Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Í síðasta blaði var fjallað um þær
hryssur sem voru í 1.–9. sæti. Hér á
eftir verður fjallað um þær hryssur
sem röðuðust niður í sæti tíu til
tuttugu.
Þruma frá Skagaströnd
Hryssan í tíunda sæti er Þruma
frá Skagaströnd. Hún er undan
heiðursverðlaunahrossunum Markúsi
frá Langholtsparti og Sunnu frá
Akranesi. Ræktandi hennar er Sveinn
Ingi Grímsson en eigandi er Þorlákur
Sigurður Sveinsson. Þruma er með 119
stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en
hún á 16 afkvæmi þar af hafa 5 hlotið
kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Þruma gefur
stór hross. Fríðleiki á höfuð er í
rúmu meðallagi, vel opin augu en
stundum djúpir kjálkar. Hálsinn
er með hvelfdri yfirlínu og háum
herðum. Bakið yfirleitt breitt með
góðri yfirlínu, lendin öflug en stundum
gróf. Afkvæmin eru framhá, léttbyggð
og fótahá. Fætur eru traustir með
öflugum sinum en réttleiki er misjafn,
framfætur stundum útskeifir. Hófar
efnistraustir með hvelfdum hófbotni.
Prúðleiki breytilegur, allt frá því að
vera slakur upp í að vera allgóður. Tvö
afkvæmanna eru klárhross en hin sýna
nokkra skeiðgetu. Töltið er taktgott,
skrefmikið með hárri fótlyftu. Brokkið
er skrefmikið og takthreint. Stökkið er
yfirleitt ferðmikið og teygjugott. Fet
að jafnaði gott. Afkvæmin fara vel í
reið með góðum fótaburði og viljinn
er ásækinn og þjáll.
Grýla frá Þúfum
Hryssan í ellefta sæti er Grýla
frá Þúfum. Hún er undan
heiðursverðlauna hestinum Álfi frá
Selfossi og Lygnu frá Stangarholti.
Ræktandi og eigandi hennar er Mette
Camilla Moe Mannseth. Grýla er
með 119 stig í kynbótamati fyrir
aðaleinkunn en hún á 9 afkvæmi og
hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Grýla gefur
hross í meðallagi að stærð. Höfuð er
fremur frítt, hálsinn er grannur, reistur
og hátt settur. Baklínan góð en bakið
er stundum fremur vöðvarýrt og lendin
misjöfn. Afkvæmin eru hlutfallarétt
og fremur léttbyggð. Fætur eru þurrir
og réttleiki í lagi. Hófar efnistraustir.
Prúðleiki afar misjafn frá því að vera
mjög góður niður í að vera tæpur. Tvö
afkvæmanna eru klárhross en hin þrjú
sýna skeið. Töltið er takthreint, rúmt
og með góðri fótlyftu. Brokkið er
taktgott, rúmt og skref- og svifmikið.
Stökkið er svifgott og rúmt, hæga
stökkið heldur síðra. Fetið er takthreint
og skrefmikið. Afkvæm Grýlu eru
viljug, þjál, samstarfsfús og fara vel í
reið með fallegum höfuð- og fótaburði.
Jóna frá Kjarri
Hryssan í tólfta sæti er Jóna frá Kjarri.
Hún er undan heiðursverðlauna-
hestinum Gusti frá Hóli og Jónínu
frá Hala. Ræktandi og eigandi er
Helgi Eggertsson. Jóna er með 118
stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn
en hún á 10 afkvæmi og hafa 5
þeirra hlotið kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Jóna gefur
smá hross. Höfuð svipgott og
lýta- laust. Hálsinn mjúkur og
bógar skásettir. Bakið misjafnt,
stundum aðeins stíft en lendin
öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt.
Fótagerð og réttleiki eru um
meðallag en hófar efnistraustir en
stundum aðeins víðir. Prúðleiki
misjafn. Afkvæmi Jónu eru öll
alhliða hross. Töltið er taktgott með
góðri fótlyftu. Brokkið er misgott,
stundum fremur sviflítið. Skeiðið
er öruggt og skrefmikið. Stökkið er
gott en hæga stökkið lakara. Fetið
er misjafnt. Afkvæmin eru viljug
og samstarfsfús og fara vel í reið.
Hrefna frá Vatni
Hryssan í þrettánda sæti er Hrefna frá
Vatni. Hún er undan heiðursverðlauna-
hestinum Álfi frá Selfossi og Teklu
frá Vatni. Ræktendur hennar er
Helga Halldóra Ágústsdóttir og
Sigurður Hrafn Jökulsson en eigandi
er Sigurður Hrafn Jökulsson. Hrefna
er með 117 stig í kynbótamati fyrir
aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi og
hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Hrefna gefur
hross í tæpu meðallagi að stærð.
Höfuð lýtalaust með beinni yfirlínu.
Hálsinn allgóður, oft hátt settur.
Bakið breytilegt að gæðum, sama
má segja um lendina. Afkvæmin
eru hlutfallarétt. Fótagerð misjöfn,
réttleiki tæpur en hófar góðir.
Prúðleiki misjafn. Afkvæmin eru öll
alhliðahross, þó vekurðin sé mismikil
og í raun aðeins eitt afkvæmið sem
skeiðar af öryggi. Töltið er misgott
en oftast rúmt og takthreint. Brokkið
er ekki svifmikið en yfirleitt skrefgott.
Stökkið er teygjugott en hæga
stökkið síðra. Fetið misjafnt stundum
skrefstutt. Viljinn góður og fegurð í
reið allgóð.
Kreppa frá Feti
Hryssan í fjórtánda sæti er Kreppa frá
Feti. Hún er undan Árna Geir frá Feti
og Jósefínu frá Feti. Ræktandi hennar
er Brynjar Vilmundarson en eigandi
er Fet ehf. Kreppa er með 116 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún
á 9 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið
kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Kreppa
gefur hross undir meðallagi að
stærð. Höfuð er svipgott. Hálsinn
langur og reistur. Bakið sterklegt
og lendin öflug. Afkvæmin eru
hlutfallarétt og ágætlega fótahá.
Fótagerð í meðallagi, sinar oft heldur
grannar en réttleiki yfirleitt góður.
Hófar misjafnir að gerð. Prúðleiki
yfirleitt yfir meðallagi. Afkvæmin
eru öll utan eitt klárhross, þau eru
með úrvalsgott tölt, ferðmikið,
takthreint og lyftingargott. Brokkið
er skrefmikið og taktgott. Stökkið er
ferðmikið. Fetið misjafnt stundum
skrefstutt. Viljinn einkennist af
mikilli framhugsun og þjálni. Þau
fara vel í reið með miklum fótaburði.
Álöf frá Ketilsstöðum
Hryssan í fimmtánda sæti er Álöf
frá Ketilsstöðum. Hún er undan
heiðursverðlaunahestinum Álfi frá
Selfossi og Hefð frá Ketilsstöðum.
Ræktandi hennar er Jón Bergsson
en eigandi er Guðbrandur Stígur
Ágústsson. Álöf er með 116 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún
á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið
kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Álöf gefur
hross í rúmu meðallagi að stærð.
Höfuð einkennist af beinni neflínu.
Hálsinn er yfirleitt ágætlega reistur
og yfirlína góð. Baklína góð með
einni undantekningu þó, sama má
segja um lendina hún er yfirleitt
jöfn. Afkvæmin eru fótahá og sívöl.
Fætur traustir með öflugum sinum
en réttleiki í meðallagi, afturfætur
oft nágengir. Hófar eru vel lagaðir
með hvelfdum botni. Prúðleiki slakur.
Töltið einkennist af góðri fótlyftu, það
er skrefmikið og oftast takthreint.
Brokkið er skrefmikið, það sama má
segja um skeiðið sé það fyrir hendi.
Stökkið er ferðgott. Fetið er misjafnt.
Afkvæmin eru yfirveguð og þjál og
fara vel í reið með góðum fótaburði,
eitt afkvæmanna er þó lágengt.
Heilladís frá Selfossi
Hryssan í sextánda sæti er Heilladís
frá Selfossi. Hún er undan Suðra
frá Holtsmúla og heiðurs verð-
launahryssunni Álfadísi frá Selfossi.
Ræktandi og eigandi hennar er Olil
Amble. Heilladís er með 116 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún
á 10 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið
kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Heilladís
frá Selfossi gefur fremur smá hross
en hlutfallarétt. Höfuð oft skarpt en
neflína stundum tæp. Frambygging
heldur góð, hálsinn yfirleitt langur en
ekki léttur. Bak og lend sterkleg en
lendin stundum gróf. Fætur góðir en
réttleiki í meðallagi, afturfætur stundum
nágengir. Hófar vel gerðir og prúðleiki
góður. Afkvæmi Heilladísar eru ýmist
klárhross eða alhliðahross.Töltið er
taktgott, sama má segja um brokkið með
einni undantekningu þó. Ef skeið er til
staðar er það skrefgott. Stökk er fremur
ferðlítið. Fetið er oftast takthreint og
skrefmikið. Afkvæmin eru takthrein á
gangi, viljinn þjáll og þau fara vel í reið.
Mirra frá Þúfu í Landeyjum
Hryssan í sautjánda sæti er Mirra frá
Þúfu. Hún er undan heiðursverðlauna
hestinum Orra frá Þúfu og Iðu frá Þúfu.
Ræktandi hennar er Indriði Theódór
Ólafsson og eigandi Susanna Braun.
Mirra er með 115 stig í kynbótamati fyrir
aðaleinkunn en 121 stig í kynbótamati
fyrir aðaleinkunn á skeiðs. Hún á
15 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið
kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Mirra frá Þúfu
í Landeyjum gefur fremur stór hross.
Höfuð er skarpt. Hálsinn er reistur og
yfirlína góð. Bakið er misjafnt, stundum
framhallandi en oftast vel vöðvafyllt.
Hrossarækt:
Hryssur sem hlutu heiðursverðlaun
haustið 2022
– Annar hluti: Hryssur í 10.–20. sæti
RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS
Tuttugu hryssur á Íslandi hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2022. Til þess að hljóta
þá heiðursnafnbót þarf hryssa að eiga að lágmarki fimm dæmd afkvæmi og vera með 116
stig í kynbótamati ýmist fyrir aðaleinkunn eða fyrir aðaleinkunn án skeiðs. Af þeim 20
hryssum sem hlutu verðlaun fyrir afkvæmi árið 2022 voru fjórar sem ná viðmiðinu 116
fyrir aðaleinkunn án skeiðs.
Lýsing frá Þúfum. Mynd / Aðsend
Halla Eygló
Sveinsdóttir.
Elsa Albertsdóttir.
Hrefna frá Vatni. Mynd / Aðsend
Grýla frá Þúfum. Mynd / Aðsend
Kreppa frá Feti. Mynd / Aðsend
Prestsfrú frá Húsatóftum 2a. Mynd / Eiríkur Jónsson