Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
raunar Egyptaland einnig (+111%).
Þannig fengu t.d. bændurnir í Súdan
lægsta afurðastöðvaverðið árið 2021,
eða 71% undir meðalverðinu. Þá
fengu bændurnir í Gana ekki mikið
hærra afurðastöðvaverð en þeirra
verð var 65% lægra en meðalverðið
og þá var afurðastöðvaverðið til
bænda í Rúanda 48% lægra en
meðalverðið. Af öðrum löndum,
þar sem meðalafurðastöðvaverðið
var nokkuð lágt, má nefna Keníu
(-32%), Nígeríu (-31%), Kúbu
(-29%), Argentínu (-28%) og
Armeníu (-26%).
Stærri búin með meiri hagnað
Í skýrslunni kemur fram að uppgjörið
fyrir 2021 sýni að þrátt fyrir nokkuð
hátt meðalverð að jafnaði þá hafi
mörg bú verið rekin með tapi.
Skýringin felist fyrst og fremst í
háum aðfangakostnaði, m.a. á áburði
og orkugjöfum. Þó hafi stærri búin
að jafnaði staðið sig betur og skilað
meiri hagnaði af framleiddum lítra
en þau minni.
Aukin heimsframleiðsla
Í skýrslunni er komið inn á
heimsframleiðslu mjólkur, sem
árið 2021 var 959 milljarðar lítra
og hafði aukist um 2,9% frá fyrra
ári. Sé litið 10 ár aftur í tímann hefur
mjólkurframleiðslan í heiminum
verið að aukast jafnt og þétt um
2,4% að jafnaði og er fátt sem
bendir til annars en að þessi aukning
haldi áfram á komandi árum.
Framleiðsluaukningin er að mestu
borin uppi af löndum í Asíu og Afríku
og standa Evrópulöndin nokkuð
í stað hvað mjólkurframleiðsluna
varðar. Líklegt má telja að þessi
þróun muni halda svona áfram, þ.e.
að aukning í heimsframleiðslunni
verði áfram í Asíu og Afríku.
Nærri hálf milljón kúabúa hættu
Á sama tíma og heimsframleiðslan
vex ár frá ári, þá sést sams konar þróun
um allan heim, þ.e. kúabúum heimsins
fer fækkandi, en talið er að árið 2021
hafi um 470 þúsund kúabú í heiminum
öllum hætt starfsemi. Þau sem eftir
voru juku aftur á móti framleiðslu
sína vegna bæði stækkunar, aukinnar
tæknivæðingar og meiri afurðasemi
kúa. Meðalkúabúið í vesturhluta
Evrópu var þannig árið 2021 með
68 kýr en til samanburðar var
meðalbústærðin 10 árum fyrr 46 kýr.
Meðalbúið í vesturhluta Evrópu hefur
því stækkað um 48% á einum áratug.
Þó svo að heildarfjöldi kúabúanna
í heiminum fari minnkandi þá er það
ekki svo að ný bú skjóti ekki lengur
upp kollinum. Í Afríku hefur kúabúum
t.d. snarfjölgað á undanförnum árum
og einnig búum í Kína svo annað
dæmi sé tekið.
Meðalnyt enn mjög lág
Skýrsluhöfundar IFCN skipta
kúabúum heimsins upp í afurða-
semisflokka, byggt á OLM (Orku
Leiðréttu Mjólkurmagni), sem eru
nokkuð áhugaverðir fyrir íslenska
kúabændur, enda eru allnokkur bú á
Íslandi nú komin upp í efsta flokkinn
samkvæmt IFCN:
Há meðalnyt (7.000-13.000 kg
OLM). Í þessum flokki eru oftast bú
þar sem yfirleitt eru Holstein Friesian
kýr og þar sem stundaður er búskapur
með öflugri fóðrun og bústjórn.
Meðalnyt (4.000-7.000 kg OLM).
Í þessum flokki eru oftast bú þar sem
stundaður er beitarbúskapur og/eða
léttari fóðrun ásamt notkun á heldur
afurðalægri kúakynjum en Holstein
Friesian.
Lág meðalnyt (<4.000 kg OLM).
Bú í þessum flokki eru oftast að
nota afurðalág kúakyn, buffalóa
eða blönduð kúakyn og fóðra oftar
en ekki á trénismiklu og orku- og
próteinsnauðu fóðri.
Þó svo flokkar IFCN séu þrír
þá er það svo að meðalnytin í
heiminum er langt neðan við neðsta
flokkinn enda ótrúlega stór hluti
mjólkurframleiðslunnar í heiminum
borinn uppi af afurðalitlum kúm sem
ekki eru fóðraðar til afurða. Þannig er
talið að meðalnytin í heiminum árið
2021 hafi verið 2,1 tonn á árskúna og
var það aukning um 1,7% frá fyrra ári.
Mikill munur á mjólk og mjólk!
Þegar horft er til mjólkur-
framleiðslunnar í heiminum
er áhugavert að bera saman
mjólkurframleiðsluna eftir efna-
innihaldi mjólkurinnar. Víða í
heiminum er nefnilega mjólkin bæði
fitu- og próteinsnauð og því segir
magnið eitt og sér ekki alla söguna.
Sé einungis miðað við fjölda kílóa af
kúa- og buffalómjólk sem skilaði sér
í afurðastöðvar heimsins árið 2021
bar Indland höfuð og herðar yfir
önnur lönd með 236,8 milljarða kg
og þar á eftir komu Bandaríkin með
101,6 milljarða kílóa. Þriðja mesta
mjólkurframleiðsluland heimsins var
svo Pakistan með 50,1 milljarða kg.
Sé þetta mjólkurmagn aftur á móti
leiðrétt fyrir efnainnihaldi skipta efstu
tvö löndin um sæti og Pakistan fellur
niður af topp 10 listanum! Miðað
við orkuleiðrétt mjólkurmagn eru
Bandaríkin í fyrsta sæti með 101,0
milljarða kg, þá Indland með 40,6
milljarða kg og þar á eftir kemur svo
Kína með 32,3 milljarða kg. Hreint
ótrúlegur munur á magntölunni fyrir
Indland og skýringin felst einfaldlega
í lágu efnainnihaldi indverskrar
mjólkur líkt og þeirrar sem framleidd
er í Pakistan. Nánar má sjá þessa
áhugaverðu niðurstöðu í töflunni
sem hér fylgir.
1 Indland 236,8
2 Bandaríkin 101,6
3 Pakistan 50,1
4 Kína 34,8
5 Brasilía 34,1
6 Þýskaland 33,1
7 Nýja-Sjáland 25,1
8 Frakkland 24,9
9 Tyrkland 19,8
10 Rússland 19,1
1 Bandaríkin 101,0
2 Indland 40,6
3 Kína 32,3
4 Þýskaland 31,7
5 Nýja-Sjáland 25,1
6 Brasilía 24,7
7 Frakkland 24,4
8 Rússland 19,1
9 Bretland 15,6
10 Holland 15,0
Númer Land Magn innveginnar mjólkur,
milljarðar kg
Númer Land Magn innveginnar OLM,
milljarðar kg
Tækniþróunarsjóður
hefur opnað
fyrir umsóknir
Tækniþróunarsjóður
Umsóknarfrestur er
15. mars 2023 kl. 15:00
Nánar á tths.is
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrindahús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Ögurhva fi 8 130
h auksson@hhauksson.is
7-18 tonn