Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Lendin er öflug en stundum aðeins
gróf. Afkvæmin eru fótahá og sívöl.
Fætur sterklegir með öflugum sinum
og góðum sinaskilum en réttleiki í
meðallagi. Hófar yfirleitt sterklegir
en stundum aðeins víðir. Prúðleiki
misjafn. Afkvæmi Mirru eru klárhross
að upplagi þó sum tæpi á skeiði. Töltið
er takthreint með skrefmiklum og háum
hreyfingum. Brokkið er taktgott með
góðum fótaburði. Stökkið er afbragð
ferð- og svifmikið. Hæga stökkið oft
heldur síðra. Fet yfirleitt taktgott. Viljinn
afbragð sem lýsir sér með yfirvegun og
mikilli framhugsun. Hrossin fara vel í
reið með miklum fótaburði og fallegum
höfuðburði.
Spes frá Ketilsstöðum
Hryssan í átjánda sæti er Spes frá
Ketilsstöðum. Hún er undan Sveini-
Hervari frá Þúfu í Landeyjum og
Þernu frá Ketilsstöðum. Ræktandi
hennar er Jón Bergsson en eigandi er
Bergur Jónsson. Spes er með 113 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en 126
í kynbótamati fyrir aðaleinkunn án
skeiðs. Hún á 10 afkvæmi og hafa 5
þeirra hlotið kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Spes frá
Ketilsstöðum gefur hross í tæpu
meðallagi að stærð. Höfuð er skarpt en
eyrnastaða stundum slök. Frambygging
þokkaleg en hálsinn er stundum fremur
djúpur. Lendin er öflug og baklína
oftast góð. Afkvæmin eru hlutfallarétt.
Afturfætur nágengir en fótstað rétt
og hófar góðir. Prúðleiki er misjafn.
Afkvæmi Spes eru klárhross en þau eru
takthrein, hágeng og skrefmikil bæði
á tölti og brokki. Stökkið er yfirleitt
ferðmikið, með góðu skrefi og lyftu.
Fet takthreint. Viljinn er afbragð, þjáll
en ásækinn. Afkvæmin fara vel í reið
með miklum fótaburði og fasi.
Prestsfrú frá Húsatóftum 2a
Hryssan í nítjánda sæti er Prestsfrú frá
Húsatóftum 2a. Hún er undan Forseta
frá Vorsabæ II og Viðju frá Hoftúni.
Ræktandi og eigandi hennar er Ástrún
Sólveig Davíðsson. Prestsfrú er með 110
stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en
117 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn
án skeiðs. Hún á 8 afkvæmi og hafa 5
þeirra hlotið kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Prestsfrú frá
Húsatóftum 2a gefur stór hross. Höfuð
er skarpt og svipgott en eyrnastaða
stundum aðeins slök. Hálsinn er reistur,
vel settur og með háum herðum. Bakið er
breitt og vöðvafyllt með góðri baklínu,
lendin er jöfn og öflug. Samræmi er
gott og einkennist af jöfnum hlutföllum.
Fótagerð er þurr og sinar öflugar.
Réttleiki er um meðallag, flétta gjarnan
að framan og nágeng að aftan. Hófar eru
vel formaðir og efnisþykkir. Prúðleiki
misjafn stundum með ágætum en
stundum lítill. Afkvæmin eru rúm og
skrefmikil klárhross. Töltið og hæga
töltið er taktgott, skrefmikið með
góðri fótlyftu. Brokkið er taktgott
og skrefmikið. Stökkið er takthreint,
skrefmikið með góðri fótlyftu. Fetið
er um misgott. Afkvæmin eru viljagóð
og samstarfsfús, fara vel í reið með
fallegum fótaburði og hvelfdri yfirlínu.
Lýsing frá Þúfum
Hryssan í tuttugasta sæti er Lýsing
frá Þúfum. Hún er undan Hróðri
frá Refsstöðum og Birtu frá Ey II.
Ræktendur og eigendur hennar eru
Mette Camilla Moe Mannseth og Gísli
Gíslason. Lýsing er með 108 stig í
kynbótamati fyrir aðaleinkunn en 120
stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn án
skeiðs. Hún á 13 afkvæmi og hafa 5
þeirra hlotið kynbótadóm.
Dómsorð afkvæma: Lýsing frá
Þúfum gefur fremur stór hross. Höfuð
er fremur frítt, hálsinn er reistur, með
hvelfdri yfirlínu og háum herðum.
Yfirleit góð baklína og breitt og
vöðvafyllt bak. Samræmi er gott og
einkennist af jöfnum hlutföllum og
fótahæð. Fótagerð er þurr með góðum
sinaskilum. Réttleiki er í góðu meðallagi.
Hófar eru efnistraustir, með þykkum
hælum. Prúðleiki yfirleitt fremur góður.
Afkvæmin eru að uppistöðu klárhross.
Töltið og hæga töltið er taktgott með
góðri fótlyftu. Brokkið er taktgott og
skrefmikið. Stökkið er takthreint með
góðu svifi. Fetið er skrefmikið og
takthreint. Afkvæmin eru samstarfsfús
og þjál og fara afar vel í reið. Höfuð- og
fótaburður prýðir.
RML sendir ræktendum og eigendum
þessara hryssna innilegar hamingjuóskir.
Mikil vinna liggur að baki þessum
mikla árangri sem er ómetanlegt fyrir
ræktunarstarfið. Ef ræktendur tækju
ekki þátt í kynbótasýningum hefðum við
engan grunn til að byggja kynbótamatið
á. Það er ekki víst að allir geri sér grein
fyrir því hvað þetta sameiginlega starf
við skýrsluhald og sýningarhald hefur
mikið að segja fyrir hrossaræktina í
heild sinni. Í því samhengi má ekki
gleyma mikilvægi WorldFeng sem
heldur utan um allar þessar upplýsingar.
Halla Eygló Sveinsdóttir
Elsa Albertsdóttir,
ráðunautar í hrossarækt.
Álöf frá Ketilsstöðum. Mynd / Aðsend
Þruma frá Skagaströnd. Mynd / Aðsend Mirra frá Þúfu í Landeyjum.
Mynd / Susanne Braun
Spes frá Ketilsstöðum. Mynd / Aðsend
Jóna frá Kjarri. Mynd / Kjarr
Glæsileg ferð í strandbæinn Chioggia þar sem
við njótum sólar á gylltri ströndinni á töfrandi
stað við Feneyjarlónið. Við kynnumst m.a. fallegu
borginni Vicensa með sínum ítalska léttleika og
miðjarðarhafsblæ og að sjálfsögðu hinum heillandi
Feneyjum.
26. ágúst – 2. september 2023
Fararstjórn: Íris Sveinsdóttir
Verð 295.900 kr. á mann í tvíbýli
Bókaðu núna á bændaferðir.is
Dýrðardagar
á Ítalíu
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2
108 Reykjavík
www.bkhonnun.is - sala@bkhonnun.is - Sími 571-3535
BJÁLKAHÚS - GARÐHÚS
Bjóðum fjölmargar gerðir garðhúsa. Þök, skýli, lítil og stór
bjálkahús. Pallaefni, girðingar og sauna tunnur.
Mjög góð verð og stuttan afhendingartíma.
Heilladís frá Selfossi. Mynd / Aðsend
Bændablaðið kemur næst
9. mars