Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
REYKJAVÍK AKUREYRI 590 5100 klettur.is
Rafmögnuð
gæði
Árið 2015 var fyrirhuguð Hvamms-
virkjun í Þjórsá færð úr biðflokki
í nýtingarflokk, ein þriggja
áætlaðra virkjana í neðri hluta
Þjórsár, hinar tvær, Holta-
virkjun og Urriðafossvirkjun, eru
enn í biðflokki.
Samningar
Landsvirkjunar
v ið land-
eigendur árin
2007 og 2008
um fyrirhugaðar
framkvæmdir
þykja vafasamir
og umdeildir
enda sagðir hafa
verið þvingaðir
fram. Þessi virkjunarhugmynd
hefur leikið nærsamfélagið grátt
og framganga Landsvirkjunar
gagnvart því grafalvarleg þar sem
stuðst er við gamalt umhverfismat
sem talið er byggt á annarri
framkvæmd.
Það að gera ekki nýtt mat sé
í raun brot á rannsóknarreglu
stjórnsýslulaga því ekki sé stuðst
við nýjustu og réttustu upplýsingar
um fyrirhugaða framkvæmd.
Í þingsályktun um vernd
og orkunýtingu landsvæða
er áréttað að tryggt sé að þar
sem finna megi virkjunarkosti
verði ákvarðanataka að vera
byggð á langtímasjónarmiðum,
heildstæðu hagsmunamati með
tilliti til verndargildis náttúru,
menningarsögulegra minja og
annarra gilda er varðar þjóðarhag,
vernd og sjálfbæra þróun.
Þessi virkjun er afar umdeild
og mörg sem vilja að náttúran
fái að njóta vafans og hætt verði
við óafturkræf og eyðileggjandi
náttúruspjöll enda margt sem hefur
breyst hvað varðar náttúruvernd,
atvinnulíf og samfélagið í heild á
síðustu árum.
Umsvif ferðaþjónustu hafa
aukist gríðarlega síðustu ár þar
sem einstök náttúra er helsta
aðdráttaraflið og möguleikar á
fjölbreyttri uppbyggingu við og
tengt Þjórsá ótalmargir. Enda
vara ferðaþjónustuaðilar við
virkjunarframkvæmdum sem
þeir telja draga úr möguleikum
til nýsköpunar og uppbyggingar
margs konar ferðaþjónustu á
svæðinu.
Með Hagalóni færu ómetan-
legar menningarminjar, dýralíf,
grónir bakkar og lendur við Þjórsá
undir vatn eða hlytu skaða af
vegna breyttra vatnsfarvega og
gróðureyðingar. Hagaey færi að
mestu í kaf og hin friðaða Viðey,
Minnanúpshólmi, þar sem finna
má sjaldgæfar plöntutegundir, og
Ölmóðsey yrðu vart eyjar lengur
þar sem áin yrði færð úr farvegi
sínum og í skurð austan við ána.
Að ónefndu búsvæði laxfiska í
Þjórsá, einum stærsta villta stofni
landsins, sem er að þriðjungi
við og fyrir ofan fyrirhugað
virkjunarsvæði. Nokkur náttúru-
verndarsamtök kæra virkjanaleyfið
og segja brotið á þátttökurétti
almennings hvað varðar mat á
umhverfisáhrifum en skýrt er að
hagsmunaaðilar í nærumhverfi
eigi rétt á að tekið sé tillit til þeirra
álita og skoðana.
Það eru verndarmarkmið í
náttúruverndarlögum sem kveða
á um vernd vatnsfarvega sem hafa
sérstætt eða fágætt fagurfræðilegt
og/eða menningarlegt gildi og það
hefur Þjórsá svo sannarlega enda
drottning í byggð á einu fegursta
útivistarsvæði landsins.
Með sínum grónu bökkum,
eyjum með einstöku gróðurfari
og dýralífi. Þjórsá er einnig lengst
allra íslenskra áa og rennur að
miklu leyti á Þjórsárhrauni hinu
mikla sem er stærsta flæðihraun
sem runnið hefur í nútíma á
jörðinni.
Telur Landvernd Þjórsá hafa
sérstöðu á heimsmælikvarða og þá
sérstaklega neðsta hluta hennar, hið
fyrirhugaða virkjanasvæði, sem að
mestu er ósnortið í dag. Markmið
laga um stjórn vatnamála er að
vernda vatn og vistkerfi þeirra,
hindra frekari rýrnun vatnsgæða
og bæta ástand vatnavistkerfa til
þess að vatn njóti heildstæðrar
verndar. Þá má ástand vatnshlota
ekki rýrna þannig að það falli um
ástandsflokk.
Á þessu svæði er Þjórsá í mjög
góðu ástandi. Breyting á Þjórsá í
Hvammslón er ekki bara breyting
á gerð vatnshlotsins heldur einnig
á aðstæðum og vistfræðilegum
eiginleikum Þjórsár. Það er enginn
efi í mínum huga að Þjórsá beri að
vernda með öllum ráðum.
Með tilvísun í öll þessi rök
náttúrunni í vil spyr ég þá hvort
frekari virkjun Þjórsár geti verið
brot á lögum um náttúruvernd og
lögum um stjórn vatnamála?
Hólmfríður Árnadóttir,
oddviti VG í Suðurkjördæmi.
Þjórsá, drottning
í byggð
Hólmfríður
Árnadóttir.
Horft upp eftir Þjórsá og þar sést Núpurinn, Núpsbæirnir og Hagafjall í
fjarska. Ef af virkjun yrði myndi þessi farvegur verða nánast þurr.
Mynd / Aðsend