvað sem
öll kæra sig kannski ekki um en
með tilkomu aukinnar áherslu á
fæðuöryggi síðustu ár þurfum við
kannski að stíga eitt skref til baka
og hugleiða til hvers ríkisstuðningur
í matvælaframleiðslu er hugsaður.
Á stuðningurinn ekki fyrst og
fremst að stuðla að fæðuöryggi
og aðgengi fólks að hollum og
heilnæmum matvælum á sanngjörnu
verði? Með því að leggja áherslu
á framleiðslutengdan stuðning er
stuðlað að fæðuöryggi og bændum
gefinn hvati til að hagræða og
auka afköst á hvern grip en þar
liggja einnig ein mestu tækifæri
búgreinarinnar til að draga úr
kolefnisspori greinarinnar.
Herdís Magna Gunnarsdóttir,
varaformaður BÍ og
formaður búgreinadeildar
nautgripabænda BÍ.
I c e l a n d k n i t f e s t - B l ö n d u ó s i - 9 . - 1 1 . j ú n í
2 0 2 3
H ö n n u n a r - o g p r j ó n a s a m k e p p n i
R e g l u r :
Nota skal íslenska lopapeysu í flíkina
Flíkinni þarf að vera hægt að klæðast
Endurvinna má önnur efni og nota með í flíkina
Prjón skal vera megin vinnuaðferð við vinnslu verksins en
einnig má nota aðrar handverksaðferðir
Verkið verður metið út frá frumleika, notagildi og
handverki
Fylgja skulu myndir af ferlinu og sagan á bak við
hönnunina, hver var peysan og hver er hún orðin?
U p p l ý s i n g a r u m s k i l :
Síðasti skiladagur er 15. maí 2023.
Verkin skal merkja með dulnefni en nafn, heimilisfang,
símanúmer og netfang látið fylgja í lokuðu
umslagi merktu dulnefninu.
Senda skal fullunnið verk til:
Textílmiðstöð Íslands
bt: Svanhildar Pálsdóttur
Kvennaskólanum
540 Blöndósi
Móttakandi heitir fullum trúnaði við þátttakendur.
Dómnefnd velur 3 efstu sætin. Úrslitin verða kynnt og verðlaun afhent á Prjónagleðinni 2023.
Ístex, Tundra, VatnsnesYarn og Rúnalist gefa glæsileg verðlaun. Verkin verða til sýnis á hátíðinni.
V e r k e f n i ð e r a ð e n d u r v i n n a í s l e n s k a l o p a p e y s u o g n o t a h a n a
s e m g r u n n e f n i v i ð í n ýj a n o t h æ f a f l í k
Íslensk lopapeysa er skilgreind í keppninni sem handprjónuð peysa úr íslenskum lopa, prjónuð í hring með munstruðu berustykki.
Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Pálsdóttir (svana@textilmidstod.is) og þær má einnig
finna á https://www.textilmidstod.is