Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
U p p l ý s i n g a r
og þekking á
rekstrarafkomu
í garðyrkju
hefur lengi verið
af skornum
skammti og eitt
af markmiðum
þessa verkefnis
var að ráða bót
á því. Skýrsla Vífils Karlssonar,
Landfræðilegt og efnahagslegt
litróf garðyrkju á Íslandi, kom út
árið 2019 og byggir á heildargögnum
frá Hagstofu Íslands og þar er tekið
saman hagrænt vægi greinarinnar.
Skýrsla Vífils var ákveðin kveikja
að þessu verkefni ásamt því að RML
hefur um árabil unnið verkefni í
afkomugreiningu hjá kúa- og
sauðfjárbændum og er því verið
að feta sig inn á sömu braut með
garðyrkjubændum.
Rekstur helstu greina
garðyrkjunnar
Verkefnið, sem styrkt er af fagfé
garðyrkjunnar, fólst í því að
afla upplýsinga frá einstökum
framleiðendum garðyrkjuafurða með
það að markmiði að átta sig betur
á rekstri helstu framleiðslugreina
íslenskrar garðyrkju.
Leitast er við að sundurliða
rekstrargögn garðyrkjubúa eftir
framleiðslugreinum. Jafnframt fær
hver þátttakandi greiningu á sínum
rekstri og stöðu eins og kostur er
ásamt samanburði við meðaltöl í
greininni.
Ákveðið var að takmarka sig
við rótargrænmeti (kartöflur,
rófur, gulrætur) og ylrækt (tómata,
agúrkur, papriku) í þessu skrefi en
stefnan er að taka inn fleiri tegundir
í framhaldinu þar sem ákveðið er að
halda áfram með verkefnið.
Lögð var áhersla á að fá sem
best bókhaldsgögn svo hægt væri að
greina nánar einstaka rekstrarþætti.
Þegar upp var staðið fengust 30
bú/framleiðendur til þátttöku í
verkefninu, 5 á Norðurlandi og 25
á Suður- og Vesturlandi. Þessi bú eru
mjög breytileg að samsetningu, en
af þeim eru 13 bú nánast eingöngu
í kartöflurækt.
Þessi mikli breytileiki sem er í
litlu gagnasafni gerir það að verkum
að tölfræðileg greining á því er erfið
og vandmeðfarin en hins vegar eru
þar ýmsar vísbendingar sem hægt
var að rýna nánar.
Gögn og upplýsingar eru
fengnar úr ársreikningum,
landbúnaðarframtölum og öðrum
bókhaldsgögnum í samvinnu við
framleiðendur sem og úr Jörð.is,
Afurð.is, Mælaborði landbúnaðarins
og Fasteignaskrá.
Að sjálfsögðu ríkir alger trúnaður
um bókhaldsgögn þátttakenda og eru
þau vistuð í lokuðum gagnagrunni.
Fyrirvari um stærð
gagnasafnsins
Með þeim fyrirvara að um frekar
lítið gagnasafn er að ræða ásamt
því að töluverður eðlismunur er á
rekstri hvort um er að ræða ylrækt
eða ræktun rótargrænmetis, eru samt
ákveðnir þættir sem rétt er að nefna.
- Uppskera í rótargrænmeti fer
minnkandi í heildarmagni sem og
í kg/ha öll árin. Tjón vegna myglu
hefur töluverð áhrif 2021.
- Uppskera í ylrækt eykst heldur í
magni hjá þátttökubúum en minnkar
ef mælt er í kg/m2
- Breytilegur kostnaður sem
kr./kg hækkar en þó mun meira í
rótargrænmetinu og munar þar mestu
um aukningu í áburðarkostnaði
RML
Rekstrargreining garðyrkju á Íslandi 2019–2021:
Stjórntæki fyrir
framleiðendur
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins lauk nýverið við uppgjör á verkefninu
„Rekstrargreining garðyrkju á Íslandi 2019-2021“ og fyrir liggur skýrsla
sem birt hefur verið á heimasíðu RML þar sem fram koma þær helstu
niðurstöður sem þegar hafa fengist úr verkefninu.
KORNHORN
Varnarefni eru efni sem notuð
eru í landbúnaði til þess að
verja uppskeru gegn ýmsum
skaðvöldum. Skaðvaldar geta
valdið algjörum uppskerubresti
í ræktun og oft uppskerutapi.
Hungursneyð og hallæri í
heiminum má oft rekja til faraldra
skaðvalda. Sem dæmi má nefna
ryðsvepp sem leggst á hveiti. Um
miðbik síðustu aldar var unnið
að því að kynbæta hveiti með
þol gegn sjúkdómnum. Þetta
verkefni bar árangur og með
frekari kynbótum varð hveiti ein
mest ræktaða nytjajurt heims. Nú
kemur stór hluti þeirra hitaeininga
og prótíns sem mannkynið þarf
úr hveiti. En ef ryðsveppurinn
er látinn óáreittur, mun hann
æxlast og þróast til að brjóta
á bak aftur varnir plöntunnar.
Þess vegna er mikilvægt að láta
ekki sveppasjúkdóma óáreitta
í ökrum. Helstu skaðvaldar í
íslenskri kornrækt eru sveppirnir
augnflekkur og brúnflekkur.
Pöddur og skordýraplágur eru
fyrirbæri sem við þekkjum lítið til
að leggist á korntegundir. Leiða
má þó að því líkum að blaðlús
og mítlar leggist í kornakra að
einhverju leyti þó að umfang
þeirra sé ekki þekkt.
Illgresi eru þær tegundir í
jarðvegi sem eiga ekki að vera
þar samkvæmt áliti ræktandans,
þannig getur repja verið illgresi
í byggakri en er það augljóslega
ekki í repjuakri. Illgresi veldur
sjaldan algjörum uppskerubresti
en getur valdið uppskerutapi
og miklum töfum við uppskeru
korns. Það skilur eftir sig stórt
sótspor og kostnað í ræktun ef
illgresi nær tökum í akri og tekur
upp áburðarefni þess árs og letur
uppskerumagn.
Notkun varnarefna er afar
lítil hér á landi. Meðalnotkun
varnarefna á öllu Íslandi á árunum
2015 til 2020 var 2,1 tonn af virku
efni á ári og að meðaltali 0,02 kg/
ha samkvæmt tölfræðideild FAO,
FAOSTAT. Það er sambærileg
meðalnotkun og í Angólu, Mið-
Afríkulýðveldinu, Tsjad og Haítí.
Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi
er meðalnotkunin 0,8; 0,6 og
2,0 kg/ha samkvæmt sömu
heimild. Í þessum samanburði
sést að Ísland skipar sér í sess
með þróunarlöndum í notkun
varnarefna. Eftir því sem
við komumst næst er notkun
varnarefna í atvinnuskyni
einungis 2% af heildarnotkun
og notkun í kornrækt einungis
2% af heildarnotkun.
Þegar notkunin á Norður-
löndum er skoðuð nánar sést að
varnarefnanotkun er viðvarandi
í akuryrkju. Árið 2017 voru
7.722 býli í Noregi sem ræktuðu
bygg. Af þeim úðuðu 83% með
varnarefnum, sem nam 89%
af ræktuðu flatarmáli byggs í
Noregi. Norskir bændur notuðu
sveppalyf á 69% ræktaðra
hektara og vaxtarstjórnarefni
á 39%. Svipaða sögu er að
segja af sænskum bændum.
Árið 2021 voru 44% hektara
meðhöndluð með sveppalyfi,
80% með illgresiseyði, og 11%
með skordýraeitri. Meðalnotkun
virkra efna á vorhveiti í Svíþjóð
var 0,47kg/ha. Í Finnlandi var
árið 2018 notað 0,33 kg/ha af
virku efni til að rækta fóðurbygg,
einkum illgresiseyði.
Niðurstöður rannsókna sýna
að notkun lyfja gegn augnflekki
og brúnflekki dragi úr því að bygg
leggist flatt við jörð eða að stráið
brotni. Töluverðar rannsóknir hafa
verið gerðar á varnaefnanotkun í
jarðrækt en margar eru komnar
til ára sinna enda eru nú betri efni
komin á markað. Árið 2022 var
lögð út tilraun af starfsmönnum
Jarðræktarmiðstöðvar LbhÍ.
Niðurstöðurnar sýndu að reitir
sem fengu ekki varnarefni gegn
svepp og illgresi voru þaktir
sýkingu og talsvert illgresi í
reitunum. Þetta olli uppskerutapi
og lakari gæðum á korninu.
Kornrækt er á Íslandi mikið til
stunduð í skiptirækt við túnrækt
sem er að mörgu leyti bæði
hagkvæm og umhverfisvæn.
Skiptirækt getur dregið úr
áburðarþörf og verið árangursrík
við að halda aftur af sjúkdómum
og illgresi í ökrum. Það er hins
vegar ekki raunhæft að gera
ráð fyrir að öll kornrækt sé í
sáðskiptum við túnrækt, og því
verður meiri þörf fyrir varnarefni
með aukinni kornrækt hérlendis.
Notkun varnarefna hefur verið
litin hornauga hér á landi. Það
er ekki alveg að ástæðulausu,
enda geta leifar slíkra efna verið
skaðlegar heilsu og óábyrg notkun
getur spillt náttúru og umhverfi.
Hins vegar skyldi athuga að
varnarefni verða sífellt minna
skaðleg eftir því sem vísindunum
fleygir fram, auk þess sem
búnaður til dreifingar varnarefna
er orðinn gríðarlega nákvæmur.
Hófleg og skynsamleg notkun
varnarefna brýtur ekki í bága við
umhverfisvæna búskaparhætti.
Skaðvaldar geta valdið algjörum
uppskerubresti. Þegar bóndi hefur
lagt vinnu og orku í jarðvinnslu,
sáningu og áburðardreifingu,
er ekki umhverfisvænt að
leyfa uppskeru að spillast
vegna skaðvalda.
Umhverfisvænna er að bjarga
uppskerunni með varnarefnum.
Mikilvægt er að bændur og
neytendur geri sér grein fyrir
því að ábyrg notkun varnarefna
er umhverfisvæn og mikilvægur
hluti af hagkvæmum landbúnaði.
Egill Gautason lektor og
Hrannar Smári Hilmarsson
tilraunastjóri við LbhÍ.
Notkun varnarefna í
íslenskri akuryrkju
– Varnarefni geta verið umhverfisvænn kostur
Helsýkt bygg af augnflekk, þessi blöð ljósstillífa ekki meir, einmitt þegar plantan þarf mest á því að halda til
að fylla kornið. Mynd / Gunnhildur Gísladóttir
Ívar Ragnarsson.
Uppskera í rótargrænmeti fer minnkandi. Myndir / Myndasafn Bændablaðsins
Uppskera í ylrækt eykst heldur í
magni hjá þátttökubúum en minnkar
ef mælt er í kílóum í fermetra.
Hrannar Smári
Hilmarsson.
Egill Gautason.
Mikilvægt er
að bændur og
neytendur geri sér grein
fyrir því að ábyrg
notkun varnarefna er
umhverfisvæn og mikil-
vægur hluti af hag-
kvæmum landbúnaði.“